Samvinnan - 01.04.1981, Síða 40
Frumherjar segja frá fyrstu
baráttuárum tveggja kaupfélaga
í tilefni af sjötugsafmæli
þeirra
Gegnum þröngsýnan aldar-
hátt, fáfrœöi og samkeppni
Jón Ólafsson var formaður og
kaupfélagsstjóri Kaupfélags
Króksfjarðar frá stofnun þess
til 1934.
Jóhannes Árnason, sem var
stjórnarformaður Kaupfélags
Langnesinga á Þórshöfn um
langt skeið.
UM þessar mundir eiga
tvö kaupfélög sjötugs-
afmæli. Kaupf. Lang-
nesinga var stofnað 11. mars
1911 og Kaupfélag Króks-
fjarðar 20. apríl 1911. Svo
skemmtilega vill til, að í
Skjalasafni Sambandsins
eru til frásagnir frumherja
af stofnun beggja þessara
félaga og fyrstu baráttuár-
um og hafa þær aldrei birzt
opinberlega.
• Klofningur og sameining
Jóhannes Árnason, sem
lengi var stjórnarformaður
Kaupfélags Langnesinga,
skrifaði allítarlega frásögn
af stofnun félagsins árið
1949 og fer hluti hennar hér
á eftir:
Ef rita á þróunarsögu
samvinnuhreyfingarinnar i
héraði því, sem verzlun
sækir til Þórshafnar, verður
fyrst að geta þess, að á þeim
árum, sem Gránufélagið er
að rísa á legg, er prestur að
Svalbarði og aðstoðarprest-
ur á Sauðanesi, Gunnar
Gunnarsson, bróðir Tryggva
hins þjóðkunna foringja
þess félags. Fyrir forgöngu
sr. Gunnars var þátttaka í
Gránufélaginu talsvert al-
menn úr þessum sveitum.
Sáu menn glöggt og viður-
kenndu hin bætandi áhrif
félagsins á alla verzlunar-
háttu, þótti vænt um félag-
ið og héldu við það fullri
tryggð, eins lengi og það
starfaði. Má því hiklaust
telja þátttöku í Gránufélag-
inu hinn fyrsta vísi til sam-
vinnuverzlunar i þessu hér-
aði.
Næstur eftir sr. Gunnar,
sem foringi héraðsbúa í
samvinnumálum kemur
Friðrik Guðmundsson, er
varð bóndi að Syðra-Lóni
árið 1884 og bjó þar i 20 ár.
Friðrik var fjölhæfur g'áfu-
maður og vinsæll. Hann
stundaði nám á Möðruvöll-
um harða veturinn 1880—
81. Síðar stofnaði hann með
Jakobi Hálfdánarsyni við
Kaupfélag Þingeyinga tvær
fyrstu haustkauptíðir þess
félags. Að líkum hefur kaup
Friðriks þá ekki verið hátt
að krónutölu, en sem upp-
bót á það eignaðist hann
fyrir konu dóttur Jakobs og
auk þess þann áhuga, er
gerði hann að foringja fé-
lagsmálanna í sínu héraði.
Vorið 1887 boðar Friðrik
til fundar að Ytra-Álandi í
Þistilfirði. Á þeim fundi er
ákveðið að bindast samtök-
um um að byggja verzlun-
arhús á Þórshöfn og lofa
fundarmenn þegar fjár-
framlögum til þess. Þá þeg-
38