Fréttablaðið - 02.09.2009, Qupperneq 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
GÖNGUFÓLK er enn á ferð um Laugaveginn þótt því hafi
fækkað nokkuð undanfarið. Rétt er að benda á að veður geta orðið
válynd á haustdögum og því mikilvægt að vera vel búinn og fylgjast
með veðurspá áður en lagt er af stað. Skálaverðir Ferðafélags Íslands
verða í skálum fram í september og fylgjast með ferðalöngum.
Velbon þrífætur
mikið úrval
„Þetta eru einhvers konar farartæki – sem er þó aldrei ætlað að fara neitt – en það er hægt að fljúga á þeim í huganum og jafn-vel flýja. Það er ódýrt að ferðast þannig. Svo er farangur sem fylg-ir.“ Þetta segir myndlist kIn
að fara á framandi slóðir en þar á móti kemur að mig dreymir ferða-lög. Á sýningunni eru meira að segja staðir sem ég hef komið á í draumum eða að minnsta kostivísað í þá “
sem sýningin fjallar um að sögn listakonunnar – ekki beinlínis – heldur andrúmsloftið sem ótvírættskapast við að
Hægt að fljúga á þeim í huganum, jafnvel flýja
Myndlistarkonan Inga Þórey Jóhannsdóttir er engin flökkukind í alvörunni. List hennar hverfist þó um
ferðalög eins og glöggt sést á sýningu sem hún opnar í Listasafni Reykjanesbæjar á föstudaginn.
„Ég mætti alveg vera duglegri að fara á framandi slóðir en þar á móti kemur að mig dreymir ferðalög,“ segir Inga Þórey.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
35%
72%
Fr
ét
ta
bl
að
ið
M
or
gu
nb
la
ði
ð
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18 – 49 ára.
Könnun Capacent í maí 2009 – júlí 2009.
Fréttablaðið er með 106%
meiri lestur en Morgunblaðið
Allt sem þú þarft...
MIÐVIKUDAGUR
2. september 2009 — 207. tölublað — 9. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
INGA ÞÓREY JÓHANNSDÓTTIR
Flýgur á framandi
slóðir í huganum
• á ferðinni
Í MIÐJU BLAÐSINS
VIÐSKIPTI Fatnaður frá íslenska
fatamerkinu E-label verður
til sölu í verslun Topshop við
Oxford Circus í Lundúnum.
Ásta Kristjánsdóttir, annar eig-
enda E-label, segir þetta einstakt
tækifæri. „Við erum mjög ánægð-
ar með að hafa komist þarna að.
E-label verður fyrst um sinn selt
í Edit-deildinni þar sem nýir og
upprennandi hönnuðir fá að njóta
sín,“ segir Ásta. Hún segir E-
label vera eitt af sjö fatamerkjum
sem valin voru úr miklum fjölda
umsókna en í viku hverri berist
Topshop um hundrað umsóknir
frá fatahönnuðum.
E-label hefur hlotið afar
jákvæða umfjöllun í erlendum
fjölmiðlum, meðal annars á vef-
síðu tískutímaritsins Elle, í tíma-
ritinu Grazia og í London Paper.
Að sögn Ástu er væntanleg í vor
ný lína frá E-label sem verður sú
fyrsta í lit en hingað til hafa flík-
urnar aðeins fengist í svörtu.
Fatnaður E-label er hannaður á
Íslandi en framleiddur á Indlandi.
Þrjú prósent hagnaðar fyrirtækis-
ins renna til indverskra mannúð-
arsamtaka. Sala á fatnaði E-label í
Topshop hefst 25. október næstkom-
andi. - sm / sjá síðu 34
Íslensk hönnun á boðstólum í verslun Topshop við Oxford Circus:
E-label til sölu í Lundúnum
FÓLK Danska leikkonan Iben
Hjejle verður formaður dóm-
nefndar í keppninni um Gyllta
lundann, aðal-
verðlaunin á
Alþjóðlegu
kvikmynda-
hátíðinni í
Reykjavík,
RIFF, sem
verður haldin
síðar í mánuð-
inum. Hjejle er
vafalítið þekkt-
ust hérlendis sem kona Caspers
Christensen í gamanþáttunum
Klovn.
„Þetta er alveg frábært,“ segir
Hrönn Marínósdóttir hjá RIFF
um komu Iben til landsins. „Það
eru svo margir sem þekkja hana
úr þáttunum og hún er skemmti-
leg leikkona líka. Það er mikil
ánægja með þetta enda er hún
búin að gera mikið af góðum
hlutum.“ Iben verður ein fimm
kvenna í dómefnd hátíðarinnar.
