Samvinnan - 01.08.1976, Qupperneq 4
, ^ y. **., *' ítf;
W/
■ J Jp Fi 7 2 J 1 á w if
1 M
í r j ifsy
h] iw i
TEXTT:
GYLPI GRÖNDAL
MYNDIR:
KRISTJÁN P. GUÐNASON
Á myndinni hér að ofan sést hluti
athafnasvæðis KS í Vík, kaupfé-
lagssmiðjurnar, frystihúsið og
fleira. Hér á neðri myndinni sér
inn í nýju kjörbúðina við Víkur-
hraut 5.
— Ég er fæddur á Siglufirði
lýðveldishátíðarárið 1944. For-
eldrar mínir eru Guðrún
Matthiasdóttir og Gísli Þ. Stef-
ánsson, sem var hótelstjóri á
Siglufirði, en lézt 1958. Ég er
uppalinn fyrir norðan; átti þar
heima, þar til við fluttum til
Reykjavíkur 1960. Ég fór í
Verzlunarskólann og lauk prófi
þaðan, en vann siðan í sex ár
hjá Eyjólfi K. Sigurjónssyni
við bókhalds- og endurskoðun-
arstörf. Ég vann um stund hjá
Loftleiðum; í eitt ár var ég
skrifstofustjóri hjá Bifreiðum
og landbúnaðarvélum, — en
frá 1. mai 1974 hef ég verið
kaupfélagsstjóri hér . . .
Við erum staddir í Vik í Mýr-
dal, sitjum á skrifstofu Kaup-
félags Skaftfellinga og ræðum
við Matthias Gíslason, kaup-
félagsstjóra. Við lögðum af stað
frá höfuðborginni i dæmigerðu
íslenzku dumbungsveðri. Hér í
Vik er hins vegar sannkallað
suðurlandaveður. Það á vel við
að heimsækja Kaupfélag
Skaftfellinga að þessu sinni,
þvi að sjötíu ár eru liðin frá
stofnun þess í ár. Auk þess er
það eitt af hlutverkum Sam-
vinunnar að kynna kaupfélög
landsins, jafnt í strjábýli sem
þéttbýli; hitta að máli menn-
ina sem standa í eldlínunni,
kynnast viðhorfum þeirra og
vandamálum. Við höldum á-
fram að spjalla við Matthías
Gíslason um sjálfan hann og
starfsemi Kaupfélags Skaft-
fellinga:
— Ég kann ljómandi vel við
mig. Áður en ég kom hingað
gerði ég mér enga grein fyrir
í hverju starf kaupfélagsstjóra
væri fólgið. Og ég verð að játa,
að það hefur reynzt margfalt
umfangsmeira og erfiðara en
ég bjóst við. Kaupfélagsstjóri
tekur drjúgan þátt í athöfnum
fólks á sínu svæði. Hann er i
rauninni við vinnu sína allan
Samvinnan
HEIMSÆKIR
VÍK í MÝRDAL
4