Fréttablaðið - 02.09.2009, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 02.09.2009, Blaðsíða 40
28 2. september 2009 MIÐVIKUDAGUR sport@frettabladid.is 9. HVER VINNUR ! Vinningar verða afhendir hjá ELKO Lindum – Skógarlind 2. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 149 kr/skeytið. FRUMSÝND 4. SEPTEMBER 2009 SENDU SMS ESL H2 Á NÚMERIÐ 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ! VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR, TÖLVULEIKIR, AÐRAR DVD MYNDIR, PEPSI OG MARGT FLEIRA. 5. september á Ljósanótt í Reykjanesbæ Flögu tímataka Kort af hlaupaleið er á hlaup.is Skráning er hafin á hlaup.is og í Lífsstíl 420 7001 Glæsileg úrdráttarverðlaun, m.a. peningaverðlaun Rásmark hjá Lífsstíl sundmiðstöð Hálfmaraþon (ræsing kl. 9:30) 10 km hlaup (ræsing kl. 10:15) 3,5 km skemmtiskokk (ræsing kl. 10:20) FÓTBOLTI Það þykir sæta tíðindum að atvinnumaður í knattspyrnu sem leikur með liði í efstu deildum Englands skuli ekki fá tækifæri með íslenska landsliðinu. Engu að síður hefur Jóhannes Karl Guð- jónsson aldrei spilað með lands- liðinu þegar það hefur verið undir stjórn Ólafs Jóhannessonar. Hann hefur þó tvívegis verið valinn en í hvorugt skiptið komst hann í við- komandi verkefni. Í viðtali við Morgunblaðið sem birtist 17. ágúst síðastliðinn segir Jóhannes Karl farir sínar ekki sléttar í samskiptum sínum við Ólaf. Hann sitji ekki við sama borð og aðrir leikmenn. Því er Ólafur ekki sammála. „Það koma allir leikmenn til greina,“ segir Ólafur. „Allir leik- menn sitja við sama borð, hvort sem þeir spila á Íslandi eða ann- ars staðar. Allir verða að lúta sömu reglum.“ Jóhannes segir í viðtalinu að Ólafur hafi tekið sínar ástæður fyrir fjarverum sínum góðar og gildar. „Ég hef valið hann tvisvar sinnum,“ segir Ólafur um þessi ummæli hans. „Í annað skiptið hringdi hann í mig rétt áður en hann átti að fara í flug og sagðist vera meiddur – að hann væri jafn- vel rifbeinsbrotinn. Ekki spilar hann þannig. En svo spilaði hann með Burnley nokkrum dögum síðar.“ „Í hitt skiptið gaf hann ekki kost á sér af fjölskylduástæðum – vegna þess að sonur hans átti afmæli. Þetta var því spurning um hvort ég tæki slíkar afsakan- ir góðar og gildar. En mér finnst þessi afsökun léleg og nánast eins og blaut vatnstuska í andlitið. En ég stilli mönnum ekki upp við vegg. Ef þeir vilja ekki koma er það þeirra val.“ Nokkru síðar fór svo Ólafur til Englands til að fylgjast með Jóhannesi Karli spila. Jóhann- es sagði í áðurnefndu viðtali að Ólafur hefði tilkynnt sér að hann ætlaði sér að velja hann í hópinn. „Það er ekki rétt,“ sagði Ólafur. „Ég var ekki búinn að lofa honum sæti í landsliðinu enda get ég ekki lofað mönnum því. En vissulega fór ég til Englands til að sjá hann spila vegna þess að ég íhugaði að velja hann. Eftir leikinn sá ég hins vegar ekki ástæðu fyrir því. Það er ekki flóknara en svo.