Samvinnan - 01.04.1981, Side 46
Svolítið FRÉTTABLAÐ um samvinnumál
Fylgst með fjósinu úr stofunni
Tæknin ryður rér æ meira til rúms, og brátt þurfa
bændur ekki lengur að fara út í fiós til að sinna
kúnum! Þeir geta setið rólegir í stofunni og fylgst
með þeim — á sjónvarpsskermi. Meðfylgjandi mynd
er tekin í Surnadal í Noregi og er tekin þegar verið
var að koma sjónvarpsbúnaði fyrir. Þegar einhver
kýrin er að því komin að bera, er hægt að beina
skjánum beint að henni — og bóndinn getur á-
hyggjulaus fylgst með henni úr stofunni.
Finnar og íslendingar eru
mestir samvinnumenn
Ef mið'að er við markaðshlutdeild samvinnumanna í smá-
söiuverzlun helztu Evrópulanda, kemur í ljós að Finnland
er í efsta sæti með 27,8%, en á hæla þeim kemur ísland
með 27%.
Það er athyglisvert, að
Finnar skuli ná svo góðum
árangri, þegar tillit er tekið
til þess að þar er samvinnu-
hreyfingin klofin, og sam-
vinnusamböndin tvö. SOK
er með 18% verzlunarinnar,
en E-hreyfingin 9,8%. Fyrr-
nefnda sambandinu er
stjórnað af bændum, en
verkalýðshreyfingin hefur
tögl og hagldir í hinu síð-
arnefnda.
Hm góða útkoma okkar
er enn ein sönnun þess, sem
lengi hefur verið vitað, að
ísland er meðal almestu
samvinnulanda heims.
Stórmarkaður framtíðarinnar?
Margir spá því, að mat-
vöruverzlanir muni stór-
breytast í framtíðinni, endi
hafa þær breytzt jafnt og
þétt á umliðnum áratugum.
Hér að neðan er mynd af
franskri hugmynd um stór-
markað framtíðarinnar og
er hann mjög frábrugðinn
því sem nú tíðkast.
Vörunum er raðað niður
eftir allt öðru kerfi en venj-
an er. Um tvær aðaldeildir
er að ræða og eru í annarri
matvörur, sem mjög fljót-
legt og auðvelt er að elda,
en hin hefur að geyma allar
vörur í matarlagningu sem
krefst meiri tíma.
Höfundar hugmyndarinn-
ar segjast byggja þessa nið-
urröðun á hinum nýja lífs-
stíl nútímafólks, þar sem
báðir foreldrar vinni úti.
Rúmhelga daga þarf að
elda matinn i logandi hvelli,
en um helgar og á tyllidög-
um gefa báðir foreldrarnir
sér tíma til að laga verulega
góðan heimatilbúinn mat —
og skeyta engu þótt það taki
svolítinn tíma.
’ repas • repas “ familial rapide 1
M
I þriðja sæti eru Svíar
með 18%, Danir ífjórðasæti
með 14% og Norðmenn í
fimmta sæti með 11,6%.
Næstar koma eftirtaldar
þjóðir: Sviss 11%, Austur-
ríki 8,5%, Bretland 6,7%,
Vestur-Þýzkaland 3,1% og
Frakkland 2,5%
Eifiðar
vöru-
merkingar
Fyrir nokkrum mánuðum
kom ungur maður í Enkö-
pins: í Svíþjóð til lœknis
og reyndist vera með sina-
skeiðabólííu í öðrum úln-
liðnum. Litlu síðar kom
annar maður, og það sem
að honum amaði var ná-
kvæmlega hið sama. Við
eftirgrennslan kom í ljós,
að þcir unnu báðir í sömu
kjörbúðinni og höfðu báð-
ir unnið við að verðmerkja
vörur með níðþungri byssu.
Hins vegar eru fyrir löngu
komin á markað ný og
lauflétt áhöld til að merkja
vörur með, og ættu verzl-
unarstjórar að athuga það
— til þess að íþyngja ekki
starfsfólki sínu að óþörfu.
44