Samvinnan


Samvinnan - 01.09.1954, Page 23

Samvinnan - 01.09.1954, Page 23
2600 BÓKAFLOKKAR SELDIR Hinir hagkvæmu afborgunarskilmálar vorir, sem gera almenningi kleift að koma sér upp góðu heimilisbókasafni fyrir viðráðanlegt verð, hafa þegar hlotið miklar vin- sældir. Kaupendur haja frjálst val um bcekur. ★ ★ Afborgun af bókum allt að kr. 1000.00 að verðmcsti er aðeins kr. 50.00 ársfjórðungslega. ★ Bcekurnar eru afgreiddar til kaupenda strax og pantanir berast. Aldrei fyrr hefur íslenzkum almenningi boðizt slíkt tækifæri til bókakaupa. Vinsamlegast hafið samband við oss, og yður mun fúslega verða veittar allar nán- ari upplýsingar. BÓKAÚTGÁFAN NORÐRI Sambandshúsinu — Sími 3987 — Reykjavík. þáttur í daglegu máli. Oftlega stytta þeir frásögn og gera ljósa og lifandi. „Hann talaði í líkingum og orðkvið- um til þess að hjálpa eftirtekt og skiln- talshættir eru rímaðir, meira eða minna rím í óbundnu máli léttir mjög lesturinn, ef það er notað með hóf- semd og haggar ekki eðlilegri orða- röð. Ýmsir hyggja „stílgáfuna" sérstaka guðsgjöf. Miklu oftar er hún árangur mikillar þjálfunar í hugsun og vand- virkni, er hiklaust strikar yfir og um- semur það sem betur og ljósar má orða. Yztafelli. — Lokið í maí 1954. Jón Sigurðsson. 700 kaupfélagskonur... (Framh. af bls. 15) stöðuvötnin stór og smá. Nálægt Uxavatni mætast Borgarfjarðar- og Árnessýsla og leiðin liggur niður með Biskupsbrekku, um Skjaldbreiðar- hraun, Draugabrekkur, Tröllháls, Ormavelli, framhjá Sauðkluftavatni og milli Lágafells og Ármannsfells niður á Hofmannaflöt. í Bolabás er farið út úr bílunum og hvílzt góða stund og veitt brauð og öl eins og daginn áður í Hafnarskógi og var það jafnan vel þegið. Ætla mætti að þreyta væri farin að gera vart við sig eftir tveggja daga stans- lítið áframhald. En svo virtist ekki vera, og var ekki ósjaldgæft að frúrn- ar brygðu sér í leiki, hlaupa í skarð- ið o. þ. h. eftir að hafa neytt hressing- arinnar. Var stundum komið mið- nætti er farið var úr Bolabás, síðasta áfangann að Selfossi — en að vísu áttu þá margar sveitakonurnar góðan spöl eftir heim til sín. Veit ég að þær munu allar hafa sent stjórn K. Á. og kaupfélagsstjóranum hlýjar hugsanir og þakklæti fyrir ferðalagið. Ég hygg, að segja megi, að þessar húsmæðraferðir Kaupfélags Árnes- inga hafi tekizt eins vel og til var ætlazt af þeim, sem stofnuðu til þeirra. Húsmæðurnar voru áreiðan- lega fróðari um land og fólk, þegar þær komu heim, en þegar þær fóru. Þær höfðu séð margt fallegt og skemmt sér prýðilega, og meira verð- ur varla krafizt af tveggja daga ferða- lagi. Þessi húsmæðraferðalög á vegum kaupfélaganna eru að mínu áliti þarf- leg og góð nýung og sannarlega þess verð að þeim verði áfram haldið og upp tekin af fleiri félögum. Ragnar Asgeirsson. 31.000.000 bílar... (Framh. af bls. 17) flestar hugmyndir sínar hin síðustu ár frá flugvélum. Á stríðsárunum sá hann orrustuflugvél, sem kölluð var Elding (P-38) og varð mjög hrifinn af útliti hennar. Þar fékk hann hug- myndina að „uggunum“, sem eru á aftara aurbretti nýjustu Buick og sér- staklega Cadillac bifreiðanna. Öðru sinni sá hann þrýstiloftsflugvélina Loftgeislann og má sjá eftirmynd hennar í „Eldfuglinum“, sem er fyrsti þrýstiloftsbíllinn, er GM hefur verið að gera tilraunir með. General Motors hefur nú tekið upp þann sið að halda árlega mikla sýn- ingu á framtíðarbílum sínum, og fæst þannig fyrirfram nokkur hugmynd um undirtektir manna undir hinar ýmsu gerðir. Bílarnir verða nú með ári hverju útbreiddara tæki og í höndum fleiri manna, bæði erlendis og hér á landi. I bæjum hafa menn hundruð ef ekki þúsundir þeirra fyrir augum sér á degi hverjum. Það skiptir því ekki svo litlu máli, að þeir séu fallegir og þægi- legir fyrir augað. Að því marki vinna bílateiknararnir og ekki síst Earl, sem er áhrifamesti bílateiknari heims. 23

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.