“ Líkurnar hafa nú minnkað tals- vert á að Jóhannes Karl verði val- inn í landsliðið á meðan Ólafur er þjálfari þess. „Ég hef reyndar ekki talað við hann og veit ekki hvort það var rétt eftir honum haft. En hann segir í greininni að hann telji mig á rangri leið með landsliðið. Og leikmenn sem hafa ekki trú á því sem þjálfarinn gerir eru sjald- an valdir,“ segir Ólafur. eirikur@frettabladid.is Afsakanir Jóhannesar eins og blaut tuska í andlitið Jóhannes Karl Guðjónsson hefur aldrei spilað landsleik undir stjórn Ólafs Jóhannessonar en hefur þó tvívegis verið valinn. Ólafur tjáir sig nú í fyrsta sinn um þær ástæður sem Jóhannes Karl gaf honum fyrir fjarveru sinni. ÞJÁLFARINN OG LEIKMAÐURINN Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari og Jóhannes Karl Guðjónsson, leikmaður Burnley. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON OG GETTY FÓTBOLTI Landsliðsþjálfarinn Eyjólfur Sverrisson hjá U-21 árs landsliði karla hefur valið lands- liðshópinn sem mætir Norður- Írum í undankeppni EM 2011 þriðjudaginn 8. september næst- komandi en leikið verður ytra. Landsliðshópur Íslands er eftirfarandi: Markmenn: Haraldur Björns- son (Val), Óskar Pétursson (Grindavík). Varnarmenn: Hólmar Örn Eyjólfsson (West Ham United), Hjörtur Logi Val- garðsson (FH), Skúli Jón Frið- geirsson (KR), Andrés Már Jóhannesson (Fylki), Jósef Krist- inn Jósefsson (Grindavík), Jón Guðni Fjóluson (Fram). Miðju- menn: Birkir Bjarnason (Viking), Bjarni Þór Viðarsson (KSV Ros- elare), Aron Einar Gunnarsson (Coventry), Jóhann Berg Guð- mundsson (AZ Alkmaar), Guð- mundur Kristjánsson (Breiða- bliki), Almarr Ormarsson (Fram), Guðlaugur Victor Páls- son (Liverpool). Sóknarmenn: Rúrik Gíslason (Viborg), Kol- beinn Sigþórsson (AZ Alkma- ar), Alfreð Finnbogason (Breiða- bliki). - óþ Eyjólfur Sverrisson tilkynnti landsliðshóp í gær: Mæta Norður-Írum FÓTBOLTI Ólafur Jóhannesson lands- liðsþjálfari tilkynnti í gær leik- mannahópinn sem mætir Noregi í undankeppni HM 2010 á laugar- daginn og Georgíu í vináttulands- leik á miðvikudaginn í næstu viku. 22 leikmenn voru valdir og kom fátt á óvart í valinu. Leikurinn á laugardaginn er afar þýðingarmikill fyrir Norð- menn. Liðið á í harðri baráttu við Skota og Makedóna um annað sæti í riðlinum og er sigur á Íslandi nauðsynlegur fyrir þá baráttu. Norðmenn unnu Skota, 4-0, á heimavelli í síðasta mánuði. „Það var fyrsti sigur Norðmanna í heilt ár,“ segir Ólafur, sem segir liðið ekki mikið breytt þó svo að Egil „Drillo“ Olsen hafi tekið við því. „Drillo er þekktur fyrir sínar aðferðir. Liðið beitir löngum spyrn- um og er sterkt í seinni boltunum. Þeir hafa náð fínum árangri með sínum aðferðum sem er auðvitað aðalmálið.“ Hann segir greinilegt að sjálfs- traust Norðmanna sé mikið. „Þeir vita vel hversu þýðingarmikill leik- urinn er en ég held að við eigum góðan möguleika á sigri. Við vilj- um að sjálfsögðu fá fleiri stig í riðlinum enda væru það vonbrigði að enda bara með fjögur stig.“ Leikurinn við Noreg er sá síðasti hjá Íslandi í riðlinum. Samningur Ólafs rennur því fljótlega út. „Við munum ræða þessi mál eftir leikina,“ sagði Ólafur en hefur hann áhuga á að halda áfram? „Ég mun svara þeim fyrst sem þurfa að vita hvort ég hafi áhuga eða ekki.