Samvinnan - 01.01.1966, Page 28
samvinnufélaganna. Verður
þar fjallað um kjörbúðir, búð-
arstörf í samvinnuverzlunum,
deildarstjórn, vandamál í sam-
bandi við vörurýrnun og verk-
stjórn í frysti.húsum. Þá verða
einnig samin kennslubréf í
sögu samvinnuhreyfingarinn-
ar íslenzku og um mannleg
samskipti (Public Relations).
Almennt fræðslu- og náms-
efni verður eftir sem áður
veigamikill þáttur í starfi skól-
ans og verður fyrst um sinn
sniðinn við undirbúnings-
menntun unglinga, miðað við
landspróf. Hitt gera forustu-
menn skólans sér vonir um,
að í þeim efnum verði innan
tíðar hægt að færa út kvíarn-
ar eða taka upp breytingar og
að menn geti að lokinni skóla-
göngu stundað framhaldsnám
í Bréfaskóla SÍS og ASÍ.
Til viðbótar við hið sérstaka
framlag verkalýðshreyfingar-
innar og samvinnuhreyfingar-
innar til fjölbreytni og efling-
ar skólanum, verður brotið upp
á ýmsum nýmælum öðrum í
starfsemi hans. Þar má sér-
staklega nefna: a) Aðstoð við
fjölmenn heildarsamtök, b)
aðstoð við fræðslumálastjórn-
ina, c) aðstoð við starfshópa,
d) stuðningur við úrbætur
þjóðfélagsvandamála.
Flest þessara mála eru á
frumstigi og enn til umræðu.
Þó hefur tveim fjölmennum
heildarsamtökum verið gefinn
kostur á að fá gefna út
kennslubréfaflokka, er orðið
gætu þeim til stuðnings og
nytsemdar. Það eru Ung-
mennasamband íslands,
kennslubréf um ýmsa þætti
æskulýðsmála, og Kvenfélaga-
samband Islands, bréf um að-
ild konunnar og breyttar að-
stæður í nútíma þjóðfélagi. Þá
hafa ákveðnir starfshópar snú-
ið sér til Bréfaskólans um fyr-
irgreiðslu, t. d. starfsfólk í
bönkum. Enn er áformað að
gefa út svo fljótt sem verða
má kennslubréfaflokka um
Bifreiðina og samskipti manna
við hana og Öryggis- og trygg-
ingamál. Hefur þegar verið
tryggð aðstoð Véladeildar SÍS
og Samvinnutrygginga. Er
þarna um þjóðfélagsvandamál
að ræða, sem krefjast úrbóta
með almennri vakningu og
fræðslu.
Bréfaskóli SÍS hefur nú um
aldarfjórðungs skeið verið
merkilegur aðili í fræðslumál-
um þjóðarinnar og unnið sér
álit og traust. Það er ánægju-
legt að hann heldur nú upp á
afmæli sitt með því að auka
svo starfsemi sína og ganga
t:l samstarfs við verkalýðs-
hreyfinguna um eflingu al-
mennrar menntunar og úrbæt-
ur í vandamálum þjóðfélags-
ins.
Sjálfsnám .hefur jafnan ver-
ið nokkurs metið hér á landi,
erda var sú tíð að fæstir áttu
völ skólagöngu og urðu því að
svala menntaþorsta með sjálfs-
rámi. Nú er aðstaðan að vísu
breytt og skólar margir. En
j'egar á allt er litið eru þó
skólar einungis dýrmæt ot
rauðsynleg hjálpartæki. Allt
hið raunverulega nám byggist
eft'r sem áður fyrst og fremst
á starfi og hæfileikum nem-
endanna sjálfra. Kennari
nokkur, sem um margra ára
skeið stundaði starf sitt h'f
gjarna sína fyrstu kennslu-
sturd á haustin með því að
segja við nemendur sína: Ég
get því miður ekkert kennt
ykkur, en ég get hjálpað ykk-
rr til þess að læra og það vil
ég svo sannarlega gera. Eins
er það víst að þið getið kennt
mér marga hluti. Okkur er
ætlað að vinna saman í vet-
ur og þetta samstarf, sem nefnt
er kennsla og nám, ber því að-
eins árangur, að við leggjum
fram krafta okkar og vinnum
af einlægum huga og löngun
til þess að verða vaxandi menn
og konur. Nám er vinna. Skól-
inr, kennarinn og námsbæk-
rrnar eru sú hjálp, sem þjóðfé-
lagið leggur ykkur til. Ykkar
er að nota þá hjálp og nema.
Bréfaskóli er í fullu sam-
ræmi við reynzlu þjóðarinnar
af sjálfsnámi og ómetanlegt
hjálpartækl í þeim efnum. Með
aðstoð hans geta stundað nám
hver sem er og hvenær sem
er meðan ævidagar endast.
☆
Vegir í Japan eru víöa slæmir, líkir því sem viö eigum aö venjast.
Japanir hafa því orðið að leggja sérstaka áherzlu á framleiðslu
sterkra og góðra hjólbarða, sem henta þarlendum malarvegum.
Hér á landi hafa japanskir hjólbarðar frá Yokohama gefið mjög góða
raun. Fáanlegir í ýmsum mynztrum og af mörgum gerðum undir
flest farartæki. Einkaumboð Samband ísl. samvinnufélaga,
Ármúla 3, sími 38900
24 SAMVINNAN
Eins og áður er sagt, annast
Jóhann Bjarnason allan dag-