Samvinnan - 01.01.1966, Page 31
eina úrræðið til svölunar
þeirri þrá.
— Á hvaða aldri eru nem-
endurnir?
— Flestir eru þeir á aldrin-
um 16—30 ára. Annars er nú
yngsti nemandinn 12 ára en
sá elzti 72 ára.
— Og hvers vegna heldur þú
að 72 ára gamall maður sé
að læra ensku?
— Hann er að læra ensku
til þess að geta talað við
barnabörn sín í Ameríku, þegar
hann fer þangað að heimsækja
þau.
— Hvort eru fleiri nemendur
úr sveitum eða kaupstöðum?
— Þótt virðast kunni ein-
kennilegt, munu þeir vera
fleiri sem stunda nám við skól-
ann úr kaupstöðum en sveit-
um. Þótt ekki séu enn ná-
kvæmar tölur fyrir hendi í
þessu efni frá s.l. ári, má geta
þess, að á fjórða hundrað nem-
enda munu nú vera úr Reykja-
vík og Gullbringusýslu, nálægt
100 frá Akureyri og Eyjafirði
og litlu færri úr Árnessýslu. En
á öllum þessum landsvæðum
eru stórir kaupstaðir.
— Hvað kostar að stunda
nám í Bréfaskólanum.
— Það fer nokkuð eftir
námsmagni í hverjum flokki
og kostar frá 250 krónum upp
í 650 krónur hæzt. Allmörg
námsskeið kosta nú 450—500
krónur auk svarabókar sem
kostar kr. 10.00 í hverjum
flokki. Skólinn er ekki rekinn
með fjárhagslegan hagnað
fyrir augum, en er þó ætlað
að standa undir tilkostnaði að
verulegu leyti.
— Hvað fleira vildir þú segja
lesendum Samvinnunnar um
Bréfaskólann?
— Ekki hefur talizt fært að
starfrækja víðtækara nám við
Bréfaskólann en sem nægja
myndi undir landspróf, gagn-
fræðapróf eða hliðstæður þess.
Nám við skólann gefur engin
bein réttindi, þar eð ekki er
unnt að sannprófa það né á-
byrgjast að nemendur vinni
úrlausnir sínar án aðstoðar.
Að vísu er loforð um það hið
einasta sem þeir eru beðnir að
undirrita við inngöngu í nám.
En námsefni nægir t. d. undir
30 lesta skipstjórnarpróf og
hliðstætt vélfræðipróf, svo
nokkuð sé nefnt. Bréfaskóla-
nám mun nokkru seinfærara
en nám við aðra skóla. Á hinn
bóginn er hægt að lesa betur
undir úrlausnir, þar sem nem-
andi er ekki bundinn við
bekkjartíma og kennari kall-
ar ekki til yfirheyrslu að
morgni. Má ég að lokum
þakka nemendum góða og sí-
vaxandi samvinnu, en hún á
veigamikinn þátt í að sá meg-
intilgangur skólans takist, að
verða þeim að sem mestu og
beztu gagni.
BEDFORD!
VIÐ ALLRA HÆFI
Kaupendur vörubíla um allan heim völdu BEDFORD umfram alla aðra vörubíla árið 1964. Ástæðan: sérstak-
ur léttleiki og lipurð í akstri, hagkvæmur rekstur og góð ending.
BEDFORD hefur yfir 45% af öllum útflutningi brezkra vörubíla.
BEDFORD!
BEDFORD!
er mest seldi vörubíllinn á fslandi, Finnlandi, Dan-
mörku, Ástralíu, Nýja Sjálandi, Belgíu og mörgum
Asíu- og Afríkuríkjum.
er mest seldur af brezkum vörubílum I Svíþjóð,
Hollandi, Sviss, Noregi, Frakklandi og Austurríki.
Gjörið svo vel og leitið nánari upplýsinga
BEDFORD!
Véladeild SfS, Ármúla 3. Sími 38900
SAMVINNAN 27