Samvinnan - 01.01.1966, Síða 26
megin, að langmestu leyti
í beinum eða óbeinum
tengslum við samvinnufé-
lögin bæði og starfsemi
þeirra og með þeim mynd-
arbrag, sem raun ber vitni.
Árið 1961 byggði Kaupfé-
lag Húnvetninga svo útibú
í þorpinu vestan Blöndu. Er
það matvörukjörbúð.
Framanritað segir aðeins
brot af sögu Kaupfélags
Húnvetninga í 70 ár, en við
það verður að sitja. Vitan-
lega háði félagið margs
háttar baráttu við illt ár-
ferði, óhöpp, erfitt verzlun-
arárferði, kreppur og margs
konar árekstra innan dyra
og utan. Það hafa öll kaup-
félög gert. En þegar litið er
á sögu þess í heild kemur í
ljós, að það hefur verið far-
sælt og unnið sér traust og
trúnað héraðsbúa, sem stað-
ið hafa fast saman um félag
sitt. Það hefur verið heppið
með forustumenn. Því hefur
tekizt að vera hjálparhella
og bjargvættur og átt drjúg-
an þátt í umbótum og fram-
förum í fögru og frjósömu
héraði. Því hefur verið
stjórnað af framsýni og
gætni. Við þessi merku
tímamót horfir kaupfélags-
fólkið yfir farinn veg og sér
í' sögu félags síns margar
sannanir fyrir yfirburðum
samvinnuhreyfingarinnar og
horfir fram á veginn björt-
um augum og trúað á mátt
samvinnu og bræðralags.
(Heimildir: Tímarit fyrir
samv.fél. 16. árg., Samvinn-
an 1946 og óprentuð handrit
að sögu samv.fél. í Húnav.-
sýslu eftir Jónas Bjarnason.)
Bréfaskólinn
Framh. af bls. 4.
og mennta, að ekki sé mögu-
legt að hljóta undirbúning eða
þreyta námsbraut til enda í
bréfaskólum þar í landi.
Sænska Samvinnusamband-
ið stofnaði bréfaskóla árið
1919 undir forustu hinnar
miklu samvinnuhetju og
menntafrömuðar í samvinnu-
fræðum, Haralds Elldings, en
hann byggði síðar upp mennta-
setur samvinnumanna í Vár
gárd við Saltsjöbaden. Bréfa-
skóli sænska Sambandsins náði
þegar miklum vinsældum og
mikilli fullkomnun. Hann var
í upphafi stofnaður til þess
einkum að auðvelda menntun
og þjálfun starfsfólks sam-
vinnufélaganna. En ekki leið
á löngu þar til að hann færði
út starfssvið sitt og varð
menntastofnun, sem veitti al-
hliða menntun. Hóf þá Ellding
máls á því, að fleiri þjóðhreyf-
ingar en samvinnuhreyfingin
yrðu virkir aðilar að rekstri
skólans. Leiddu þær umræður
til þess, að verkalýðshreyfingin
og bindindishreyfingin urðu
tengdar Bréfaskólanum og
rekstri hans og námsefni var
hagað í samræmi við það. Fleiri
aðilar komu síðar til sam-
starfsins, þótt smærri væru.
Eftir sem áður var skólinn rek-
inn af sænska Samvinnusam-
bandinu í orði kveðnu, en að-
ild annarra meira óbein, allt
til ársins 1949. Það ár var
skólanum breytt í samvinnu-
félag allra fyrr nefndra aðila.
Óx nú enn starfsemi hans, nýir
aðilar bættust við, rekstrar-
grundvöllur var tryggður og
22 SAMVINNAN