Samvinnan


Samvinnan - 01.08.1976, Page 14

Samvinnan - 01.08.1976, Page 14
Frásögn um íslenzkan skáksnilling eftir Jón Olafsson, hrl. Harvard-háskóli Spurzt hafði um fyrirætlanir Shaiers deildarforseta varð- andi skákframtíð skólans. Þá brá svo við, að hinir reglulegu skákmenn skólans mótmæltu og töldu enga þörf á „glamr- ara“ frá íslandi til að tryggja sig fyrir skakkaföllum í vænt- anlegri keppni. „Hann varð altekinn þeirri hugsun, að hann væri að missa vitið. Einmitt þegar við hinir töldum, að hann ætti að vera gramur eða reiður vegna þess, að einhverjar reglur hindruðu að hann gæti keppt, kom hann á fund minn og tjáði mér, að hann væri að bila andlega. Hann hafði lesið ein- hvers staðar, að geðveiki væri algeng meðal skák- manna og því betri sem skákmaðurinn væri, því meiri væri hættan á geðveiki, og í mestri hættu væru snillingarnir, sem sú bölvun legðist á, að þeim væri um megn að gleyma skákum sín- um .. .“ Ég hef ráðizt í að setja sam- an sögu úr brotum, sem fela í sér einkennileg örlagaatvik, sem virðast mjög athyglisverð, þegar þau eru skoðuð í sam- hengi. Ég vil byrja á því að gefa í stórum dráttum nokkra lýsingu á einni aðalpersónu sögunnar, en það er Björn Pálsson, frændi minn, sonur Páls Ólafssonar skálds. Björn var fæddur 1883, varð stúdent frá Latínuskólan- um 1904 með 1. einkunn, inn- ritaðist í Háskólann í Kaup- mannahöfn haustið 1904, varð cand. phil. þaðan vorið 1905 með 1. einkunn og kom heim það sumar. Að áliðnu sumri 1905 fór hann til Bandaríkj- anna með Vilhjálmi Stefáns- syni, síðar landkönnuði, og verður sagt frá því siðar. Hann fluttist til Winnipeg, vann þar að ýmsum störfum, en lengst að blaðamennsku við „Lög- berg“. Hann kom aftur til ís- lands í árslok 1908, fékkst við kennslu t. d. við Verzlunar- skóla íslands, tók að lesa lög við lagadeild Háskólans hér og lauk embættisprófi þaðan 1912. Eftir það hafði hann ýmis störf með höndum, varð hæsta- réttarlögmaður 1922, þótti mjög snjall málaflutningsmaður, var m.a. málaflutningsmaður Sam- bands íslenzkra samvinnufé- laga um nokkurt skeið, en veiktist af lömunarveiki og var haltur upp frá því. Hann hneigðist þá til vínnautnar og sinnti lítt eða ekki störfum- Var þá glæstum ferli hans sem málafærslumanns lokið. Ég sá Björn fyrst á heimili föðurbróður hans Jóns Ólafs- sonar ritstjóra og skálds að Laugavegi 2 í Reykjavík sum- arið 1912, er hann var að taka próf í lögfræði við Háskólann. Eftir að ég hafði dvalið mörg ár í Danmörku, tekið þar lög- fræðipróf og unnið þar nokkur ár, fluttist ég til Reykjavíkur haustið 1926. Þá hafði ég sam- band við Björn og þar sem ég ætlaði mér að starfa að lög- fræðistörfum og Björn hafði fullan vilja á því að byrja á ný við málaflutningsstörf með festu og reglusemi, þá varð það úr að við stofnuðum málaflutningsstofu saman hér í Reykjavík. Við það samstarf kynntist ég Birni, þótt sam- starfið stæði ekki lengur en tæpt ár — og lágu leiðir okkar ekki saman síðan. Ég taldi Björn vera mjög gáfaðan, rökfastan og mælsk- an, en það kom bezt í ijós, ef hann átti að verja einhvern lítilmagna eða þá sem bágt áttu, en með slíkum hafði hann mikla samúð. Hann var skap- rikur og tilfinninganæmur. Mér virtist hann viðkvæmur í lund, og minnti hann oft á skáld eða listamenn, sem ekki geta til lengdar fellt sig við borg- araleg störf, en vilja frjálst og 14

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.