Samvinnan - 01.01.1966, Qupperneq 27
Holts g
□ □
.VW'JC’!* :•.*»
Leitið upplýsinga um meira en 6 0 viðhalds- og viðgerðarefni s
Móðulausar
rúður
Strjúkið rúðurnar einu sinni
með móðuklútnum og þær
haldast hreinar og móðufríar
í lengri tíma. Klútarnir geymast
lengi í plastpoka, sem fylgir.
Anti-Mist Cloth
Isvörn
í rúðusprautur
Mátuleg blöndun á sprautu-
geyminn kemur I veg
fyrir að I honum frjósi
Losar snjó og ísingu og heldu
þeim hreinum og tærum.
Winter Screenwash
S t ö ð v a r
vatnskassaleka
Ein áfylling af Redweld vatns-
kassaþétti er varanleg viðgerð,
sem miklar hitabreytingar eða
frostlögur hefur engin áhrif á.
Radweld
R y ð o 11 a
á sprautubrúsa
Inniheldur grafít; sem gefur
langvarandi ryðvörn.
Hentugt til að úða með hluti,
sem erfitt er áð ná til.
Rustola
Holts vörurnar fást á stærri benzínstöðvum,
hjá kaupfélögunum og Véladeild SlS Ármúla 3
nýjar kröfur um námsefni
komu til sögunnar. Vegna
Irnnar miklu tækniþróunar,
sem orðið hefur í Svíþjóð á
síðari árum, hefur aukning
skólans orðið mest í iðn- og
tæknifræðum.
Fyrir nokkru hófu trúnaðar-
menn Sambands íslenzkra
samvinnufélaga máls á því við
stjórn Alþýðusambands ís-
lands, .hvort ekki væri tíma-
tært að feta í fótspor Svíanna
eftir fyrirmynd Elldings, og
hefja samstarf þessara tveggja
þjóðhreyfinga um rekstur
bréfaskóla, með sjónarmið
þeirra beggja fyrir augum auk
almennra sjónarmiða. Umræð-
ur og athuganir á málinu hafa
leitt til þess, að samkomulag
náðist um rekstur Bréfaskól-
ans og nú um áramótin verð-
ur hann sameignarstofnun
samvinnuhreyfingarinnar og
verkalýðshreyfingarinnar. Heit-
ir hann hér á eftir Bréfaskóli
SÍS og ASÍ. Reglugerð fyrir
sameignarstofnunina hefur
verið lögð fyrir stjórnarfundi
beggja sambandanna, Sam-
bands íslenzkra samvinnufé-
laga og Alþýðusambands ís-
lands og var hún samþykkt á
báðum fundunum.
Bréfaskóli SfS og ASÍ á sam-
kvæmt reglugerð „að veita að-
stöðu til menntunar og fræðslu
með bréfakennslu eða á annan
hátt, sem æskilegt þykir og
tiltækilegt. Aðaláherzla hvílir
á eftirfarandi:
a) Félagslegri og hagrænni
(ökonomiskri) fræðslu.
b) Atvinnulífi íslendinga og
hagnýtri menntun í tengsl-
um við það,
c) Almennri menntun.
Öll kennsla á vegum skólans
skal vera hlutlaus í trúmálum
og stjórnmálum.“
Þótt skólinn verði nú sam-
eignarstofnun samvinnuhreyf-
ingarinnar og verkalýðshreyf-
ingarinnar, heimilar reglugerð-
in „að veita öðrum samtökum
á íslandi aðild að rekstri skól-
ans.“ „Þau samtök verða að
vera lýðræðisleg og í þágu al-
mennings,“ segir í reglugerð-
inni.
Samkvæmt reglugerð þeirri,
er nú hefur verið samþykkt,
er skólanum stjórnað af
þriggja manna framkvæmda-
nefnd. Einn fulltrúi er frá
hvorum aðila, samvinnuhreyf-
ingunni og verkalýðshreyfing-
unni og skal tilnefndur til
tveggja ára í senn. Forstöðu-
maður skólastarfs á vegum
samvinnuhreyfingarinnar á
sæti í framkvæmdanefnd, en
hann er jafnframt skólastjóri
Bréfaskólans.
Framkvæmdanefndin hefur
verið skipuð og eiga sæti í
henni Erlendur Einarsson, for-
stjóri SÍS, Hannibal Valdi-
marsson, forseti ASí og Guð-
mundur Sveinsson, skólastjóri.
Sú breyting, sem verður á
Bréfaskólanum nú með aðild
ASÍ, verður einkum fólgin í
því, að skólinn færir út starfs-
svið sitt og kennslubréfaflokk-
um (námsgreinum) fjölgar.
Alþýðusamband Islands mun
hið fyrsta láta semja kennslu-
bréf í fjórum greinum: a) Hag-
ræðingu, b) bókhaldi verka-
lýðsfélaga, c) vinnulöggjöf,
eins og hún horfir við verka-
lýðshreyfingunni og beinist að
henni, d) sögu verkalýðshreyf-
ingarinnar á Islandi.
Samband íslenzkra sam-
vinnufélaga undirbýr kennslu-
bréf í nýjum greinum, einkum
þeim er varða undirbúnings-
menntun og þjálfun starfsfólks
SAMVINNAN 23