Fréttablaðið - 02.09.2009, Blaðsíða 2
2 2. september 2009 MIÐVIKUDAGUR
UMHVERFISMÁL „Ef hlýnun lofts-
lags heldur áfram á þessari öld
eins og gert er ráð fyrir verður
aukningin gífurleg,“ segir Brynj-
ólfur Jónsson, framkvæmdastjóri
Skógræktar félags Íslands, um þá
sprengingu sem orðin er hér á
landi í sjálfsánum trjágróðri.
„Þróunin hefur verið ört vax-
andi á síðustu árum. Það munu
breiðast út hér birkiskógar og
víðir aðallega og þekja allt lág-
lendi þar sem beit hamlar ekki,“
segir Brynjólfur.
Útbreiðsla skóga mun ráðast af
því hvernig beit verður háttað í
framtíðinni. Brynjólfur segir að
þar fari sauðkindin fremst í flokki.
Hann bendir á að fyrir fáeinum
áratugum hafi
verið um ein
milljón kinda
hér á vetrar-
fóðrum. Í dag
séu það aðeins
um 400 þúsund
fjár auk þess
sem dregið hafi
úr beit á úthög-
um. „Tiltölulega
lítið af sauð-
fé getur einfaldlega haldið niðri
svona gróðri,“ útskýrir hann.
Brynjólfur segir trjágróður víða
vera að ná sér á strik. „Á aðalfundi
Skógræktarfélagsins um síðustu
helgi var til dæmis rætt um land-
nám birkis á Skeiðarársandi. Þar
er að vaxa upp fimm þúsund hekt-
ara samfelldur birkiskógur. Og á
Vestfjörðum eru allir firðir að
fyllast af birki og víði,“ er meðal
dæma sem Brynjólfur nefnir. Þá
minnist hann einnig á Austurland,
Hvalfjörð og svæði við þéttbýlis-
mörk höfuðborgarsvæðisins.
Mikið hefur verið ræktað af
skógum síðustu ár en Brynjólf-
ur segir þá starfsemi munu skila
miklu minna en sú sjálfsáning sem
nú sé hafin og aukast muni ár frá
ári. Fyrst og fremst verði það birki,
víðir og ösp sem breiðist út því fræ
furu og grenis séu þyngri og ber-
ist aðeins fáeina tugi metra með
vindi en fræ fyrrnefndu tegund-
anna geti borist marga kílómetra.
Þar sem birkiskógurinn vaxi nú
upp skammt vestan gömlu Skaftár-
brúarinnar séu til dæmis all margir
kílómetrar í næsta skóg.
„Fé hefur ekki verið sleppt á
Skeiðarársand í mörg ár. Þar er
orðið mannhæðarhátt birki og það
verður kominn nokkuð samfelldur
birkiskógur á Skeiðarársandi eftir
tuttugu til þrjátíu ár,“ segir Brynj-
ólfur.
Miklar breytingar munu verða
á vistkerfi landsins verði það viði
vaxið milli fjalls og fjöru eins og
þegar landnámsmennirnir settust
hér að. „Slíkum skógum fylgir
mikið og fjölbreytt vistkerfi, alls
kyns smálífverur, sveppir og
annað. En allt hefur þetta tilhneig-
ingu til að leita jafnvægis,“ segir
Brynjólfur. gar@frettabladid.is
Skógar munu þekja
allt láglendi Íslands
Allt láglendi Íslands mun verða undirlagt af sjálfsprottnum skógi vegna minni
sauðfjárbeitar og hlýnandi loftslags. Þegar kominn fimm þúsund hektara birki-
skógur á Skeiðarársandi, segir framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Íslands.
SJÁLFSPROTTIN TRÉ Rétt ofan við byggðina í Árbæ og Norðlingaholti er mikið af sjálf-
sánum trjám eins og hér við Suðurlandsveg hjá Hólmsá. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BRYNJÓLFUR
JÓNSSON
MALASÍA, AP Alain Robert, sem
hefur verið uppnefndur Köngu-
lóarmaðurinn, var handtekinn
í Malasíu í gær eftur að hann
hafði klifrað upp annan tvíbura-
turnanna í höfuðborginni Kúala
Lúmpúr.
Robert læddist framhjá
öryggisvörðum við Petronas-
turnana og náði að komast upp
á topp byggingarinnar. Hann
hefur áður reynt að klífa bygg-
ingarnar, sem eru 88 hæða, en í
bæði skiptin verið stöðvaður og
handtekinn í kringum sextug-
ustu hæð. Hann gæti nú átt yfir
höfði sér sex mánaða fangelsi og
850 dollara sekt vegna málsins.
- þeb
Klifrarinn Alain Robert:
Á topp hæsta
húss Malasíu
PETRONAS-TURNARNIR Alain Robert
reyndi síðast að klífur turnana árið 2007.
