Samvinnan - 01.11.1974, Qupperneq 24
MINNING
l—^
T
li -J
ER Afl FRÍTTA?
Menntunarkröfur sífellt að aukast
Nemendur í 3. og 4. bekk fram-
haldsdeildar Samvinnuskólans, er
stofnuð var í fyrra.
Samvinnuskólinn að Bifröst
var settur við hátíðlega athöfn
24. september kl. 18.
Hinn nýi skólastjóri, Haukur
Ingibergsson, cand. mag., bauð
gesti velkomna og gerði i upp-
hafi máls síns grein fyrir þeim
breytingum sem orðið hafa á
starfsliði skólans. Af störfum
hafa látið: Sr. Guðmundur
Sveinsson skólastjóri, Guðlaug
Einarsdóttir húsmóðir skóla,
Snorri Þorsteinsson yfirkenn-
ari, Sigurður Hreiðar Hreiðars-
son tómstundakennari og
Benedikt Jónasson húsvörður.
Auk hins nýja skólastjóra,
Hauks Ingibergssonar cand.
mag., hafa komið til kennslu-
starfa Guðbrandur Gíslason
M.A., Jóhanna Margrét Guð-
jónsdóttir B.A., Guðmundur
Arnaldsson tómstundakennari
og Svavar Lárusson B.A., sem
er yfirkennari við framhalds-
deild skólans í Reykjavik.
Helga Karlsdóttir tók við stöðu
húsmóður og Grétar Ingimars-
son við stöðu húsvarðar.
Umsækjendur um skólavist í
1. bekk skólans voru um 200
talsins, en húsnæðisins vegna
var einungis unnt að taka á
móti 42 nemendum, og segir
það í senn sína sögu um gott
Haukur Ingibergsson, skólastjórí.
orðspor skólans sem og hús-
næðisvandræði. Nemendur í 2.
bekk eru 36 og alls eru því 78
manns við nám að Bifröst í
vetur.
Þetta er annað árið sem
framhaldsdeild skólans starfar
í Reykjavík og stunda 20 nem-
endur nám i 3. og 4. bekk skól-
ans, sem þar eru til húsa.
Rakti skólastjóri nokkuð þau
rök, sem lágu til stofnunar
framhaldsdeildarinnar.
í fyrsta lagi væru menntun-
arkröfur alltaf að aukast, sem
og þekkingarforðinn, og ef tek-
ið væri tillit til þjóðfélagsþró-
unar og allra aðstæðna væri
það fjögurra vetra nám, sem
Samvinnuskólinn byði upp á
nú, næsta sambærilegt við
tveggja ára nám skólans fyrir
20 árum. Svo mikið hefðu
menntunarkröfur aukizt. f
framhaldsdeild væri mest á-
herzla lögð á hagnýtt nám í
tungumálum og verzlunar- og
stærðfræðigreinum.
í öðru lagi sagði skólastjóri,
að Samvinnuskólinn hefði ver-
ið blindgata í skólakerfinu.
Þótt nemendur hefðu hugað á
framhaldsnám, hefði engin
greið leið verið opin hér innan-
lands, þótt Samvinnuskóla-
menn væru velkomnir til náms
við ýmsar erlendar mennta-
stofnanir. Með framhaldsdeild
opnuðust nýir möguleikar til
frekara náms.
f þriðja lagi hefði Samvinnu-
skólanum verið ætlað mikið og
verðskuldað hlutverk í frum-
varpi til laga um viðskipta-
menntun á framhaldsskóla-
stigi, sem lagt hefði verið fyrir
seinasta reglulegt Alþingi, en
ekki orðið útrætt. Væri stofn-
un framhaldsdeildar nauðsyn-
ieg, ef Samvinnuskólinn ætti
að geta gegnt hlutverki sínu
með sóma í framtíðinni.
ívar ívarsson,
kaupfélagsstjóri
fvar fvarsson, kaupfélags-
stjóri, Kirkjuhvammi í Rauða-
sandshreppi, er látinn. Hann
var jarðsettur í heimabyggð
sinni að Saurbæ á Rauðasandi
17. september síðastliðinn.
ívar var fæddur 25. septem-
ber árið 1889 í Kirkjuhvammi,
sonur ívars Magnússonar
bónda þar og konu hans Rósu
Benjamínsdóttur. Hann gerð-
ist bóndi á Kirkjuhvammi árið
1930 og bjó þar til dauðadags.
Samhliða búskapnum hafði ív-
ar á hendi fjölda trúnaðar-
starfa fyrir sveit sína og sýslu.
Merkustu þættirnir í lífsstarfi
hans voru þó störf í þágu sam-
vinnufélaganna, en hann var
í meira en þrjá áratugi kaup-
félagsstjóri eins minnsta og af-
skekktasta kaupfélags lands-
ins, Kaupfélags Rauðasands á
Hvalskeri.
Samvinnumenn minnast hans
að leiðarlokum með virðingu og
þakklæti.
Kynntu sér verzlunina í Svíþjóð
Dagana 22.—30. sept. síð-
astliðinn efndi Skipulags- og
fræðsludeild Sambandsins til
kynnisferðar til Svíþjóðar fyrir
verzlunarstjóra og verzlunar-
ráðunauta samvinnufélaganna.
Þátttakendur voru 14 frá ýms-
um stöðum á landinu, en farar-
stjóri var Sigurður Jónsson,
verzlunarráðunautur. Ferðin
var skipulögð i samráði við KF
- sænska samvinnusambandið.
Skoðaðar voru allar helztu
gerðir samvinnuverzlana 1
Stokkhólmi, Lundi, Malmö og
víðar, bæði vörumarkaðir og
vöruhús, og einnig var birgða-
stöð KF i Bro heimsótt, en hún
er hin stærsta sinnar tegundar
í norðurálfu. Þátttakendurnir
kynntust vel rekstri sænskra
samvinnuverzlana svo og nýj"
ungum í útbúnaði þeirra og að-
stöðu, en ör þróun og miklar
breytingar hafa orðið á þessu
sviði í Svíþjóð undanfarin ár.
24