Fréttablaðið - 02.09.2009, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 02.09.2009, Blaðsíða 46
34 2. september 2009 MIÐVIKUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 BESTI BITINN Í BÆNUM „Ég vil bara hamborgara, hvar sem er, hvenær sem er. Nonna- biti, Aktu taktu, Prikið, Hressó. Allt gott, jafnvel þegar það er vont.“ Heiðar Sumarliðason leikskáld og leikstjóri. VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8 1 Að svíkja tugi milljóna út úr Íbúðalánasjóði. 2 Hjörtur Hjartarson. 3 Númer níu. LÁRÉTT 2. mælieining, 6. tveir eins, 8. vilj- ugur, 9. fyrirboði, 11. guð, 12. spýta, 14. kryddblanda, 16. nafnorð, 17. holufiskur, 18. kerald, 20. þessi, 21. grobb. LÓÐRÉTT 1. svei, 3. hvort, 4. súrsað grænmeti, 5. kæla, 7. afhjúpun, 10. púka, 13. hress, 15. skál, 16. lík, 19. tvíhljóði. LAUSN LÁRÉTT: 2. desí, 6. uu, 8. fús, 9. spá, 11. ra, 12. sprek, 14. karrí, 16. no, 17. nál, 18. áma, 20. sá, 21. raup. LÓÐRÉTT: 1. fuss, 3. ef, 4. súrkrás, 5. ísa, 7. uppkoma, 10. ára, 13. ern, 15. ílát, 16. nár, 19. au. „Loðinn um lófana? Tja, þetta er gott for- lag og forlög borga eftir stærð. Þetta forlag er mjög stórt þótt þeir upplifi sig örugglega ekki eins og þeir séu einhverjir höfðingjar,“ segir Óttar Martin Norðfjörð en þýski útgef- andinn Der Aufbau hefur tryggt sér útgáfu- réttinn að skáldsögu Óttars, Sólkrossinum. Þjóðverjar hafa undanfarin ár verið ákaf- lega hrifnir af íslenskum rithöfundum, Arn- aldur Indriðason er vinsæll spennusagna- höfundur þar og rithöfundar á borð við Auði Jónsdóttur og Guðrúnu Evu Mínervudóttur hafa fengið verk sín útgefin í Þýskalandi að undanförnu. Der Aufbau er virt forlag og gefur út marga af snjöllustu rithöfundum heims, þeirra á meðal Paul Auster. „Þetta er því mikill heiður fyrir mig og ég átti alls ekki von á þessu.“ Óttar hefur enga eina skýringu á því hvers vegna Íslendingar séu svona vel liðnir í Þýskalandi. „Ætli þetta sé ekki bara þetta norræna og þá höfðar Sólkrossinn náttúrlega vel til þeirra, hún svolítið norræn,“ útskýrir hann. Óttar situr nú sveittur við skriftir, er að leggja lokahöndina á nýja bók en hún á að koma út um þessi jól. Bókinni hefur verið gefið nafnið Paradísarborgin og er spennu- saga án glæps. „Spennusagan er komin í ákveðið hjólfar, einhver leysir eitthvert morðmál og allir verða glaðir. Þetta er svo- lítið staðnað form. Bókin sækir svolítið í ástandið og það er náttúrlega stærsti glæpurinn hvernig komið var fram við íslensku þjóðina,“ útskýrir Óttar. - fgg Sólkrossinn gefinn út í Þýskalandi ÁNÆGÐUR MEÐ SAMNINGINN Óttar Martin er kominn á samning hjá þýska forlaginu Der Aufbau sem hyggst gefa út síðustu bók hans, Sólkrosssinn. „Við erum í hópi sjö hönnuða sem voru valdir til að selja hönnun sína í versluninni. Það eru um hundrað umsóknir sem berast frá hönnuð- um til Topshop í hverri viku þannig að við erum mjög ánægðar að hafa komist þarna að,“ segir Ásta Kristj- ánsdóttir, annar af eigendum E- label en fatamerkið verður til sölu í verslun Topshop við Oxford Circus í London. Hönnunin verður fyrst um sinn seld í Edit-deildinni þar sem nýir og upprennandi hönnuðir fá að njóta sín. „Þar þurf- um við að standast mjög ströng sölumarkmið og ef þau ganga eftir held- ur samstarfið áfram og merkið verður jafnvel selt í fleiri verslunum Top- shop,“ segir Ásta Kristjánsdótt- ir en með henni í fyrirtækinu er Heba Hallgrímsdóttir. Aðspurð segir Ásta að mikil vinna liggi að baki velgengni fatamerkisins sem hefur hlotið jákvæða umfjöllun í erlendum fjöl- miðlum og má þar nefna vefsíðu tímaritsins Elle, tímaritið Grazia og London Paper. „Öll umfjöllun hjálpar okkur auðvitað mjög mikið og skilar sér meðal annars í auk- inni netsölu og gerir okkur auðveld- ara um vik að finna erlenda dreif- ingaraðila fyrir vöruna.“ Að sögn Ástu er hönnun E-label bæði þægileg og nothæf og er hún stíluð inn á hina atorkusömu nútímakonu. „Flík- urnar eiga að vera þægilegar, nothæf- ar og nýtast manni við mismunandi tækifæri og byggist hönnunin á hugtakinu „empowering women“.