Samvinnan


Samvinnan - 01.09.1954, Page 10

Samvinnan - 01.09.1954, Page 10
reynslu, sem hér hefur fengizt í ýms- um greinum samvinnustarfs, og er það mála sannast, að íslendingar muni ekki síður geta kennt og veitt í sam- vinnumálum en lært og þegið. Er það og viðurkennt og kom oft fram, er minnzt var á ísland í umræðum, að samvinnumenn heims telja land okk- ar hér úti á hjara veraldar vera mesta samvinnuland heimsins. Má það til sanns vegar færa. Þegar lokið var hinum ýmsu sér- fundum, um samvinnublaðamennsku, fræðslumál, landbúnaðarsamvinnu, samvinnubyggingar, samvinnutrygg- ingar og sitthvað annað, hófst sjálft allsherjarþing ICA, — alþjóðasam- bandsins. Fór það fram í Chaillot-höll- inni, sem er andspænis sjálfum Eiffel- turninum og rennur hin fagra en grugguga Signa á milli. Þessi höll er mikilfenglegur samkomustaður, ekki gömul að árum, en fögur og virðuleg. Þar kom allsherjarþing sameinuðu þjóðanna saman í eina tíð. Sir Harry Gill, forseti alþjóðasam- bandsins, var í forsæti á fundinum, en hvort sínu megin hans sátu W. B. Watkins, framkvæmdastjóri, og hin virðulega jómfrú Polley, aðalritari sambandsins. Þar utan við sátu hinir frönsku húsbændur og fyrir aftan á pallinum gestir. Þótti íslenzku fulltrú- unum athyglisvert að heyra, að meðal gestanna var maður að nafni Björn Nikulás Arnason og er hann aðstoðar- samvinnumálaráðherra í fylkinu Sas- katchewan í Kanada. Hann kallast nú að vísu Barney N. Arnason, en heilsað gat hann löndum sínum á ís- lenzku og kvaðst skilja allmikið í gamla málinu. Sýnir það, hversu mik- ilvæg samvinnuhreyfingin er meðal bænda á kanadisku sléttunni, að þar skuli vera sérstakt samvinnuráðuneyti og fer sjálfur forsætisráðherrann með stjórn þess nú, en Björn er þar aðstoð- arráðherra og nýtur mikillar virðing- ar. KALDA STRÍÐIÐ. Þegar formsatriðum þingsetningar var lokið, þurfti ekki lengi að bíða þess, að kalda stríðið skyti upp kollin- um. Alþjóðasamvinnusambandið mun vera einu alþjóðlegu samtökin, sem Rússar og leppríki þeirra eru í, ef frá eru skildar sameinuðu þjóðirnar. Hef- ur komið til mikilla átaka milli þeirra og lýðræðisþjóðanna innan sambands- ins. Gefur að skilja, að mikill eðlis- munur er á hinum frjálsu samvinnu- hreyfingum lýðræðislandanna og þeim samtökum, sem bera samvinnunafn austan járntjalds. Þar eystra eru sam- vinnufélögin algert tæki ríkisvaldsins og hafa ekkert sjálfstæði í þeim skiln- ingi, sem lýðræðisþjóðirnar vestan járntjalds leggja í það orð. Svíinn Dr. Bonow skýrði til dæm- is frá því í umræðunum, að fyrir nokkru hefði tékkneska ríkið fyrir- skipað tékkneskum samvinnu- mönnum að leggja niður heildsölu- starfsemi sína og hefði það þegjandi og hljóðalaust verið gert. Nokkru síðar kom svo fyrirskipun frá rík- inu um að öll samvinnuverzlun í bæjum og borgum skyldi lögð nið- ur. Þegar ríkið getur þannig ger- breytt starfi samvinnuhreyfingar- innar með einu pennastriki, er ekki um að ræða frjálsa hreyfingu eftir skilningi vesturlandanna á þeim hugtökum. Kalda stríðið brauzt út, er Rússar reyndu enn að fá Pólverja, Austur- Þjóðverja, Norður-Kóreumenn og Albani tekna inn í sambandið. Var vísað til samþykktar síðasta þings í Kaupmannahöfn, þar sem slíkt ríkis- samvinnustarf var talið ósamrýman- legt hugsjónum alþjóða bandalagsins og inntökubeiðni þessara ríkja því hafnað. Þrátt fyrir þessa stefnu Kaup- mannahafnarþingsins hefur ekki verið hreyft við þeim samböndum, sem þegar eru í samtökunum, og ekki uppfylla áðurnefnd skilyrði. Sir Harry Gill ræddi mjög hreinskilnislega um mál þetta og benti á, að hér væri hreinlega um það að ræða, hvort hin- ar austrænu eða vestrænu hugmyndir um samvinnustarfið ættu að ráða alþjóðasambandinu, og reyndust austanmenn við atkvæðagreiðslur vera í miklum minnihluta. SAMVINNA SAMVINNUMANNA. Annað mál, sem mikið var rætt á þinginu, var aukin raunhæf samvinna milli samvinnumanna í hinum ýmsu löndum og hagkvæm verzlunarvið- skipti þeirra í milli. Hafa tilraunir til að koma á slíkri verzlun ekki borið verulegan árangur enn, nema í sam- bandi hinna norrænu samvinnumanna (Nordisk Andelsforbund). Kom fram mikill áhugi á því að auka slík viðskipti, og væri óskandi, að það gæti til dæmis orðið til þess að opna einhverja nýja markaði fyrir íslenzk- ar afurðir. Mun það mál verða kann- að eftir þann áhuga, sem fram kom í umræðunum. Ein þeirra nefnda, sem starfað hafa á vegum alþjóðasambandsins, fjallar um endurbætur á vörudreifingu, og hafa Svíar látið þar mjög til sín taka, enda hugmyndin um nefndina frá þeim komin. Hefur þessi nefnd gert ýmsar athuganir á einstökum grein- um verzlunarreksturs, til dæmis sjálf- afgreiðslubúðum, og geta samvinnu- menn þar fengið á einum stað miklar upplýsingar um nýjungar erlendis og reynslu annara. Sænska samvinnusainbandið sendi í þessu tilefni til Parísar einn af verzlunarbílum sínum, en það var vörubifreið, sem innréttuð hafði verið sem sjálfsafgreiðslubúð, og eru á annað hundrað slíkar bifreið- ar í notkun í Svíþjóð. Er þar öllu haganlega fyrir komið og án efa þægilegt í dreifbýli að geta sent sjálfa búðina til hinna ýmsu byggð- arlaga, þar sem fastar verzlanir ekki geta þrifizt. SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR TRÚA Á SAMVINNUNA. Þá var mikið rætt um samvinnu- starf meðal frumstæðra þjóða, sér- staklega Afríku- og Asíuþjóða, sem eru að vakna til meðvitundar um örbirgð sína og byrja að berjast gegn henni. Kom það greinilega fram á fund- inum, að ýmsar af stofnunum sam- einuðu þjóðanna hafa valið sam- vinnuna sem eitt gagnlegasta tæki þessara þjóða til sjálfsbjargar. Hafa stofnanir eins og ILO og FAO sent fjölda sérfræðinga í samvinnumál- um til þessara landa til að kenna frumatriði samvinnustarfs og koma á fót samvinnufyrirtækjum. ICA — alþjóðasamband samvinnu- manna — hefur sjálft ekki getað gert mikið raunhæft til að efla samvinnu- starf hinna frumstæðu þjóða, og hef- ur fjárskortur valdið því. Var nú á þessu þingi lagður grundvöllur að því að afla fjár til þess að hefja slíkt starf á vegum ICA. 10

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.