Samvinnan - 01.04.1981, Page 16
Skírdagsávarp
eftir
Esra S. Pétursson lækni
Daglegt brauö
og brauð lífsins
NEMMA í guðspjöllunum er talað
um brauð. (Matt. 4:4.) Kristur
vitnar í Móses og segir: Ritað er:
Maðurinn lifir ekki á einu saman
brauðinu, heldur af sérhverju orði,
sem fram gengur af Guðs munni.
Hafði hann þá sjálfur fastað í fjörutíu
daga og fjörutiu nætur í eyðimörkinni
og fundið hvernig það var að hafa ekki
brauð sér til lifsviðurværis.
Hann hafði því samúð með hungr-
uðum mannfjöldanum sem fylgt hafði
honum fótgangandi úr borgunum, þá
er páskarnir, hátíð Gyðinganna, voru í
nánd. Hafði hann farið á óbyggðan
stað afsiðis á báti. Talið er að staður-
inn sé sá sem nefndur er Tabgha —
nafnið þýðir sjö uppsþrettur — og
liggur hann nær Kapernaum en Bet-
saida. Kristur hafði verið að lækna
sjúka i mannfjöldanum. Þegar kvöld-
aði komu lærisveinar hans til hans og
hvöttu hann til þess að senda mann-
fjöldann frá sér í þorpin tvö, svo að
hann gæti keypt sér vistir. En Jesús
sagði að fólkið þyrfti ekki að fara
burt og bað þá að gefa því að eta; bað
að þeim yrði gefin kvöldmáltíð. En
þeir sögðu honum, að þeir hefði aðeins
fimm byggbrauð og tvo þurrkaða
fiska. Kristur bauð mannfjöldanum að
setjast niður í fimmtíu manna hópa.
Siðan tók hann brauðin fimm og fisk-
ana tvo, leit upp til himins og blessaði
og braut brauðin og fékk lærisvein-
unum sem útdeildu þeim til mann-
fjöldans. Og allir neyttu og urðu mett-
ir en brauðbrotin, sem af gengu, fylltu
tólf körfur.
Rétt eftir þetta kom fólkið til Kap-
ernaum til að leita að Jesú. Þeir fundu
hann í samkunduhúsinu og spurðu
hann: Rabbí, hvenær komstu hingað?
Jesús svaraði (Jóh. 6:26-66.) þeim og
sagði: Sannlega, sannlega segi ég yð-
ur: Þér leitið mín ekki af því að þér
sáuð tákn, heldur af því að þér neytt-
uð brauðanna og urðuð mettir. Aflið
ykkur ekki þeirrar fæðu, sem eyðist,
heldur þeirrar fæðu sem varir til ei-
lifs lífs og mannssonurinn mun gefa
yður; því að hann hefur faðirinn inn-
siglað, sjálfur Guð. Þeir sögðu við
hann: Hvað eigum vér að gjöra, til
þess að vér vinnum verk Guðs? Jesús
svaraði og sagði við þá: Þetta er verk
Guðs, að þér trúið á þann sem hann
sendi.... Sannlega, sannlega segi ég
yður: sá sem trúir hefur eilíft líf. Ég
er brauð lífsins. Feður yðar átu
„manna“ í eyðimörkinni og dóu. Þetta
er brauðið, sem kemur niður af himni,
til þess að maðurinn neyti af því og
deyi ekki. Ég er hið lifandi brauð, sem
kom niður af himni; ef nokkur neytir
af þessu brauði, mun hann lifa til ei-
lífðar; og það brauð sem ég mun gefa,
er hold mitt, heiminum til lífs.
Eftir ræðu þessa í Kapernaum lagði
Kristur leið sína norður i land til Týr-
anusar og Sídonar. Sneri hann þar við
og fór um Decapolis aftur til Galileu-
vatnsins. Safnaðist þar til hans mikill
mannfjöldi á nýjan leik. í það sinnið
voru það fjögur þúsund karlar auk
kvenna og barna. (Matt. 15:32-38.)
Komu þeir með halta og blinda, mál-
lausa, handarvana og marga aðra, og
vörpuðu þeim fyrir fætur Jesú, og
hann læknaði þá ... Og svo mettaði
hann mannfjöldann með því að blessa
sjö brauð og fáeina smáfiska, en af-
gangs urðu sjö vandlaupar fullir af
brauðbrotum. Með kraftaverki þessu
sameinaði hann enn einu sinni himin
og jörð. Helgaði hann þannig einnig
hið daglega brauð, það brauð sem
mannkynið etur. Steig hann síðan með
lærisveinum sínum út í bátinn ... Og
þeim hafði gleymst að taka með sér
brauð, og þeir höfðu ekki með sér
nema eitt brauð í bátnum. (Markús
8:14-21.) Og hann bauð þeim og sagði:
Gætið þess að vara yður á súrdeigi
Faríseanna og súrdeigi Heródesar. Og
þeir töluðu hver við annan og sögðu:
Vér höfum ekki brauð. Og er Jesús
varð þess vis, segir hann við þá: Hvað
eruð þér að tala um, að þér hafið ekki
brauð? Skynjið þér ekki enn eða skilj-
ið? Hafið þér forhert hjarta? Þér hafið
augu, sjáið þér ekki? Og þér hafið
eyru, heyrið þér þá ekki? Og munið
þér ekki? Þegar ég braut brauðin fimm
handa fimm þúsundum, hversu marg-
ar karfir af brauðbrotum tókuð þér þá
upp? Þeir segja við hann: Tólf. Og
þegar ég braut þau sjö handa fjórum
14