“ Ásta segir að næsta vor sé von á litaglaðari línu frá E-label, en flík- urnar hafa hingað til aðeins feng- ist í svörtu. „Við ætlum að byrja með liti næsta vor. Það er aðallega gert fyrir erlenda markaðinn sem vill sjá liti í vor- og sumartískunni. Íslenskar konur eru aftur á móti hrifnastar af svörtu og þess vegna hefur hönnun okkar hingað til verið öll svört.“ Að sögn Ástu lagði fyrirtækið upp með það markmið að gefa til baka til samfélagsins ef vel geng- ur. „Hönnunin er íslensk en vör- urnar eru framleiddar á Indlandi. Ástandið þar er mjög bágborið og því ákváðum við að þrjú prósent af öllum hagnaði E-label renni til styrktar indverskum mannúðar- samtökum sem kallast Girls Project at Shaati sem veitir heimilislaus- um stúlkum húsaskjól, menntun og læknishjálp.“ sara@frettabladid.is ÁSTA KRISTJÁNSDÓTTIR: E-LABEL Á LEIÐ Í LIT Íslensk hönnun í Top Shop HÖNNUNIN VEKUR ATHYGLI Hönnun E-label hefur vakið athygli ýmissa erlendra tískutímarita undanfarnar vikur. Danska leikkonan Iben Hjejle verður formaður dómnefndar í keppninni um Gyllta lundann, aðalverðlaunin á Alþjóðlegu kvik- myndahátíðinni í Reykjavík, RIFF, sem verður haldin síðar í mánuðin- um. Hjejle er vafalítið þekktust hér- lendis sem kona Caspers Christen- sen í gamanþáttunum Klovn. „Þetta er alveg frábært,“ segir Hrönn Marínósdóttir hjá RIFF um komu Iben til landsins. „Það eru svo margir sem þekkja hana úr þáttunum og hún er skemmtileg leikkona líka. Það er mikil ánægja með þetta enda er hún búin að gera mikið af góðum hlutum.“ Iben á að baki vel heppnaðan feril bæði í heimalandi sínu og í Hollywood. Auk Klovn er hún þekkt fyrir leik sinn í myndunum Mifunes sidste sang, High Fidelity og Defiance, ásamt þáttunum um lögreglukonuna Önnu Pihl. Hún verður ein fimm kvenna í dómefnd hátíðarinnar, sem hlýtur að teljast heldur óvenjulegt. „Karl- arnir eru svolítið áberandi í þessum kvikmyndabransa og þess vegna var tekin þessi ákvörðun að hafa eingöngu konur í dómnefndinni,“ segir Hrönn. Hinar í dómnefndinni eru Elísabet Ronaldsdóttir klipp- ari, Sitora Alieva, dagskrárstjóri rússnesku kvikmyndahátíðarinnar Kinotavr, Elva Ósk Ólafsdóttir leik- kona og Jessica Hausner, leikstjóri myndarinnar Lourdes sem verður sýnd á RIFF. Alls munu fjórtán myndir keppa um Gyllta lundann í ár, þar á meðal Kelin frá Kasakstan, Eyes Wide Open frá Ísrael og Dogtooth frá Grikklandi. - fb Iben formaður dómnefndar á RIFF IBEN OG TRÚÐARNIR Iben Hjejle ásamt þeim Casper og Frank þegar þau komu hingað til lands á síðasta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON STÆKKAR HRATT OG VEL Ásta segir mikilvægt að hlúa að sprotafyrirtækj- um því þá geti þau stækkað hratt og vel. Fatamerkið E-label hefur dafnað vel og verður bráðum fáan- legt í tískuversluninni Topshop við Oxford Circus í London. Eftirvinnsla stendur yfir á myndinni Bjarnfreðarson sem aðdáendur Nætur- og Dagvaktarinnar bíða eftir með mikilli eftirvæntingu. Leikstjór- inn Ragnar Bragason mun eiga í mestu erfiðleikum með að klippa myndina niður í hæfilega lengd vegna hins mikla efniviðar sem hann hefur úr að moða. Líklegt má telja að hluti af þeim atriðum sem klippt verða út muni í staðinn rata á DVD-útgáfu myndarinnar. Og aðeins meira úr herbúðum Vakt-liðsins því nú er hafin mikil auglýsingaherferð fyrir Fangavakt- ina. Ólafur Ragnar, sem Pétur Jóhann leikur, er þar í aðalhlutverki því heimasíða og strætóauglýsing- ar eru farnar að sjást um bæinn og þar má líta Ólaf Ragnar í fullri stærð auglýsa fasteignasölu sína og að það sé „vangefið að gera“. Þetta minnir ögn á fasteigna- auglýsingarnar þegar góðærið stóð sem hæst og fasteignasalar voru á hátindi frægðar sinnar. En nú er jú öldin önnur á frosnum fasteigna- markaði. Meira af sjónvarpi því Stöðvar 2-menn eru farnir að leggja snörur fyrir fræga fólkið og reyna fá það til að taka þátt í íslensku útgáfunni af Wipeout. Einhverjir hafa gefið vilyrði sitt fyrir þátttöku sinni en ein manneskja hefur þegar sagt nei. Ásdísi Rán fannst það víst ekki hæfa sinni ofur- fyrirsætu-stöðu að böðlast um í leðju og vatni og svo var djobbið víst ekki launað. Þótt flug og uppihald væri borgað af sjónvarps- stöðinni. - fb/fgg/afb FRÉTTIR AF FÓLKI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.