Samvinnan


Samvinnan - 01.09.1954, Qupperneq 14

Samvinnan - 01.09.1954, Qupperneq 14
um. í öllum hinum ferðum var veður alltaf sæmilegt, oft gott og stundum framúrskarandi. Það var auðvitað undir veðri og atvikum komið, hve langt vestur var farið, lengst var farið í Stykkishólm, þangað komust tveir hópar, en skemmst að Hítará, með Hvergerðinga. En reynt var að komast vestur á Kerlingarskarð þegar svo bjart var í lofti, að njóta mætti útsýnis þaðan. Var leiðin, sem ekin var í hverjum túr, frá 800—1000 km. og er það vel af sér vikið á tveim dögum. Bílstjórarnir dugðu með ágæt- um og ekkert óhapp kom fyrir nema það, að einu sinni bilaði öxull milli afturhjóla, er bíll var á hægri ferð upp brekku í Borgarfirði, en hvorki hlut- ust af meiðsl eða taugaáfall og annar bíll var fenginn á næstu grösum, svo að varla varð teljandi töf af því ó- happi. Frá Selfossi var lagt af stað um tíuleytið og komið þangað aftur næsta dag síðkveldis, eða næstu nótt, þó aldrei seinna en kl. 3, en venju- lega um miðnætti. Ekið hafði þá verið um 5 sýslur og 25 hreppa. Frá Selfossi var ekið um Hellisheiði að Geithálsi og beygt þar inn á gamla Þingvallaveginn, síðan farið hjá Mið- dal og meðfram Hafravatni, en þaðan hjá Reykjum í Mosfellssveit og Ála- fossi að Hlégarði. Er þetta falleg og tilbreytingarrík leið. Hlégarður er fé- lagsheimili bænda í Mosfellssveit, myndarlegast og fullkomnast allra fé- lagsheimila á landinu. I Hlégarði var drukkið kaffi og var framreiðsla og þjónusta öll við hæfi liins fallega og vandaða húss. Að lokinni kaffidrykkju var húsmæðrunum sagt frá því mark- verðasta á farinni leið og því næsta sem framundan var. En er staðið var upp frá borðum, máttu konurnar ganga um og skoða húsið hátt og lágt. Er mikill menningarauki hverri sveit að eiga slíkt félagsheimili sem þetta, og umgengni þar öll til fyrirmyndar, enda þótt það hafi nú verið starfrækt í nokkur ár. Venjulega var staðið við í Hlégarði rúman klukkutíma og var það góð hvíld og hressing, en margar húsmæðurnar höfðu risið árla þenn- an morgun. Frá Hlégarði var svo ekið um Kjal- arnesið og Kjósina og jafnan farið út úr bílunum við Staupastein, nálægt Hvammi. Bæði er það, að steinninn er harla sérkennilegur og svo er þar gott útsýni yfir Hvalfjörð. Var stund- in því notuð til að segja frá landslag- inu, bæjum og örnefnum báðum megin fjarðarins, sem yrði hér of langt upp að telja. En starsýnt varð víst öllum á hinn sæbratta Geirshólma, því hvar er sú kona íslenzk, sem ekki þekkir sögu Harðar og Helgu jarlsdóttur? Vissulega er Hvalfjörður einn feg- ursti fjörður landsins, þó langur tmn- ist hann stundum þeim, er þurfa oft að fara fyrir hann. í Botnsskógi er siður flestra að stansa og svo gerðum við einnig. Þar er mannhæðar kjarr og veðurblíða, sem oftast fylgir skóg- lendinu. Þaðan var svo ekið út Þyr- ilshlíðina og að hvalveiðastöðinni þar. Væri hvalur á skurðar-„planinu“, var sjálfsagt að stansa og sjá aðfarirnar. I sumum ferðunum var enginn hval- ur uppi, en í öðrum mátti sjá hval- skurð og tvo til þrjá hvali fljótandi í flæðarmálinu. Þetta eru nú stærstu skepnur jarðarinnar og gefst sjaldan kostur á að sjá þær í heilu lagi. En misjöfn var lyktin í kring um hval- veiðistöðina, einkum ef heitt var í veðri. Því næst var ekið út Hvalfjarð- arströndina og ef skyggni var gott lögðum við lykkju á leiðina og ókum með sjónum í kringum Melasveitina, en þaðan sést bezt vestur á yztu tanga Mýranna og skerjagarðinn með Þor- móðsskerinu yzt. Undir Hafnarfjalli var jafnan stans- að góða stund, við veginn þar sem Hafnarskógur er hæstur. Var þar smurt brauð og öl til hressingar, er K. Á. hafði látið útbúa á Selfossi. Frá Hafnarskógi var svo haldið að bænda- skólanum á Hvanneyri og með leyfi skólastjóra og fjósameistara gengið þar í kirkjuna og um hlað og garða, fjós og hlöðu. Er þar myndarbragur á öllu og snyrtimennska auðsæ úti og inni. Frá Hvanneyri var haldið að Bifröst við Hreðavatn í Norðurárdal, sem er félagsheimili samvinnumanna. Eru þar mikil húsakynni og vegleg og viðurgerningur allur hinn fullkomn- asti og bezti, og umhverfið graslendi og skógarlundir á víxl. I Bifröst var borðaður miðdegisverður báða dag- ana. Vel þótti húsmæðrunum af Suð- urlandi Borgfirðingarnir búa, því þar var alltaf lax nýveiddur á borðum annan daginn, en dilkakjöt hinn. En dilkakjöt hafði þá lengi verið ófáan- legt sunnanlands. Enda þótt Bifröst sé vistleg, skorti þar þó eitt að þessu sinni, að pláss er þar mjög takmarkað til gistingar, en úr því er nú víst verið að bæta. Urðum við því jafnan að skipta liðinu í tvennt, er á kvöldið leið, fór þá Yngvi með annan bílinn að Fornahvammi efst í dalnum, en ég með hinn í Borgames. Tók gisti- húsið þar á móti flestum, en þó kom Kaupfélagskonur frd Selfossi i garSinum á Hvanneyri. 14

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.