Samvinnan


Samvinnan - 01.08.1976, Síða 22

Samvinnan - 01.08.1976, Síða 22
ingum hans. Hin fyrri er al- kunn vísa Hallfreðar vand- ræðaskálds, er hann orti fyrir Ólaf konung Tryggvason um sverð, er konungur hafði gefið honum, og hlaut að launum sverðslíður að gjöf frá konung- inum. Vísan er hin 58. í röð- inni í handriti Hallgríms og hljóðar svo: „Eitt er suerd þad er suerda suerd audgann mig giördi firir suip niördum suerda suerd ótt mun nu verda mun at vansuerdat verda verdur emc þriggia suerda jardar mens ef yrdi vmgierd ad þui suerdi.“ Skýringarnar eru svohljóð- andi, sömuleiðis stafréttar: „Eitt er suerd þad suerda er best, og giordi mig suerd aud- ugann, nú mun verda suerdótt eda suerd tijttneffnt, firir suerda suip niordum, þad er monnum, eigi mun nú verda (vansuerdat) þad er, afátt ad suerdid sie nógu offt neffnt, þui er eg verdugur þriggia suerda ef nu fejngist vmgjord ad suerdinu." Fyrir þá, sem óvanir eru stafsetningu 17. aldar, myndi þetta verða eitthvað á þessa leið með nútímastafsetningu: „Eitt er sverð það sverða er bezt og gjörði mig sverðauðug- an. Nú mun verða sverðótt, eða sverð títtnefnt, fyrir sverða svip Njörðum, það er mönnum. Eigi mun nú verða vansverðað, það er áfátt að sverðið sé nógu oft nefnt. Því er ég verðugur þriggja sverða, ef nú fengist umgjörð að sverðinu.“ Síðari vísan er alkunnur kveðlingur Hjalta Skeggjason- ar, er hann kvað á Alþingi sumarið fyrir kristnitöku. í handriti Hallgríms ber hún tölusetninguna 69 og hljóðar svo: „Vil eg ei god geya grei þiki mier freya æ mun an?iad tueggia ódin?? grey eda freia.“ Skýringarnar eru þannig, aftur stafréttar: „ad geia god) er hier kallad vpa spott, ad tilbidia god, þuj ad geya er hundu?n eignad þa þejr giellta og þui kallar han?i freiju grej, og seigir þad bregd- ist alldrej, annadhuort sie od- in?i eda freija greij huor helld- ur sem er dyrkad.“ Með nútímastafsetningu myndi þetta verða á þessa leið: ,,„Að geyja goð“ er hér kallað upp á spott að tilbiðja goð, því að geyja er hundum eignað, þá þeir gelta, og því kallar hann Freyju grey og segir, (að) það bregðist aldrei, (að) annað hvort sé Óðinn eða Freyja grey, hvor(t) heldur sem er dýrk- að.“ Að því er mér er bezt kunn- ugt mun þetta vera í fyrsta skipti í sögunni, sem nokkuð birtist á prenti úr þessu hand- riti. Von mín, sem og allra góðra íslendinga, hlýtur að vera sú, að það verði ekki það síðasta, heldur þurfi ekki lang- ur tími að líða, þar til þessi texti birtist á prenti, annað hvort ljósprentaður eða í frambærilegri textaútgáfu. Þó að það kunni að vera ómót- mælanleg staðreynd, að fræði- legt gildi hans sé lítið sem ekkert, er á hinn bóginn á það að líta, að allt sem viðkemur Hallgrími Péturssyni hlýtur að hafa sjálfstætt gildi, svo fram- arlega sem það fræðir okkur um líf og athafnir þessa mikla sálmaskálds. Þegar aukheldur er um að ræða annað af tveim- ur verkum hans, sem varðveitzt hafa beint undan hans eigin penna, sýnist verkefnið ein- ungis bíða þess, að einhver framtaksamur aðili hefjist handa. + Söguleg skák Framh. af bls. 17. mikli Kanadamaður varð síð- ar bezti vinur minn og ráð- gjafi á mannfræðiferlinum, sem hann fór að eygja fyrir mig. Ég er viss um, að þegar þetta kom fyrir Björn Pálsson, hafði Mavor ekki hugsað nein- ar ákveðnar áætlanir varðandi mig, enda hafði ég ekki gert það sjálfur. Enn er eitt ósagt um Björn Pálsson. Frank Marshall, sem var þá skákmeistari Bandaríkj- anna, hafði verið á ferð vest- ur í landi og hélt austur á bóg- inn um Kanada, en á leiðinni kom hann við í Winnipeg og tefldi þar margar sýniskákir. Einhver kunningi Björns stakk upp á því, að þeir færu að horfa á þetta. Einn skák- Fjölbreytt vöruúrval á hagstæðu verði. Greiðum hæsta verð fyrir framleiðsluvörur ykkar. — Samvinnu menn — ykkar hagnaður er að verzla við eigin samtök. Kaupfélag Berufjarðar Söltunarstöðin Arnarey Búlandstindur h.f. Frystihús — Síldarverksmiðja — Útgerð — Djúpavogi Að treysta sjálfum sér, vinna vel og standa saman, frjálsir menn með sama rétt. Það er VEGURINN TIL VELMEGUNAR Kaupfélagið er bundið við héraðið — svo að aldrei verður skilið þar á milli. Kjörorðið er: Að hafa ekki af öðrum — en hjálpa hver öðrum. KAUPFÉLAG ÖNFIRÐINGA, Flateyri Samvinnuverslun íryggir yður sanngjarnt verðlag Verslum með allar innlendar og erlendar vörutegundir. Kaupfélag Hólmavík 22

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.