Fréttablaðið - 02.09.2009, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 02.09.2009, Blaðsíða 42
30 2. september 2009 MIÐVIKUDAGUR FÓTBOLTI Tottenham gekk frá kaupum á króatíska landsliðs- manninum Niko Kranjcar frá Portsmouth í gær en kaupverðið var ekki gefið upp. Samningur Kranjcars átti að renna út næsta sumar og leik- maðurinn var búinn að koma því skýrt frá sér að hann ætlaði sér ekki að framlengja við félagið og því ákvað Portsmouth að selja leikmanninn í stað þess að missa hann á frjálsri sölu eftir tíma- bilið. Kranjcar kemur eins og kallað- ur til Tottenham en félagið missti Luka Modric í meiðsli á dögunum og Kranjcar mun því væntanlega fylla skarð landa síns fyrst um sinn í það minnsta. - óþ Blóðtaka fyrir Portsmouth: Kranjcar til liðs við Tottenham KRANJCAR Kominn aftur til Harry Red- knapp. NORDIC PHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Everton náði að semja við varnarmanninn Johnny Heit- inga áður en félagaskiptaglugg- anum var lokað en enska félagið hafði áður náð samkomulagi um fimm milljóna punda kaupverð við Atletico Madrid. Heitinga skrifaði undir fimm ára samning á Goodison Park eftir að hafa staðist læknisskoð- un hjá félaginu. Heitinga er feng- inn til þess að fylla skarð Joleons Lescott, sem fór sem kunnugt er til Manchester City á dögun- um. Hollendingurinn verður enn fremur í treyju númer fimm eins og Lescott var hjá Everton. - óþ Eftirmaður Lescotts fundinn: Everton nældi sér í Heitinga FÓTBOLTI Frestur félaga á Englandi til þess að kaupa og selja leikmenn rann út í gær kl. 16 að íslenskum tíma en sumarmarkaður inn hafði verið opinn frá 1. júní. Manchester City hélt upptekn- um hætti frá því eigandinn for- ríki Sheikh Mansour mætti fyrst til leiks á Borgarleikvanginum í Manchester fyrir um ári og eyddi gróflega áætlað um 120 millj- ónum punda í leikmannakaup í sumar á meðan „stóru fjögur“ félögin höfðu tiltölulega hægt um sig. Sér í lagi í samanburði við eyðslumátt City-manna. United kom út í plús Þrátt fyrir að Englandsmeistarar Manchester United hafi selt dýr- asta leikmann heims í sumar þegar Cristiano Ronaldo fór til Real Madrid á áttatíu milljón pund hélt knattspyrnustjórinn Sir Alex Ferguson sig á mottunni í eyðslunni. Antonio Valencia var keyptur á átján milljónir punda og Frakk- inn ungi Gabriel Obertan kost- aði þrjár milljónir punda. Þá krækti Ferguson í stórstjörnuna Michael Owen á frjálsri sölu en þess má geta að félögin á Eng- landi geta enn fengið til sín leik- menn á frjálsri sölu þó svo að félagsskiptaglugganum hafi verið lokað, svo fram- ar- lega sem leik- maðurinn hafi verið með laus- ann samning fyrir 1. september. Ferguson er þó hvergi banginn þrátt fyrir að hann hafi ekki eytt nærri jafn mikið í leikmannakaup og nágrann- ar hans í Manchesterborg. „Ég er mjög ánægður með leik- mannahópinn eins og hann er og ég treysti á hann. Það er hrein móðgun að halda að ég sé ekki nógu ánægður með núveradi leik- mannahóp,“ sagði Ferguson þegar hann var inntur eftir því á dög- unum hvort hann þyrfti ekki að bæta við leikmönnum. Roman dregur saman seglin Eigandinn Roman Abramovich hjá Chelsea hefur einnig verið nokkuð rólegur í sumar miðað við oft áður og hann virðist hafa eytt mestum tíma og peningum í að halda fyrirliðanum John Terry áfram hjá vestur Lundúnafélag- inu og frá klóm City-manna. Yuri Zhirkov voru einu stór- kaup Chelsea í sumar en hann kostaði átján milljónir punda. Þá var heldur ekki mikið versl- að í Norður-Lundúnum og Thom- as Vermaelen var einu stórkaup Arsenal en leikmaðurinn kostaði tíu milljónir punda. Knattspyrnustjórinn Arsene Wenger var aftur á móti dugleg- ur að selja og Manchester City var helsti viðskiptavinurinn þar sem Emmanuel Adebayor fór þangað á 25 milljónir punda og Kolo Toure fór sömu leið á sextán milljónir punda. Fyrir utan tvímenningana frá Arsenal fjárfestu City-menn einnig í Carlos Tevez á 25,5 milljónir punda sem var áður hjá United á láni, Joleon Lescott á 24 milljónir punda frá Everton, Roque Santa Cruz á átján millj- ónir punda frá Blackburn og Gar- eth Barry á tólf milljónir punda frá Aston Villa. Hvort þessi sumareyðsla City- manna nær að splundra „topp fjögur“ kjarnanum kemur í ljós í maí en byrjun félagsins í deild- inni gefur óneitanlega fögur fyrirheit um framhaldið. omar@frettabladid.is City allt í öllu á sumarmarkaðnum Hinum svokallaða félagaskiptaglugga var lokað á Englandi í gær en fátt var um fína drætti á lokadegi sumar- markaðarins. Eftir stendur kaupæði Manchester City í sumar en félagið eyddi meiri peningum í leikmanna- kaup en „stóru fjögur“ félögin, Manchester United, Chelsea, Arsenal og Liverpool, gerðu öll til samans. OWEN Kom til United á frjálsri sölu í sumar. NORDIC PHOTOS/AFP ADEBAYOR OG BARRY City-menn fjárfestu langmest allra liða ensku úrvalsdeildarinnar í félagaskiptaglugganum í sumar. Hvort fjárfesting- arnar skili sér í titlum kemur í ljós síðar. NORDIC PHOTOS/AFP KAUP MAN. CITY Í SUMAR Carlos Tevez £25,5 milljónir Emmanuel Adebayor £25 m. Joleon Lescott £24 m. Roque Santa Cruz £18 m. Kolo Toure £16 m. Gareth Barry £12 m. Samtals £120,5 m.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.