Samvinnan


Samvinnan - 01.08.1976, Qupperneq 12

Samvinnan - 01.08.1976, Qupperneq 12
írski rithöfundurinn Brendan Behan fæddist í Dýflinni árið 1923, en lézt 1964 aðeins 41 árs gamall. Um hann hefur verið sagt, að hann hafi haft til að bera alla þá upureisnargirni, lífsgleði og ást á orðræðum og brennivíni, sem einkennandi séu fyrir frlendinga. Kunnasta verk hans hér á landi er leikritið Gísl, sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu fyrir nokkrum ár- um. Árið 1956 olli Behan hneyksli í hrezka útvarpinu. Honum varð það á að tæma eina viskiflösku, áður en hann mætti til viðtals. Eftir það var meira rætt og ritað um drykkjuskap Behans en rit- verk hans — jafnvel birtar af hon- um myndir einsog sú sem sést hér að neðan og er tekin úr virðulegri danskri bókmenntasögu. mér, var blátt ullartau og það var hreint ekki sem verst. Þær saumuðu buxurnar og þær urðu ósköp venjulegar. Það er ekki hægt að breyta svo mikið út af með drengjabuxur, þær líkjast hverjar öðrum. Þó þurfti ég að segja þeim að vera ekki að ómaka sig við að festa þrjá litla hnappa utan- vert á hvora skálm. Það var allt í lagi með vestið, jakkinn myndi líka hylja það. En jakk- inn sjálfur. Þar stóð hnífur- inn í kúnni. Kragahornin voru lítil og vesældarleg eins og þau, sem sjást á myndum í Ringblöðun- um af John L. Sullivan eða Jim hermanni og tölurnar voru á stærð við undirskálar eða fjári nálægt því og mér lá við gráti, þegar þær voru festar á og hljóp niður til mömmu og grátbændi hana um að gefa mér einhvers konar önnur föt, jafnvel peysu og buxur held- ur en að stilla mér upp frammi fyrir fólki í þessari múnder- ingu. Mamma sagði, að það væri mjög fallegt af ungfrú McCann og Jack frænku að leggja á sig alla þessa fyrirhöfn og kostnað og ég væri mjög vanþakklátur að kunna ekki að meta það. Pabbi sagði, að ungfrú McCann væri svo góður klæðskeri, að fólk dæi til þess að komast í það, sem hún hefði saumað og handaverk hennar væri að finna í öllum beztu kirkju- görðunum. Hann hló sig mátt- lausan af þessu og sagði, að nógu slæmt hefði það verið fyrir sig að vera sendur niður i Nyrðra-Williamsstræti í plómulitu flaueli og knippling- um og ég ætti ekki að vera að fárast yfir fáeinum stórum töl- um og litlum hornum. Hann bað mig að gleyma ekki að fara snemma á fætur á ferm- ingardaginn minn og leyfa sér að sjá mig áður en hann færi til vinnu. Hollt væri að byrja daginn með dálitlum hlátri. Mamma sagði honum að hætta þessu og láta mig í friði og sagðist vera viss um, að þetta yrðu indælisföt og Jack frænka keypti aldrei óvandað efni heldur það, sem entist i það óendanlega. Þetta fór næstum alveg með mig og ég hljóp út í gegnum forstofuna og upp á horn, tilbúinn að skæla úr mér augun, ég var bara ekki svo gefinn fyrir skælur. Ég var hneigðari fyrir bölv og ragn og ég bölvaði öllum mínum ættingjum, ekki sízt föður mínum duglega og fór að hugsa um, hversvegna hann hefði ekki kyrkzt í knipplingakrag- anum, þegar ég mundi, að þetta var synd og ég var í þann veg- inn að fermast og ég varð að stilla mig og halda áfram að lifa í ótta við þann dag, þegar ég færi í jakkann. Dagarnir liðu og ég þurfti að máta aftur og aftur og öll gamalmennin í húsinu komu upp til þess að líta á fötin og fengu í nefið og sopa úr bjór- könnunni og óskuðu mér lang- lífis og heilsu til að nota föt- in og slíta þeim og þau eyddu svo miklum tíma í að skoða þau í krók og kring, að aftan og framan og á hlið, að ung- frú McCann hafði ekki tíma til þess að sauma frakkann og það var því eins og bænheyrsla, þegar farið var með mig nið- ur í Talbotstræti og ég klædd- ur í dökkan frakka með belti, alveg eins og fullorðinn karl- maður. Og