Samvinnan - 01.08.1976, Qupperneq 25
Að síðustu: Hvaða möguleik-
ar eru á því, að Zweig hafi
heyrt um skákævintýri Björns?
Þetta hef ég ekki getað rann-
sakað svo neinu nemi, en ég
vil geta þess, að Zweig fór í
ferðalag til Ameríku fyrir fyrri
heimsstyrjöld, dvaldi nokkurn
tíma í New York, síðan í Bost-
on (Harvard) og heimsótti
fleiri háskóla. Hann fór með
skipi frá Bandarikjunum um
Bermuda — Haiti — Pan-
ama — Buenos Aires fyrri
hluta árs 1914, sbr. endur-
minningar hans i „Veröld sem
var“. (Hann telur komu sína
til Panama nokkrum mánuð-
um áður en Panamaskurðurinn
var opnaður, en fyrsta haf-
skipið fór um skurðinn 3.
ágúst 1914). Ég geri því ráð
fyrir, að hann hafi dvalið við
ýmsa háskóla í Bandaríkjun-
um árið 1913 og fyrri hluta árs
1914. Þá voru mjög mikil lík-
indi til þess, að hann hefði
heyrt frásögn af skákævintýri
Björns og jafnvel að hann hafi
kynnzt Vilhjálmi Stefánssyni.
Eftir fyrri heimsstyrjöldina
mun hann hafa dvalið af og til
1 Bandaríkjunum, (sjá einnig
..Veröld sem var“).
Eg hef ekki getað rannsakað
þetta nánar og sökum veikinda
naumlega lokið því sem ég
hafði tekið saman, en mér
Þætti vænt um, ef einhverjir
skákunnendur gerðu þessu
efni betri skil. 4
Kaupfélag Vestur-Húnvetninga
Hvammstanga
Kaupfélagið útvegar félagsmönnum sínum nauðsynjavörur eftir
því sem ástæður leyfa á hverjum tíma, og tekur framleiðsluvörur
þeirra í umþoðssölu.
FERDA
menn
Kaupfélag Hafnfirðinga
selur fjölbreyttan ferðabúnað í verzluninni
Strandgötu 28 og ferðanesti
í matvörubúðum félagsins í Hafnarfirði
og Garðabæ
Verið velkomin í verzlanir okkar.
Kaupfélag Hafnfirðinga
25