NORDICPHOTOS/AFP
Bjarni, er allt að verða
band-ý-vitlaust?
„Já, það eru sífellt fleiri sem láta
kylfu ráða kasti.“
Bandýíþróttin hefur sótt í sig veðrið á
Íslandi. Bjarni Rafn Gunnarsson leikur
bandý með Bandýmannafélaginu Viktori.
AFGANISTAN, AP Alþjóðlegt uppbyggingarstarf í
Afganistan hefur að mörgu leyti verið unnið fyrir
gýg árum saman vegna þess að samhæfingu hefur
skort.
Þetta segir Kai Eide, yfirmaður Sameinuðu þjóð-
anna í Afganistan, sem heldur því fram að ríkin sem
standa að uppbyggingarstarfi í Afganistan verði að
átta sig á því að samhæfa verði starfið og setja þeim
heildstæð markmið.
„Smáskammtaaðferðirnar munu skila ekki
árangri,“ sagði Eide. „Nú er komið nóg af slíkum
aðferðum.“
Eide útlistaði ekki nánar hvað hann ætti við, en
uppbyggingarstarfið í Afganistan hefur oft verið
gagnrýnt fyrir að áherslan sé á smærri verkefni
sem auðvelt er að framkvæma en skila kannski litl-
um árangri fyrir landið í heild. Stærri verkefni á
borð við endurnýjun og uppbyggingu vegakerfisins
hafi mætt afgangi.
Í dag koma háttsettir embættismenn frá 27 lönd-
um saman í París til að ræða uppbyggingarstarfið í
Afganistan, sem nú hefur staðið yfir í nærri átta ár.
Búist er við að fundurinn verði til þess að afgönsk
stjórnvöld taki á sig meiri ábyrgð.
Ástandið í Afganistan hefur versnað töluvert.
Ofbeldi hefur sjaldan verið meira og nýafstaðnar
forsetakosningar gætu orðið uppspretta nýrra átaka
vegna óvissu um úrslitin og ásakana um kosninga-
svindl. - gb
Yfirmaður Sameinuðu þjóðanna í Afganistan segir uppbyggingarstarf á villigötum:
Fjöldi ára hefur farið í súginn
KAI EIDE Erindreki Sameinuðu þjóðanna í Afganistan segir nóg
komið af smáskammtaaðferðum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BORGARMÁL Borgarstjórn Reykja-
víkur samþykkti á fundi sínum
í gær tillögu meirihluta Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknar-
flokks um að efna til hug-
myndaþings
í Reykjavík á
haustmánuð-
um.
Á hugmynda-
þingi hafa
borgarbúar
tækifæri til
að skiptast
á skoðunum
um málefni
borgarinnar
og koma fram
með hugmyndir um tækifæri
eða úrbætur á sviði atvinnu-,
umhverfis-, mennta- eða skipu-
lagsmála. Hugmyndaþing
verður framkvæmt í samstarfi
við íbúa, háskóla og félaga- og
hagsmunasamtök.
Hanna Birna Kristjánsdóttir
borgarstjóri segir að þingið sé
mikilvægur vettvangur til að
koma á framfæri góðum hug-
myndum sem borgarbúar og
borgaryfirvöld geti unnið úr í
sameiningu. - shá
Hugmyndaþing í Reykjavík:
Hugmyndavett-
vangur borgara
VINNUMARKAÐUR Öllum starfs-
mönnum Alþjóðahúss, fjórtán tals-
ins, hefur verið sagt upp störfum
frá og með áramótum. Ástæðan
er tafir á afgreiðslu þjónustu-
samnings Reykjavíkurborgar við
Alþjóðahúsið fyrir næsta ár. Full-
trúar Alþjóðahúss og Reykjavíkur-
borgar benda hvor á annan þegar
spurt er um ástæður tafanna.
Anna Kristinsdóttir, mannrétt-
indastjóri borgarinnar, en mann-
réttindaráðið sér um samningsgerð-
ina, sagði í fréttum RÚV í gær að
ástæðan væri sú að Alþjóðahús ætti
eftir að skila ársreikningum.
Katla Þorsteinsdóttir, stjórnar-
formaður Alþjóðahúss, segir hins
vegar að öllum reikningum sem
máli skipta hafi verið skilað í vor.
Nú sé hins vegar verið að kalla eftir
ársreikningi sjálfseignarstofnunar-
innar sem á Alþjóðahús, en kemur
ekki nálægt rekstrinum. Það sé
smámunasemi þótt í samningum
segi að honum skuli skilað.
Katla gagnrýnir jafnframt að
framlag borgarinnar þetta árið,
sem hefur verið þrjátíu milljónir á
ári, hafi án samráðs við Alþjóðahús
verið lækkað í tuttugu milljónir, og
það á miðju starfsári þegar áætl-
anir höfðu gert ráð fyrir meira fé.
