Samvinnan - 01.04.1981, Side 25

Samvinnan - 01.04.1981, Side 25
FULLKOMNAR HEIMILISTRYGGINGAR miðlum að heita má og gera selj- endur sér far um að finna sem flesta staði til að koma boðskap sinum á framfæri. Auglýsingar má t.d. finna i strætisvögnum, i kvik- myndahúsum, á íþróttavöllum og á fatnaði. Það er einungis bannað að setja upp auglýsingar meðfram vegum eða annars staðar utan þéttbýlis. Náttúruverndarráð setur nánari reglur um auglýsingar um atvinnurekstur þar sem slik starf- semi fer fram í dreifbýli. Auglýsingar eru þvi áleitnar og trufla oft þá sem vilja vera í friði með sínar eigin hugmyndir um neyslu. En neysla manna takmark- ast af því fé sem þeir hafa til um- ráða. • Verðupplýsingar Upplýsingar um verð eru mikil- vægar þar sem þær ráða miklu um hvort kaup séu ákveðin, enda eru auglýsendur farnir i vaxandi mæii að segja frá verði vörunnar í aug- lýsingum sínum. En þvi miður er það stundum gert á skrumkenndan hátt. Skulu hér nefnd nokkur dæmi: Ef seljandi birtir mynd i auglýs- ingu sinni af þeirri vöru sem hann hefur á boðstólum ásamt verði vör- unnar, verður verðtilboðið að sjálf- sögðu að vera i samræmi við mynd- ina nema annað sé skýrt fram tek- ið. í Noregi kom það einu sinni fyr- ir að seljandi birti mynd af hræri- vél með blöndunarglasi (blender) og var jafnframt getið um verð hrærivélarinnar. í verslun seljand- ans var blöndunarglasið hins vegar ekki innifalið í því verði sem sagt var frá i auglýsingunni. Umboðs- maður neytenda sem eftirlit hefur með auglýsingum þar i landi ákvað að seljandinn skyldi selja hrærivél- ina með blöndunarglasi á þvi verði sem hann hafði tilkynnt i auglýs- ingunni. Fyrir nokkru auglýsti t.d. eitt fyrirtæki hér á landi teppi á „al- vöru afsláttarverði." Er þetta skrum eða er gefið í skyn að verslanir auglýsi afslátt sem ekki er raun- verulegur? 36. gr. laga um verðlag, sam- keppnishömlur og óréttmæta við- skiptahætti hljóðar þannig: „Út- sölu eða aðra sölu, þar sem selt er á lækkuðu verði, má því aðeins auglýsa eða tilkynna, að um raun- verulega verðlækkun sé að ræða. Þess skal gætt, að greinilegt sé með verðmerkingum, hvert hið upp- runalega verð vörunnar var.“ En hvað er varan mikið ódýrari þegar um kynningarverð, grunn- verð, hagstætt verð, einstætt verð og hlægilegt verð er að ræða? Hvað eru kjarakaup og kostakaup? Er ekki a.m.k. stundum um skrum að ræða þegar talað er um bestu kaup- in og lægsta verðið i auglýsingum? • Skrum varðandi vinsældir og eiginleika vöru Skrum varðandi vinsældir vöru og þjónustu er þvi miður einnig al- gengt t.d. er sagt „Útsalan sem allir hafa beðið eftir“ og „Þeir sem grillað hafa með glóðargrilli velja það fremur en viðarkolagrill." Er ekki a.m.k. i sumum tilvikum full mikið sagt þegar seljandinn þykist hafa mesta úrvalið, bestu þjónustuna eða hafi á boðstólum mest seldu sjónvörpin? Er ekki litið gert úr neytandan- um með því að bera fram fyrir hann fræðslu eins og að „traktor- inn sé með fullkomið mælaborð", að hárshampooið „innihaldi efni sem umlykur hvert hár og veiti þvi vernd“ og að billinn sé „svo rás- fastur að honum verði ekki haggað af þeirri braut sem þú velur hon- um?“ Dæmin sýna að neytendur fá stundum fremur ónákvæma og skrumkennda fræðslu, þegar þeir þurfa að ákveða hvort sú vara sem auglýst er fullnægi óskum þeirra og þörfum. Samkvæmt lögum þurfa neytendur ekki að láta bjóða sér slíkt skrum og þeir geta kvartað yfir þvi við seljanda. Þar að auki byggist heilbrigð samkeppni á milli seljanda á mark- aðnum á þvi að hver og einn segi satt og rétt frá eiginleikum þeirra vara sem þeir bjóða fram. 4

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.