Samvinnan - 01.01.1966, Síða 6
Samnorræn samvinnuráðstefna
um rafeindavélar
Dagana 10.—12. nóvember s.l. komu fulltrúar frá heildarsam-
tökum samvinnumanna á Norðurlöndum (öðrum en íslandi) til
ráðstefnu í Osló til að skiptast á upplýsingum, sem fengist hafa
við reynslu af notkun rafeindagagnaúrvinnsluvéla. Var þetta
fjórða ráðstefnan af þessu tagi, og kom skýrt í ljós að þörf er fyr-
ir árlegar ráðstefnur. Hin hraða framþróun, sem á sér stað í raf-
einda-gagnaúrvinnslu (elektronisk databehandling) hefur í för
með sér, að nauðsyn er á að starfsmenn samvinnusamtakanna,
sem um þessi mál fjalla, skiptist sem örast á upplýsingum, sem
reynsla þeirra af meðferð vélanna veitir. Var ákveðið, að næsta
ráðstefna yrði haldin i Kaupmannahöfn.
Hjá öllum þeim samvinnusamtökum, sem hlut eiga að máli, er
nú í ráði að auka sem mest notkun rafeindavéla þessara. Er því
mikil þörf á sérmenntuðum mönnum um meðferð vélanna, og
var þjálfun þeirra eitt þeirra mála, sem mest voru rædd á ráð-
stefnunni. Þá var rætt um möguleika á sameiginlegum innkaup-
um á ýmiskonar varningi varðandi vélarnar o. fl.
í forsæti á ráðstefnunni var Carl-Axel Svedberg og ritari
Gunnar Höglin, báðir frá KF, sænska samvinnusambandinu.
STARFSMANNASKIPTI
Dagur Þorleifsson
Haral'dur Einarsson
Jóhann Bjarnason
Sú breyting verður á starfsliði Samvinnunnar nú um miðjan janúar,
að Dagur Þorleifsson blaðamaður lætur af störfum sem fastur starfs-
maður samkvæmt eigin ósk.
Dagur hefur verið blaðamaður við Samvinnuna í sex og hálft ár og
skrifað í blaðið fjölda greina auk þess sem hann hefur þýtt greinar
og smásögur. Nú hin síðari ár hefur hann einnig séð um uppsetningu
og niðurröðun efnis í ritið. Þá hefur hann og að langmestu leyti séð
um útgáfu starfsmannablaðsins Hlyns.
Samvinnan og Hlynur þakka Degi Þorleifssyni fyrir margra ára
þjónustu og óska honum gæfu og gengis í hverju því, sem hann tekur
sér fyrir hendur.
Þá hefur í öðru lagi orðið sú breyting á, að Haraldur Einarsson,
sem verið hefur starfsmaður Sambandsins í mörg ár, tók fyrir nokkru
við störfum í Fræðsludeild og meðal annars afgreiðslu Samvinnunnar
og Hlyns. Nokkur undanfarin ár hefur Jóhann Bjarnason fulltrúi í
Bifröst — fræðsludeild og starfsmaður Bréfaskóla SÍS haft af-
greiðslu ritanna með höndum, en gat það ekki lengur vegna mikilla
anna. Samvinnuritin þakka honum fyrir þau störf um leið og Harald-
ur Einarsson er boðinn velkominn til nýrra verkefna.
Ritstj.
Forsíðumynd:
Háteigskirkja í
Reykjavík.
Arkitekt:
Halldór H. Jónsson.
Ljósm.: Þorvaldur
Ágústsson.
■
a
Efni:
2. Samnorræn samvinnuráðstefna um rafeinda-
vélar.
Starfsmannaskipti.
3. Við áramót,
Erlendur Einarsson, forstjóri SÍS.
4. Bréfaskólinn á tímamótum.
5. Að þykja vænt um hið gamla og fagna því
nýja —
sagt frá opnunarhátíð verzlunarhúss Kaupfé-
lags Húnvetninga á Blönduósi.
8. Samvinnustarf í sjötíu ár á bökkum Blöndu,
Páll H. Jónsson.
9. Krossgátan.
11. Kaupfélagsstjórafundurinn 1965.
12. Kveðið á skjáinn.
13. Minningarorð um Vigfús Guðmundsson,
Páll H. Jónsson.
Veraldarsaga Menntamálaráðs,
Jónas Jónsson frá Hriflu.
14. Heimilisþáttur,
Bryndís Steinþórsdóttir.
16. Herra Monroe sigrar leðurblöku,
smásaga eftir James Thurber, Heimir Pálsson
þýddi.
17. Föndurkrókurinn.
Dægramunur,
ljóð eftir Sigurð Jónsson frá Brún.
19. Barn,
ljóð eftir Valborgu Bentsdóttur.
Samvinnan
JANÚAR 1966 — LX ÁRGANGUR 1.
Útgefandi: Samband íslenzkra samvinnufélaga.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Páll H. Jónsson.
Blaðamaður:
Dagur Þorleifsson.
Ritstjórn og afgreiðsla í Sambandshúsinu, Reykjavlk.
Ritstjórnarsími: 17080.
Verð árg.: 200,00 kr., í lausasölu kr. 20.00.
Gerð myndamóta: Prentmót h.f.
Prentverk: Prentsmiðjan Edda h.f.
2 SAMVINNAN