Samvinnan - 01.04.1981, Síða 24
Það er freistandi að
gylla tilboðin á ýmsan hátt,
og þar með er hætt við að
auglýsingar verði
skrumkenndar.
Er skrum í íslensk-
um auglýsingum?
EG AR Ólaf ur Jóhannesson lagði
fram frumvarp á Alþingi um
verðlag, samkeppnishömlur
og óréttmæta viðskiptahætti í apríl
1978 sagði hann um 27. grein frum-
varpsins: „Með þessa grein að
vopni er ætlunin að snúast gegn
öllu því óskaplega og ég vil segja
ógeðfellda skrumi sem á neytend-
um dynur í vöruframboði og eink-
um birtist í ýmiss konar auglýs-
ingum.“
En í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórn-
ar Geirs Hallgrimssonar voru m.a.
fyrirmæli um að undirbúin yrði ný
löggjöf um verðmyndun, viðskipta-
hætti og verðgæslu. Stefnt yrði í átt
til almenns eftirlits neytenda með
viðskiptaháttum til að tryggja heil-
brigða samkeppni og eðlilega verð-
myndun verslunar- og iðnfyrir-
tækja til bættrar þjónustu fyrir
neytendur.
Það var i samræmi við þá stefnu-
yfirlýsingu að Ólafur Jóhannesson
lagði fram það frumvarp sem nefnt
er hér að ofan. Það var siðan sam-
þykkt og öðluðust lögin gildi 1.
nóvember 1979.
Fimmti kafli laganna fjallar um
óréttmæta viðskiptahætti og neyt-
endavernd. 27. gr. sem er ein af að-
algreinum fimmta kaflans felur m.
a. i sér að óheimilt sé að veita
rangar, ófullnægjandi eða villandi
upplýsingar í auglýsingum.
í auglýsingum fá neytendur vitn-
eskju um hvaða vörur eru á boð-
stólum og i mörgum tilvikum einn-
ig nokkurn fróðleik um eiginleika
þeirra. Öll auglýsingastarfsemi
gegnir því mikilvægu hlutverki.
Þær upplýsingar sem framleiðend-
ur og seljendur láta í té verða æ
mikilvægari vegna þess að stöðugt
koma fram nýjar vörur. Einnig er
samsetning vara að verða æ flókn-
ari. Neytendur geta því i fæstum
tilvikum dæmt um gæðin með því
aðeins að skoða vörurnar. í stuttu
máli má segja að fræðslan sem lát-
in er i té i auglýsingum þarf að
vera áreiðanleg, hún þarf að vera
samin á auðskiljanlegu máli og
markmið auglýsingarinnar þarf að
vera að auðvelda neytendum að
velja þær vörur og þá þjónustu sem
best fullnægja óskum og þörfum
beirra.
í nútíma markaðskerfi er mark-
mið framleiðenda að framleiða sem
mest og markmið seljenda að selja
sem best með þvi að þóknast neyt-
endum og með því að hafa áhrif
á ákvarðanir þeirra.
Auglýsingastarfsemi fer fram á
vegum framleiðenda og seljenda.
Auglýsingar eru því þannig úr garði
gerðar að þær vörur og sú þjónusta
sem auglýst er, sýnist girnileg og
hvetji neytendur til að gera kaup.
Það er þvi freistandi að gylla
tilboðin á ýmsan hátt og þar með
er hætt við að auglýsingar verði
skrumkenndar.
Auglýsingar birtast í öllum fjöl-