skórnir minir og hanzkarnir voru svo dýrir og nýtízkulegir, að ég hugsaði með mér, að engin þörf væri að láta nokkurn sjá fötin með litlu hornunum og stóru tölun- um. Ég gæti verið í frakkanum allan daginn, í kirkjunni og úti á eftir. Kvöldið fyrir fermingardag- inn færði ungfrú McCann mömmu fötin mín, kyssti mig og sagði, að ég skyldi ekkert vera að ómaka mig við að þakka sér fyrir. Hún myndi gera meira en þetta fyrir mig og hún og amma grétu og fengu sér síðan neðan í því í krafti þess, að ég var nú orð- inn svona stór og það á tólf árum, sem þeim virtist nú ekki ýkjalangur tími. Pabbi sagði við mömmu á meðan ég var að baða mig framan við arininn, að ungfrú McCann hefði alltaf þótt afskaplega vænt um mig frá því ég fæddist. Þegar mamma var á spitala tók hún mig í íbúðina til sín og tók afskaplega nærri sér að þurfa að skila mér aftur. Um morguninn fór ég á fæt- ur og frú Rooney, sem átti heima í næstu íbúð, kallaði inn til mömmu, að Liam hennar væri ennþá í bælinu og sýndi enga tilburði til þess að hreyfa sig þaðan og hún héldi, að bölvun hvíldi yfir sér, sama hvort væru jól eða páskar, alt- arinsganga eða ferming, allt gengi á afturfótunum og hún væri mest hissa á því, að vera ekki orðin galin og komin á vitlausraspítalann fyrir löngu. Síðan æpti hún aftur á Liam, skipaði honum að fara á fæt- ur og þvo sér og klæða. Og mamma hrópaði á mig, þó að ég væri að hnýta bindið mitt og svona héldu þær áfram eins og snarvitlausar kerlingar. þangað til við Liam vorum loksins tilbúnir og hann kom inn til okkar til að sýna mömmu fötin sín og hún gaf honum sexpens, sem hann stakk í vasa sinn og frú Rooney kallaði á mig inn til sín, svo að ég gæti sýnt henni fötin mín. Ég kom rétt aðeins í dyrnar og hneppti ekki frá mér frakkanum, þreif bara sex- pensið úr höndunum á henni og þaut niður stigann eins og fjandinn væri á hælunum á mér. Hún kallaði á eftir mér og bað mig að stanza andar- tak, hún hefði ekki enn séð fötin mín, en ég tautaði eitt- hvað um, að það vissi ekki á gott að láta biskupinn bíða og hljóp áfram. Kirkjan var troðfull, strák- ar öðrum megin og stelpur hin- um megin og altarið allt log- andi í ljósum og blómum og hásæti handa biskupnum að sitja á, þegar hann var ekki að ferma. Úti fyrir var hávær, glaðleg mannþröng, trommur drundu og trompetleikarar úr hljómsveit Larkins blésu. Bisk- upinn kom og dyrunum var lokað. Ég fór í biðröðina upp að grátunum, kraup og það var hvíslað yfir mér og kinnin á mér var snert. Ég var alltaf í frakkanum, þó að það væri heitt og ég var í svitabaði á meðan ég beið eftir sálmunum og messunni. Ljósin urðu bjartari og mér varð heitara og ég var borinn út í yfirliði. En þó að mér væri sama um, að þeir losuðu bindið mitt, hélt ég dauðahaldi í frakkann og enginn sá jakk- ann með stóru tölunum og litlu hornunum. Þegar ég kom heim, fór ég í rúmið og pabbi sagði, að ég hefði orðið veikur um leið og biskupinn var að blessa okkur. Hann sagði, að þetta væri meistarastykki hjá mér og sýndi ósvikna hugprýði. Á hverjum sunnudegi reifst móðir mín út af fötunum. Hún sagði, að ég væri lygari og hræsnari, færi í þau örfáar mínútur um hverja helgi, hlypi inn til ungfrú McCann og út aftur og léti hana standa í þeirri trú, að ég væri í þeim alla helgina. í bræði sinni sagði móðir mín, að hún skyldi koma upp um mig og segja ungfrú McCann frá öllu og af þvi að mamma var alltaf létt á fæti, þaut hún með það sama upp til hennar. Þegar hún kom aftur, sagði hún ekkert, en sat við eldinn og starði inn í hann. Ég trúði raunverulega ekki, að hún hefði sagt McCann eftir mér. Og ég fór í fötin og 12

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.