“ Landsliðshópurinn: Árni Gautur Arason, Gunnleifur Gunnleifsson, Hermann Hreiðarsson, Indriði Sigurðsson, Kristján Örn Sig- urðsson, Grétar Rafn Steinsson, Ragnar Sigurðsson, Sölvi Otte- sen, Brynjar Björn Gunnarsson, Stefán Gíslason, Emil Hallfreðs- son, Birkir Sævarsson, Pálmi Rafn Pálmason, Aron Einar Gunnars- son, Helgi Valur Daníelsson, Ólaf- ur Ingi Skúlason, Rúrik Gíslason, Eiður Smári Guðjohnsen, Heiðar Helguson, Veigar Páll Gunnars- son, Garðar Jóhannsson og Atli Viðar Björnsson. - esá Landsliðið valið fyrir leikina gegn Noregi og Georgíu: Eigum góðan möguleika á sigri ÓLAFUR OG PÉTUR Tilkynntu landsliðs- hópinn í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Kári Ársælsson er leikmaður 19. umferðar að mati Fréttablaðs- ins. Hann skoraði eitt mark í 3-1 sigri sinna manna í Breiðabliki gegn hans gömlu félögum í Stjörnunni, þar sem Kári lék í fyrra. Breiðabliki hefur gengið vel að undanförnu enda hefur liðið fengið þrettán stig af fimmtán mögulegum í síðustu fimm leikjum sínum í deildinni og er þar að auki komið í undanúrslit bikarkeppninnar. „Við höfum verið á bullandi siglingu og þurfum nú helst að passa okkur á því að vera með fæturna á jörðinni,“ sagði Kári. Breiðablik hefur komist í 3-0 í fyrri hálfleik í síðustu þremur leikjum sínum í deildinni en í þeim fyrsta, gegn Fram, missti liðið forystuna í þeim síðari. Leiknum lauk með 3-3 jafntefli. „Það hefur verið gríðarlega góður sigur fyrir okkur leikmenn og þjálfara að hafa náð að halda forystunni út leikinn bæði gegn Val og Stjörnunni eftir leikinn gegn Fram. Við erum greinilega í góðum gír í fyrri hálfleik okkar leikja – það vantar ekki.“ Hann neitar því ekki að þetta góða gengi Blikanna komi helst til seint enda stutt eftir af tímabilinu. „Ég var ekki með Blikunum í fyrra en þá spiluðu þeir illa á síðasta hluta mótsins. Nú erum við að spila vel og vissulega hefðum við mátt hrökkva fyrr í gang. En þetta fer allt í reynslubankann. Næsta ár lofar vissulega góðu fyrir Breiða- blik enda með góða leikmenn, unga uppalda Blika sem hafa fengið nóg að spila. Flestir eru þeir átján og nítján ára gamlir og afar þroskaðir miðað við aldur. Mér líst því vel á framtíðina.“ Hann segir liðið stefna eins hátt og það getur í deildinni og vitanlega alla leið í bikarnum. „Ég tel það raun- hæft fyrir okkur að stefna að fjórða sætinu í deildinni. Það væri þó vel hægt að enda í tíunda sæti ef við pössum okkur ekki. Við ætlum því að reyna að klára tímabilið með stæl og helst fara alla leið í úrslitaleikinn í bikarnum líka.“ KÁRI ÁRSÆLSSON: LEIKMAÐUR 19. UMFERÐAR PEPSI-DEILDAR KARLA Næsta ár lofar góðu fyrir Breiðablik > Lið 19. umferðar Fréttablaðið hefur valið lið 19. umferðar í Pepsi-deild karla. Það skipa eftirtaldir leikmenn: Henryk Boedker (Þrótti) – Skúli Jón Friðgeirsson (KR), Kári Ársælsson (Breiðabliki), Dennis Danry (Þrótti), Sam Tillen (Fram) – Alfreð Finnbogason (Breiða- bliki), Atli Jóhannsson (KR), Tony Mawejje (ÍBV), Tómas Leifsson (Fjölni) – Albert Brynjar Ingason (Fylki) og Ajay Leitch-Smith (ÍBV).

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.