Samvinnan - 01.09.1954, Side 18
I. KALDIR RÉTTIR.
Rœkjukrem:
1 bolli rækjur
1/2 bolli hrært smjörlíki
salt, pipar, sinnep, muskat.
Smjörlíkið er hrært, rækjurnar eru
marðar með gaffli og þeim jafnað
saman við smjörlíki ásamt kryddinu,
sem er látið eftir smekk. Hrært vel
saman. Ágætt er að láta örlítið af
Worchestershire sósu saman við
kremið. Gott með ýmsum fiskréttum,
„cocktail snittum“ (pinnabrauði) eða
á ristað brauð.
Kaldur rœkjuhringur:
300 gr. rækjur
5— 6 blöð matarlím
14 bolli sítrónusafi
2 bollar heitur tómatsafi
V4 matsk. salt
y4 matsk. sykur
6 olívur
y4 bolli söxuð agúrka
y2 bolli saxað kál (grænkál, salat)
1/2 matsk. Worchestershire sósa
Steinselja, radísur, salatblöð,
mayonaise.
Matarlímsblöð lögð í bleyti í kalt
vatn ca. 20 mín. Vatnið síað frá og
blöðin látin renna í heitum tómatsaf-
anum, síðan er sítrónusafanum, ásamt
salti, sykri og Worchestershire Sauce
bætt út í. Kælt þar til lögurinn byrjar
að hlaupa, þá er rækjum, olívum, ag-
úrkum og kálinu jafnað saman við.
Sett í form, sem skolað hefur verið úr
köldu vatni. Þegar hlaupið er stíft, er
því hvolft á salatblöð. Skreytt með
steinselju og radísum. Borið fram með
mayonaise.
Tómatar fylltir með rækjum:
1 bolli rækjur
1 flak söltuð síld
6— 8 olívur
6—8 stórir tómatar
steinselja
8 matsk. mayonaise
salatblöð.
Veljið þétta tómata og skerið burt
stilkendann; tómatarnir eru holaðir
að innan, (tómatakjötið má nota í
súpur), látið bíða á köldum stað. Síld-
in, sem áður hefur verið afvötnuð, er
söxuð smátt, einnig olívur og stein-
selja. Blandið saman rækjum, síld, ol-
ívum og steinseljum. — Tómatarnir
eru fylltir með blöndunni og settir á
salatblað. Skreytið tómatana með
mayonaise. (Gott á kalt borð.).
Rœkjusalat:
300—400 gr. rækjur
y4 bolli mayonaise
1 tesk. salt
y4 bolli saxaður laukur
2 harðsoðin egg (söxuð)
1 tómati skorinn í teninga
salatblöð.
Blandið saman í skál mayonaise,
salti og lauk, ásamt eggjum, tómötum
og rækjum. Gott á brauð, salatblað
haft á milli.
Rœkja hefur nú um nokkurt
árabil verið veidd i vaxandi mæli
hér við land, og hefur neyzla
hennar innanlands verið nokk-
ur, en þó miklu meira flutt til
annara landa, fryst eða niður-
soðið. Þykir „Engilrækjan“ is-
lenzka þar hið mesta lostæti. —
í raun réttri ættu íslendingar
sjálfir að borða miklu meira af
rækjunni en þeir hafa gert, og
reyna matreiðslu hennar með
ýmsu móti. Til þess að kynna
íslendingum rækjurétti og auka
markað rækjunnar innanlands
hefur útflutningsdeild SÍS ný-
lega látið prenta snotran pésa
með rækjuuppskriftum og á
hann að fást í öllum búðum, þar
sem rækjurnar eru seldar fryst-
ar. — Samvinnan vill styðja þessa
viðleitni útflutningsdeildarinnar
með þvi að birta hér allmargar
rækjuuppskriftir.
Ost- og rœkjusalat:
300 gr. rækjur
50 gr. ostur
1 epli
y2 dl. soðnar gulrætur
1/2 dl. grænar baunir
5 matsk. mayonaise
2 matsk. súr rjómi.
Ostur, epli og gulrætur er skorið
smátt. Mayonaise jafnað með rjóman-
um og öllu jafnað saman með tveim
göfflum.
Sé salatið haft á brauð, er gott að
hafa salatblað undir á brauðsneiðinni.
Einnig má bera salatið fram í glerskál
og punta með salatblöðum. í þennan
rétt má nota jöfnum höndum ný eða
þurrkuð epli.
Rœkjusalat í karry-mayonaise:
100 gr. rækjur
200 gr. agúrka (ný)
1 salathöfuð
3—4 matsk. mayonaise
1 matsk. rjómi
1 tesk. karry.
Agúrkan og salatið eru skorin smátt.
Karry og rjóma hrært saman við may-
onaisið. Skreytt með harðsoðnum
eggjum, salatblöðum, tómatsneiðum
og agúrkum. Salatið verður að vera
vel kalt, þegar það er framreitt.
II. HEITIR RÉTTIR.
Rækjur í karry:
200 gr. rækjur
2 matsk. saxaður laukur
2 — hveiti
2 — smjörlíki
salt, pipar
y2 tesk. karry
\y2 bolli mjólk.
Smjörlíkið er brætt og laukurinn
látinn út í, þar til hann er mjúkur,
ekki brúnn, hveitið hrært vel saman
við ásamt kryddinu. Mjólkin er sett út
í smátt og smátt og látin sjóða, unz
sósan er orðin vel þykk; hrærið stöð-
ugt í. Bætið rækjunum út í og látið
þær hitna í sósunni. — Borið fram
með hrísgrjónum og soðnum kartöfl-
um.
18