- fb / sjá síðu 34
Alþjóðleg kvikmyndahátíð:
Iben formaður
dómnefndar
LJÓSANÓTT
Menning, tónleikar,
flugeldar og gleði
Sérblað um Ljósanótt
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
ljósanótt Útvarp KaninnKaninn fór í loftið í fyrsta skiptið í gær og sendir út allan sólarhringinn. BLS. 4
MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 2009
Buff spilar lög
Magga Eiríks
Hljómsveitin Buff er að
taka upp plötu með
eigin útgáfum af lögum
Magga Eiríks.
FÓLK 24
Sólkrossinn til
Þýskalands
Rithöfundurinn
Óttar M. Norðfjörð
hefur gert útgáfu-
samning við þýskt
fyrirtæki vegna skáld-
sögunnar Sólkrossinn.
FÓLK 34
Samtal um dauðann
Bragi Skúlason sjúkrahúsprestur
vann rannsóknarverkefni um
ekkla á Íslandi.
TÍMAMÓT 20
HÆGVIÐRI Í dag verður hæg lætis-
veður. Búast má við rigningu með
köflum sunnan- og suðvestan-
lands en það léttir heldur til á
Norður- og Austurlandi. Hlýjast
verður suðvestanlands.
VEÐUR 4
12
9 6
8
5
LÖGREGLUMÁL Efnahagsbrotadeild
Ríkislögreglustjóra rannsakar nú
styrkveitingar fyrirtækja í opin-
berri eigu til stjórnmálaflokka
fyrir kosningarnar 2007. Rann-
sóknin snýst um hugsanlegt lög-
brot flokkanna en ekki fyrirtækj-
anna. Brotin geta varðað sektum
og alvarleg brot gegn lögunum
fangelsi allt að sex árum.
Sjálfstæðisflokkurinn veitti
móttöku styrkjum frá þremur
fyrirtækjum í opinberri eigu:
Neyðarlínunni, Orkubúi Vest-
fjarða og Íslandspósti.
Framsóknarflokkurinn, Sam-
fylkingin og Vinstrihreyfingin
– grænt framboð þáðu einnig
framlög Íslandspósts. Eftir að
Ríkisendurskoðun birti þessar
upplýsingar sögðust flokkarnir
ætla að endurgreiða styrkina.
Í lögum um fjármál stjórn-
málasamtaka sem tóku gildi í
ársbyrjun 2007 er lagt bann við
því að þiggja styrki frá fyrir-
tækjum sem eru að meirihluta
í eigu eða undir stjórn ríkis eða
sveitarfélaga.
Efnahagsbrotadeildin hafði
einnig hug á því í vor að rannsaka
hugsanleg tengsl þrjátíu milljóna
styrks FL Group til Sjálfstæðis-
flokksins og þess sem síðar gerð-
ist í REI-málinu. Einnig stóð þá
til að skoða hugsanleg tengsl 25
milljóna styrks Landsbankans til
sama flokks í tengslum við stofn-
un Landsvirkjun Power.
Efnahagsbrotadeildin hafði
jafnframt hug á að taka fríð-
indi sem kjörnir fulltrúar nutu
til skoðunar, sérstaklega fræga
laxveiðiferð nokkurra kjörinna
fulltrúa í boði Hauks Leóssonar.
Ríkissaksóknari staðfestir að
ekki hafi verið taldar nægilegar
vísbendingar til formlegrar
rannsóknar á þessum málum.
Þurft hefði að sýna fram á að
styrkir og fyrirgreiðslur hefðu
verið veittar til að hafa áhrif á
afgreiðslu stjórnvalds í málum
tengdum fyrirtækjunum. Erfitt
væri að sanna það. Helgi Magnús
Gunnarsson, saksóknari efnahags-
brota, segir að aðrir styrkir en frá
opinberu fyrirtækjunum verði
ekki skoðaðir meira nema frekari
upplýsingar berist embættinu.
Þess má geta að rannsóknar-
nefnd Alþingis er að skoða sam-
skipti bankanna við kjörna full-
trúa síðustu árin. - kóþ / sjá síðu 12
Lögregla rannsakar opinbera
styrki til stjórnmálaflokka
Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra skoðar styrki opinberra fyrirtækja til stjórnmálaflokka. Rannsóknin
beinist að styrkþegunum, en fjórir flokkar þáðu slíka styrki. Brotin geta varðað sektum eða fangelsisvist.
IBEN HJEJLE
Landsliðs-
hópurinn klár
Landsliðsþjálfarinn
útskýrir af hverju
Jóhannes Karl er
ekki í leikmanna-
hópnum.
ÍÞRÓTTIR 28
SIGLDIR OG SJÓAÐIR Þessir félagar á Dísinni tóku þátt í þriðjudagskeppni siglingaklúbbsins Brokeyjar í gær og sjást hér koma á
leiðarenda í Reykjavíkurhöfn. Keppni af þessu tagi hefur verið haldin vikulega í allt sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM