Samvinnan - 01.09.1958, Blaðsíða 20
Ódýrasta trygging, sem hægt er að fá
ÞaS er hverjum hugsandi manni nauð-
synlegt og skylt að eiga líftryggingu.
Þetta er skylda gagnvart fjölskyldu og
henni til öryggis, svo að kona og börn
standi ekki uppi með tvær hendur
tómar, ef fyrirvinnan fellur frá.
Líftryggingar hafa hingað til verið
með þeim hætti hér á landi, að hver
einstakur hefur orðið að tryggja fyrir
sig, og hafa því alltof fáir menn gert það. En nú hefur Líf-
tryggingafélagið Andvaka tekið upp nýja gerð trygginga,
sem er þannig, að bæði munu miklu fleiri menn en áður
kaupa sér líftryggingu, og þeir munu geta fengið hana ó-
dýrari en nokkru sinni fyrr. Er þetta með svokölluðum hóp-
líftryggingum, þar sem heilir hópar manna, til dæmis
starfsfólk fyrirtækja, geta tryggt sig í einu lagi.
Hóptrygging er aðeins áhættutrygg-
ing þannig, að umsamin upphæð er
greidd aðstandendum, ef hinn tryggði
fellur frá. Hún gildir frá ári til árs, en
er ekki samningur til langs tíma og
ekki sparnaðarráðstöfun á sama hátt
og venjuleg líftrygging.
Kynnið yður hóplíftryggingar And-
vöku. Verð þeirra er ótrúlega lágt, og það öryggi, sem þér
getið skapað fjölskyldu yðar, mjög mikið. Athugið, hvort
starfsbræður yðar eða félagar í einhverju félagi geta ekki
sameiginlega skapað sér öryggi líftryggingar á hagkvæman
hátt. Ef þér eruð að byggja eða afla atvinnutækja að ein-
hverju leyti með lánsfé, er það meira virði fyrir fjölskyld-
una en nokkru sinni, að þér séuð vel líftryggður.
Leitið allra upplýsinga í skrifstofu Andvöku í Sambandshúsinu í Reykjavík eða hjá umboðsmönnum fé-
lagsins (t. d. kaupfélögunum) um land allt. Dragið ekki að koma öryggi fjölskyldu yðar í gott lag. Eng-
inn veit, hvenær það kann að vera um seinan.
Líftryggingafélagið A N D V A K A
i
i
i
i
!
i
Á
Orösending til eigenda Massey-Harris-
dráttarvéla og -verkfæra
f
Þar sem HARRI FERGUSON- og MASSEY-HARRIS-fyrirtækin hafa
nú verið sameinuð í eitt fyiirtæki, sem ber nafnið MASSEY-FERGUSON,
fellur það í okkar hlut að sjá um og útvega varahluti í Massey-Harris-
dráttarvélar og -verkfæri. Þar sem mörg af þessum verkfærum eru orðin
gömul, er erfitt að gera sér grein fyrir, hvaða varahluti vantar. Er það því
ósk okkar, að bændur sendi okkur upplýsingar um, hvaða vélar þeir eiga
af Massey-Harris-gerð.
Eftirfarandi þarf að taka fram: Nafn tækis, serial-númer, mótor-númer
og hvaða ár flutt til landsins. Þessar upplýsingar eru mjög áríðandi, svo að
hægt sé að byggja upp nauðsynlegan varahlutalager í vélarnar.
Að sjálfsögðu tökum við á rnóti varahlutapöntunum í þessar vélar strax,
þó að nokkur dráttur verði, unz hægt verður að afgreiða varahlutina í þær.
JOAai£a/Uðé£o/t A/
Snorrabraut 56, Reykjavik, simi 17080
20 SAMVINNAN