Samvinnan - 01.04.1981, Qupperneq 18
Við stöndum frammi fyrir heimsmynd
fullri af þverstæðum á níunda og tíunda áratugnum,
þar sem líklegt er að samvinnufélög
verði að takast á við gífurlega stór verkefni,
ef þau ætla að standast samkeppnina ...
AVEGUM Alþjóðasamvinnusam-
bandsins (ICA) var á árunum
1979—80 tekin saman ýtarleg
greinargerð um framtíð samvinnu-
hreyfingarinnar í heiminum. Nánar
til tekið var þar um að ræða nákvæma
framtíðarspá um það hverjar kring-
umstæður samvinnufélaga um heim
allan yrðu árið 2000, og var þessi
greinargerð prentuð undir heitinu
„Samvinnufélög árið 2000“.
• Framtíðarhorfur mannkyns
Maðurinn, sem ICA fól það verkefni
að semja þessa greinargerð, hét dr.
Alexander Fraser Laidlaw og var víð-
kunnur samvinnuleiðtogi i heimalandi
sínu, Kanada. Greinargerð hans var
lögð fram og rædd á þingi ICA i
Moskvu 13.—16. okt. sl. og vakti þar
mikla athygli fyrir það á hve skilgóð-
an hátt hún greindi frá framtíðar-
horfum mannkyns í veröldinni sem
heild, sem og frá væntanlegum verk-
efnum og viðfangsefnum samvinnufé-
laganna, skoðuðum frá sama sjónar-
hóli. Dr. Laidlaw var á þinginu í
Moskvu og flutti þar framsöguerindi
um skýrslu sina. Nokkrum vikum sið-
ar, hinn 30. nóvember, barst sú fregn
frá Ottawa, að hann væri látinn, 72
ára að aldri.
Á vegum Sambandsins er nú unnið
að þvi að þýða þessa greinargerð dr.
Laidlows, og er hún væntanleg á prent
síðar á þessu ári. Það má eiga von á
því að íslenskum áhugamönnum um
samvinnumál muni þykja að því jafn-
vel verulegur fengur að eiga að henni
greiðan aðgang, þvi að það mun sann-
ast sagna að hér á landi hafi sam-
vinnuhreyfinguna nokkuð skort rit
sem fjalla um málefni hennar á al-
þjóðavettvangi og með þeim hætti að
þau séu skoðuð i ljósi þeirra viðfangs-
efna sem mannkynið i heild á við að
fást. Við birtum hér í kynningar-
skyni tvo stutta kafla úr greinargerð
dr. Laidlaws. Þeir eru úr 2. kafla henn-
ar, sem nefnist „Hvert stefnir heimur-
inn?“, og fjallar hinn fyrri um fram-
tíðarhorfur mannkyns, en hinn síðari
um helstu atriði sem höfundur telur
samvinnufélög þurfa að hafa sérstaka
hliðsjón af í nánustu framtið.
• Veröldin sem við búum í
Sú skoðun nýtur nú talsverðrar út-
breiðslu að árið 1980 standi heimurinn
á þröskuldi hættulegra og óróasamra
tima. Sumir rýnendur telja að það sé
von um að við getum horft fram til
bættra efnahagslegra kringumstæðna
nálægt árinu 1985, en þeir eru þó næst-
um allir sammála um að fyrri helm-
ingur áratugarins 1980—90 verði erf-
iður, sama frá hvaða sjónarhorni skoð-
að sé. Og að þvi er varðar lok aldar-
innar, þá er ennþá aðeins hægt að sjá
tíunda áratuginn sem tímabil hulið
uggvænlegri móðu.
Árið 1922 lýsti Thomas Hardy tím-
um sínum sem „hinni bernskuhrjáðu
öld okkar“, enda má svo virðast
sem meginhluti tímabilsins frá alda-
mótum til dagsins i dag hafi einkennst
af erfiðleikum og þjáningum fyrir
mannkynið, sérstaklega þó af völdum
styrjalda og kreppuástands í efna-
hagsmálum. Það er ef til vill dapurleg-
asti vitnisburðurinn um ástand heims-
mála nú við upphaf niunda áratugar-
ins, að eina vonin um hraðan bata i
efnahagsmálum virðist bundin við
stríðsóttann; það sýnist ekki vera
hægt að láta hjól iðnaðarins snúast
með fullri afkastagetu nema þjóðirn-
ar eigi í stanslausum styrjöldum, önn-
um kafnar við að eyða hver annarri.
En þó að við hörmum hin hrikalegu
bakföll í efnahagsmálum heimsbyggð-
16