Fréttablaðið - 02.09.2009, Blaðsíða 22
2. SEPTEMBER 2009 MIÐVIKUDAGUR2 ● fréttablaðið ● ljósanótt
Steinþór Jónsson, upphafs-
maður og formaður Ljósanætur-
nefndar, hefur fylgt Ljósahátíð
úr garði í öll þau ár sem hátíðin
hefur verið haldin, en í ár er
tíunda hátíðarárið.
Ljósanótt stendur í fjóra daga, í
stað eins, og fjörutíu þúsund manns
sóttu hana síðast. „Upphaf Ljósa-
nætur tengist vígslu á klettavegg-
slýsingu á Berginu sem í dag býður
gesti Reykjanesbæjar velkomna,“
segir Steinþór.
Segja má að það hafi verið með
gleraugum hótelstjórans sem Stein-
þór sá fyrir sér hvernig aðkoma að
bænum gæti orðið mun skemmti-
legri, en hann var og er hótelstjóri
Hótel Keflavíkur. Eftir að hafa
melt hugmyndina í um eitt og hálft
ár kom hann henni í framkvæmd
með hjálp ítalskra ljósahönnuða og
árið 2000 stóð hann um miðja nótt
hinum megin við Keflavíkurvíkina,
með farsíma í hendi, og leiðbeindi
ljósameisturum úr fjarlægð.
Steinþór viðurkennir að hann
hafi fengið vægt sjokk þarna um
nóttina þegar verið var að stilla
kastarana – sem vísuðu fyrst þvers
og kruss. „Þessi fína mynd komst
hins vegar á þetta og í dag nýtum
við upplýst Bergið í kynningu á
bæjarfélaginu. Þá var næsta verk
að vígja lýsinguna og út frá því
kom Ljósanóttin.“
Eins og flestir vita gekk Ljósa-
nótt vonum framar og flugelda-
sýningin sem Björgunarsveit Suður-
nesja hefur alltaf séð um endurka-
staðist í sjónum og setti punktinn
yfir i-ið.
„Bæjarbúar tóku hátíðinni af-
skaplega vel og það er þeim að
þakka fyrst og fremst, ásamt því
frábæra fólki sem unnið hefur í
Ljósanæturnefnd, hve vel þetta
hefur allt saman tekist en Ljósa-
nótt er önnur stærsta bæjarhátíðin
á Íslandi í dag. Við byrjuðum á því
að fá 10.000 manns á hátíðina og
á síðustu hátíð voru gestir orðnir
40.000,“ segir Steinþór en margar
fjölskyldur eru farnar að nota Ljós-
anóttina sem tilefni til að hittast
og eiga glaða stund saman þetta
kvöld.
„Dagskráin er löng og erfitt að
telja upp það sem í boði er en sem
dæmi má nefna að á svæðinu er
ótrúlegur fjöldi myndlistar sýninga
og það er orðinn fastur liður að há-
tíðin sé notuð til að vígja stærri
verk. Þannig er það orðið að frasa
að eitthvað verði að klárast fyrir
Ljósanótt – jafnvel að parkett leggja
áður en stórfjölskyldan kemur
í bæinn.“ Að þessu sinni verður
göngustígur frá Berginu út í Stapa
kláraður. Einnig verður bæjar-
klukka sett upp á Hafnargötunni.
„Það hefur verið heiður að fá að
stýra þessu verkefni og vinna með
bæjarbúum í að gera góðan bæ
betri. Ljósanótt hefur sameinað
bæjarbúa.“ - jma
Sameinar stórfjölskyldur
Upphafsmaður Ljósanætur og hótelstjóri Hótel Keflavíkur, Steinþór Jónsson, segir Ljósanótt orðna að annarri stærstu hátíð
landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Í tilefni af tíu ára afmæli Ljósa-
nætur er kominn út diskur með
öllum lögunum sem hafa unnið
Ljósalagskeppnina frá upphafi.
Hann heitir einfaldlega Ljósalög-
in frá 2002 til 2009 og Geimsteinn
gefur hann út.
Ég sá ljósið eftir Rúnar Júlíus-
son er meðal laga á nýja diskinum.
Það er ljósalag ársins að þessu
sinni, sungið af Sigurði Guð-
mundssyni, söngvara og orgelleik-
ara Hjálma. Lagið kom fyrst út á
sólóplötu Rúnars 1976 og Baldur,
sonur hans, kveðst muna vel eftir
útgáfu hennar. „Ég var að pakka
inn plötum og senda í póstkröfu út
um allt land,“ rifjar hann upp.
Keppnin um Ljósalagið var
fyrst haldin árið 2002 þar sem
leitað var eftir einkennislagi
Ljósa nætur og sigraði Ásmundur
Valgeirsson þá með lagið „Vel-
komin á Ljósanótt“. Lagið hefur
síðan verið flutt við setningu
Ljósanætur ár hvert. Síðan þá
hefur keppnin verið haldin í
ýmsum myndum og mörg góð lög
litið dagsins ljós svo sem „Ljóssins
englar“ eftir Magnús Kjartansson
og „Ástfangin“ eftir Védísi Her-
vöru. Árið 2007 var engin keppni
haldin en Jóhann Helgason feng-
inn til að semja Ljósalag og fékk
það nafnið „Ó, Keflavík“.
