Samvinnan - 01.04.1981, Qupperneq 21

Samvinnan - 01.04.1981, Qupperneq 21
Margt f ólk um heim allan mun vafalaust leita að leið út úr erfiðum aðstæðum með að- ferðum samvinnurekstrarins, eins og fólk reyndar gerði í stórum stíl fyrir kreppuna miklu. Hætt er við að samvinnufélög á Vesturlöndum eigi eftir að þurfa að takast á við sívaxandi erfiðleika í sambandi við fjár- magnsútvegun frá árinu í ár og fram til ársins 2000. varnargarð gegn verðbólgunni, sem er fólginn í því að þau þurfa ekki að hlíta neinum takmörkunum á því hvað þau greiði mikinn arð af hlutafé sínu, og i reynd virðist þessi arður viðast hvar hafa tilhneigingu til að vaxa í takt við verðbólguna. í öðru lagi leiðir það af hinu lýðræðislega skipulagi sam- vinnufélaga að öll ákvarðanataka í þeim hlýtur að vera seinvirkari og svifaseinni en i einkarekstrinum. í venjulegu einkafyrirtæki er öllu vald- inu safnað saman uppi i toppnum. Samvinnufélög geta haft góða rekstr- arlega stjórn sem er fljót að taka ákvarðanir frá degi til dags um ein- stök atriði sem eru félagsmönnum til augljósra hagsbóta — en þegar kem- ur að ákvörðunum um stóru atriðin þá standa menn frammi fyrir þvi að félagsmennirnir vilja skiljanlega hafa hönd í bagga. Á tímum þegar snöggar ákvarðanir ráða kannski úrslitum þá getur lýðræðisskipulagið stundum valdið samvinnufélögunum vissum erfiðleikum. • Útvegun fjármagns erfið Auk þess er að því að gæta að þegar barist er i harðri samkeppni á ein- hverjum markaði, hvort sem er á heimavelli eða i millirikjaviðskiptum, þá er það margsönnuð staðreynd að sigurinn hefur tilhneigingu til að falla þeim sterkari í skaut. Einnig er það viðurkennt að varasjóðir margra stórfyrirtækja eru margfalt stærri en samvinnufélaganna. Það leiðir svo af sjálfu sér að stærð margra einkafyrir- tækja gerir þeim kleift að koma við mun meiri hagræðingu en möguleikar samvinnufélaganna leyfa yfirleitt. Þessi styrkur margra einkafyrirtækja virðist stafa frá ríkjandi tilhneigingu þeirra til að leita eftir hærra ágóða- hlutfalli heldur en samvinnufélögin gera almennt. í stuttu máli, þá er hætt við að samvinnufélög á Vesturlöndum eigi eftir að þurfa að takast á við sí- vaxandi erfiðleika í sambandi við fjár- magnsútvegun frá árinu i ár og fram til ársins 2000, og samvinnusambönd í þessum heimshluta geta lika átt von á þvi að þurfa að standa nokkuð höll- um fæti í samkeppninni við stórfyrir- tæki og fyrirtækjasamsteypur í einka- rekstri. Það má þannig búast við þvi að tilhneigingar geti gætt i ýmsum samvinnusamtökum til skipulags- breytinga sem hafi i för með sér aukna samræmingu og miðstýringu frá því sem nú er. Áþreifanlegt dæmi um þetta er að finna í Austurríki þar sem svæðisbundin samvinnufélög neytenda hafa nú þegar sameinast í eitt lands- félag. Ef menn þurfa að laga sig eftir breyttum aðstæðum vegna verðbólg- unnar þá má vel vera að þeir finni útveg í því að efla samvinnufélög yfir- leitt, og þó sérstaklega framleiðslu- samvinnufélög í iðnaði. í viðureign sinni við verðbólguna hafa rikisstjórn- ir sýnt tilhneigingu til að sveiflast á milli harðra aðgerða í peningamálum og þess að þróa einhvers konar launa- samdráttarstefnu. Á áttunda ára- tugnum hefur verið greinileg tilhneig- ing víða til verndarstefnu sem aftur hefur átt að skapa leiðir til að leysa grundvallarvandamálin. Aðgerðir í peningamálum vilja oft leiða af sér óbærilega hátt atvinnuleysishlutfall, en á hinn bóginn mæta aðgerðir í launamálum yfirleitt harðri andstöðu verkalýðsfélaga. Ef iðnrekstur væri al- mennt skipulagður i framleiðslusam- vinnufélög, þá væru aðstæðurnar hins vegar i grundvallaratriðum aðrar. Þá skipti litlu fyrir launþega þótt þeim tækist að hækka launin, ef hagnaður- inn af rekstrinum rynni hvort sem er til þeirra. Kjarasamningar væru þá líklegir til að verða að einu saman samkomulagsatriði á milli mismun- andi hópa launþega og nánast ein- göngu tengdir spurningunni um það hvernig ætti að skipta niður rekstrar- hagnaðinum. En ætli menn sér að breyta öllum iðnaði yfir i samvinnu- rekstur, þá er það vitaskuld risavaxið verkefni sem trúlega myndi taka lang- an tima að hrinda i framkvæmd. • Heimsmynd full af þverstæðum Við stöndum þess vegna frammi fyr- ir heimsmynd fullri af þverstæðum á niunda og tiunda áratugnum, þar sem líklegt er að samvinnufélög verði að takast á við gífurlega stór verkefni ef þau ætla að standast samkeppnina, samtímis þvi að trúlega mun sú stað- reynd njóta vaxandi viðurkenningar að þau geti gegnt veigamiklu hlut- verki þegar um það er að ræða að leysa langtima efnahagsvandamál. En sá aukni jöfnuður í þjóðfélaginu, sem nauðsynlegur er til að menn geti látið efnahagsmálin ganga nægilega greið- lega, hann er einmitt meginatriðið í þeim aðstæðum sem samvinnufélög eru hvað líklegust til að dafna í; með öðrum orðum, þess konar aðstæðum þegar aukinn jöfnuður i eigna- og tekjuskiptingu hefur gert það mögu- legt fyrir umtalsverðan fjölda fólks að spara fé og stofna samvinnufélög. 4 19

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.