Enn fremur hafi fimm milljónir af
þessum tuttugu átt að berast í gær,
en það ekki gengið eftir vegna áður-
nefndrar deilu.
Störf þessara fjórtán starfs-
manna og um 300 verktaka þar til
viðbótar eru nú í uppnámi þar til
greitt verður úr deilunni. - sh
Ásakanir um slóðaskap ganga á víxl á milli Alþjóðahúss og Reykjavíkurborgar:
Öllum sagt upp í Alþjóðahúsi
ALÞJÓÐAHÚS Í Alþjóðahúsi er rekin
ýmis þjónusta fyrir útlendinga, og upp
á síðkastið hefur þeim verið veitt mikil
aðstoð við að flytja úr landi frá eignum
og skuldum. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
1.800 í Papey
Ríflega 1.800 manns hafa farið út í
Papey í sumar með Papeyjarferðum.
Það er um fimmtán prósenta aukn-
ing frá eldra farþegameti. Forsvars-
menn Papeyjarferða eru ánægðir
með sumarið eins og fleiri á Djúpa-
vogi, að því er segir á fréttavefnum
djupivogur.is.
SAMGÖNGUR
Vetraropnun á Ylströndinni
Afgreiðslutími á Ylströndinni í Naut-
hólsvík fyrir veturinn tekur gildi í dag.
Opið verður á mánudögum klukkan
17-19, á miðvikudögum 11-13 og 17-
19 og á föstudögum klukkan 11-13.
Áfram verður frítt í búningsaðstöðu,
sturtur og heitan pott.
ÚTIVIST
Ríkislögreglustjóri hefur farið fram
á að gerðar verði viðbragðsáætl-
anir í skólum landsins. Á Akranesi
hefur til dæmis verið farið yfir reglur
um viðbrögð og aðgerðir vegna
undirmönnunar í leikskólum, sem
skapast í veikindum eða öðrum
fjarvistum starfsmanna í leikskólum
bæjarins.
SKÓLAR
Áætlun vegna
undirmönnunar
VIÐSKIPTI Eik fasteignafélag hf.
tapaði tæpum 334 milljónum
króna á fyrri helmingi ársins. Tap
félagsins allt árið í fyrra nam 31,6
milljónum. Í tilkynningu um upp-
gjörið segir að velta Eik hafi verið
903 milljónir króna, sem er tólf
prósenta aukning frá fyrra ári.
Heildareignir félagsins voru að
andvirði 20,4 milljarðar króna og
handbært fé frá rekstri var 193
milljónir króna.
Í tilkynningunni segir enn frem-
ur að ekki hafi tekist að semja
um endurfjármögnun lána sem
voru á gjalddaga í júní að fjárhæð
537 milljónir króna en viðræður
standa yfir.
Fasteignafélagið Eik:
Tapið nemur
334 milljónum
EFNAHAGSMÁL Fimmti hver ein-
staklingur hefur þurft á sérstök-
um úrræðum að halda til að geta
staðið skil á greiðslu lána. Þetta
er niðurstaða skoðanakönnunar
sem Capacent Gallup gerði fyrir
ASÍ í júlí. Svo virðist sem jafn-
hátt hlutfall tekjuhæsta hópsins
og þess tekjulægsta sé í vanda.
Af þeim sem telja sig í vand-
ræðum hafa sjötíu prósent sótt
um eða nýtt sér þau úrræði sem
í boði eru. Þeim mun menntaðra
sem fólk er, því líklegra er að
það sæki sér aðstoðina sem í
boði er. Einungis 37 prósent
þeirra sem hafa nýtt sér úrræð-
in telja þau leysa málin nægjan-
lega vel. - sh
Skoðanakönnun ASÍ:
19 prósent þurft
sérstök úrræði
HANNA BIRNA
KRISTJÁNSDÓTTIR
LÖGREGLUMÁL Fimm menn gistu
fangageymslur lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu eftir að
hafa verið gripnir við innbrot í
fyrrinótt. Einn hafði brotist inn
í fyrirtæki við Gjáhellu í Hafn-
arfirði og fannst í hnipri undir
fjórhjóli. Fjórir brutust inn í
söluturn í Árbæjarhverfi og
stálu talsverðu af tóbaki.
Lögregla stöðvaði þá á bíl
skömmu síðar og var þýfið í
bílnum. Þeir verða yfirheyrð-
ir með aðstoð túlks. Einn komst
undan eftir innbrot í íbúð við
Kleppsveg, þaðan sem hann stal
einhverjum verðmætum.
Innbrot í höfuðborginni:
Þjófur faldi sig
undir fjórhjóli
SPURNING DAGSINS