Í ár var tekin sú ákvörðun að
heiðra minningu Rúnars Júlíus-
sonar með því að velja lag úr
hans safni sem Ljósalag árs-
ins en Rúnar var Listamaður
Reykjanesbæjar síðustu æviár
sín. Lokalag þessa disks er „Gamli
bærinn minn“ eftir Gunnar
Þórðar son og Þorstein Eggerts-
son sem reglulega hefur verið
flutt við lok stórglæsilegrar flug-
eldasýningar Ljósanætur.
Diskurinn verður til sölu í tjaldi
körfuknattleiksdeilda Keflavíkur
og Njarðvíkur á hátíðarsvæði. - gun
Öll lögin á einum diski
Baldur Guðmundsson í Geimsteini, elstu plötuútgáfu landsins, Valgerður Guðmunds-
dóttir, menningarfulltrúi Reykjanesbæjar, og Steinþór Jónsson, formaður
Ljósanætur nefndar.
Kynning á pólskum réttum verður í veislutjaldi á hátíðasvæði
ljósanætur á laugardaginn. Ein þeirra sem undirbýr hana er
Grazyna Wroblewska sjúkraliði. „Þarna verða súpa og pottréttir,
pólsk kaka með eplum og önnur með skyri. Já, og pólskar pylsur,
grillaðar,“ segir hún.
Tvær pólskar búðir eru í
bænum, önnur á Hafnargötu
og hin á Hringbraut. Graz-
yna segir krydd og ýmis-
legt hráefni í réttina koma
úr þeim og tekur fram að það
sé Pólska menningarfélagið
í Reykjanesbæ sem standi að
veitingunum, ásamt mynda-
sýningu og skemmtiatriðum
sem hún lýsir nánar.
„Við erum með sýningu
eftir pólskan mann sem ferð-
aðist um Ísland og tók rosa-
lega fallegar myndir. Svo
kemur pólsk fjölskylda frá Ísafirði sem syngur og dansar á
stóra sviðinu. Þar eru þrír strákar sem verða í gömlum fallegum
búningum frá Kraká.“
Pólska menningarfélagið var stofnað síðastliðinn vetur og
Grazyna segir það hafa langað að leggja eitthvað til hátíðar-
innar. Við búum hérna í þessu landi og á þessu svæði og viljum
gjarnan taka þátt í því sem er að gerast. Ekki bara hlusta og
horfa.“ - gun
Pólsk veisla og sýning
● LJÓSLISTAVERK VIÐ ÆGISGARÐ Á fimmtudagskvöldið kl.
20.30 verður ljósalistaverk eftir Guðmund Rúnar Lúðvíksson afhjúpað
við Ægisgarð en verkið er tólf metra langt og myndar eins konar vatns-
bragga. Þannig ganga átján bunur í boga út í sjó og hægt er að ganga
inn í hann en með lýsingunni myndast fallegir regnbogar. Bragginn snýr
út að Reykjavík en Guðmundur stendur ekki aðeins fyrir listaverkinu held-
ur byrja tónleikar strax á eftir í Svarta Pakkhúsinu. Þar munu um fjörutíu
manns koma að tónleikunum í eins konar sígaunauppsetningu. Öll tón-
list er frumsamin og ný eftir Guðmund Rúnar sjálfan. - jma
„Við búum hérna í þessu landi og á
þessu svæði og viljum gjarnan taka þátt
í því sem er að gerast,“ segir Grazyna
Wroblewska. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Nýr göngustígur verður formlega tekinn í notkun á laugar-
daginn. Stígurinn liggur frá smábátahöfninni í Gróf meðfram
strandlengjunni að Stapa í Innri-Njarðvík. Gönguleiðin verður
opnuð með sögugöngu kl. 11 á laugardagsmorguninn.
Gönguleiðin liggur meðfram nýjum sjóvarnagarði sem lagður
hefur verið í Reykjanesbæ og hefur hún verið upplýst að stórum
hluta. Á gönguleiðinni hefur verið komið upp skiltum með upp-
lýsingum um fuglalíf við sjávarströndina sem og sögukortum.
Gönguleiðin, sem verður hátt í 10 kílómetrar að lengd þegar
henni hefur endanlega verið lokið, hefur enn ekki hlotið nafn en
niðurstaða í hugmyndasamkeppni meðal bæjarbúa verður kynnt
við opnunina.
Nýr göngustígur
Gönguleiðin nær frá smábátahöfninni í Gróf og að Stapa í Innri-Njarðvík.
Fyrsti skuttogarinn á Íslandi, Baldur KE, stendur meðal annars við stíginn.