Fréttablaðið - 02.09.2009, Síða 10

Fréttablaðið - 02.09.2009, Síða 10
10 2. september 2009 MIÐVIKUDAGUR                  !! " #$ !! " %%%    &     ' ( )) * (  ) + , -  )  . / ' ( )) 0  ) ) 1)2 + , )  . /!    34, 5 6    ) ' ( )) * (             # 7 78       9 !:  ;  9 8 ,       !:  ;  9 8    ) 7  <  )  ;   , 9 ,' = ; 9  /!:    ;     #  9  ;  9 9 ; 9)  7 7 , 9 ,' =  "   ! " "   #$ " $  "  %    " $ #  &%"  ' ')"  & '*  '* +""" ',- '. ')  " '/ " 0&  +1 " "- .  * $ #  &%"        2     324*/5 +   11 7  +  #  8 3;  9 9   ? 2 )  9   ; ;       @   BANKARNIR Erlendur Magnússon, sem situr í bankaráði Landsbankans, býst ekki við að sækjast eftir endurkjöri í bankaráðið eftir að Bankasýsla ríkisins tekur til starfa. „Það er afskaplega óljóst hver verkaskipt- ingin verður milli bankaráðsins annars vegar, það er stjórnar fyrirtækisins, og Bankasýsl- unnar hins vegar. Ég tel að þetta sé óþarfa millilag og að hlutverk bankaráðsmanna verði óskýrt. Þess vegna hef ég sagt að ég muni ekki sækjast eftir áframhaldandi setu þegar Bankasýslan tekur til starfa og kosið verður á ný í bankaráðið.“ Erlendur segir bankaráð Landsbankans hafa gefið umsögn á Bankasýslu ríkisins þegar málið var til umfjöllunar á Alþingi. Bankaráðið hafi talið bankasýsluna auka kostnað án þess að ávinningurinn væri mikill. „Hlutverk stjórnar í lögum um fyrirtæki er mjög skýrt. Það er þeirra að móta stefnu fyrirtækjanna og hafa eftirlitshlutverk með því að stjórnendur framfylgi stefnunni,“ segir Erlendur. „Eigendur þurfa að sjálfsögðu að hafa skýra sýn en ég sé ekki alveg tilganginn í því að setja upp heila stofnun sem á að móta eigendasýn og starfrækja hana með starfs- fólki á fullum launum. Allra síst nú þegar verið er að skera niður í málaflokkum eins og mennta-, heilbrigðis- og lögreglumálum. Þá finnst mér viðbótaryfirbygging vera ansi undarleg.“ Bankasýslu ríkisins er ætlað að starfa í fimm ár. Að þeim tíma loknum verður stofn- unin lögð niður. Gert er ráð fyrir að yfir stofnuninni verði þriggja manna stjórn og að hún ráði forstjóra. Gert er ráð fyrir að árleg útgjöld hennar verði 70-80 milljónir króna sem greiðist úr ríkissjóði. - kh Erlendur Magnússon ætlar ekki að sækjast eftir áframhaldandi setu í bankaráði Landsbankans: Segir Bankasýsluna auka kostnað án ávinnings ERLENDUR MAGNÚSSON Hann segist ætla að ljúka sínum skyldum sem bankaráðsmaður í Landsbankanum en býst ekki við að sækj- ast eftir endurkjöri þegar kosið verður í nýja stjórn. DÓMSMÁL Styrktarsjóður Neist- ans, styrktarfélags hjartveikra barna, stendur nú í málaferlum við Landsbankann vegna 21 millj- ónar sem forsvarsmenn sjóðsins segja að hafi tapast hjá bank- anum við hrunið vegna brots á eignastýringarsamningi. Guðrún Pétursdóttir, stjórnar- formaður sjóðsins, segir að sjóður- inn, sem stofnaður var árið 1996, hafi árið 2005 tekið tilboði bank- ans um að halda utan um drjúgan hluta af eignum hans. „Við ákváðum, af því að við vissum nú að það var töluverð- ur öldugangur í fjármálakerfinu á þessum tíma, að setja ávöxtun- inni ákveðinn ramma,“ segir Guð- rún. Samningurinn hafi kveðið á um að sjóðurinn skyldi að níu- tíu prósentum vera ávaxtaður í ríkistryggðum skuldabréfum, skuldabréfum sveitar félaga eða sambærilegum bréfum. Í slíkri fjárfestingu er fólgin afar tak- mörkuð áhætta. „Þegar upp er staðið og hrunið verður kemur í ljós að ekki ein einasta króna var í slíkum ávöxt- unarleiðum,“ segir Guðrún. Mest hafi verið í peningamarkaðsbréf- um félaga á borð við FL Group, Eimskip og önnur sem hafi verið í verulegum vandræðum. Þetta telur sjóðsstjórnin klárt brot á samningi. „Ég tel að það sé hægt að gera greinarmun á þeim sem keyptu í peningabréfum vitandi vits og ákváðu að ávaxta sitt fé þannig, og öðrum, eins og sjóðnum, sem gera ákveðinn fjárvörslusamning sem síðan er ekki haldinn,“ segir Guðrún „Mér finnst þetta hreint út sagt ábyrgðarlaust og ég tel að þetta sé glæpsamlegt og þess vegna förum við í mál,“ segir hún. Guðrún segir að tapið hafi óhjákvæmilega áhrif á starfsemi sjóðsins, enda hafi milljónirnar 21 verið um fjórðungur hans. „Við úthlutum styrkjum til hjartveikra barna og fjölskyldna þeirra og við verðum að taka mið af stöðu sjóðsins og ávöxtun hans á hverj- um tíma. Þannig að þegar hann rýrnar allt í einu eins og þruma úr heiðskíru lofti og fer niður um 21 milljón geta menn rétt ímyndað sér að það hefur áhrif á þá styrki sem við getum veitt,“ segir hún. Málið var tekið fyrir í Hér- aðsdómi Reykjavíkur í gær, líkt og mál sextán manna sem vilja sækja rétt sinn gegn Landsbank- anum vegna tapaðs fjár sem þeir áttu í peningamarkaðssjóðum. stigur@frettabladid.is Telja brotið á sjóði hjart- veikra barna Styrktarsjóður hjartveikra barna samdi við Lands- bankann um ábyrga stýringu hans. Bankinn keypti í FL Group og Eimskip og tapaði 21 milljón. Glæpsam- legt og ábyrgðarlaust, segir stjórnarformaðurinn. SAMIÐ UM STÝRINGUNA Björgólfur Guðmundsson, formaður bankaráðs Landsbank- ans, réttir þáverandi gjaldkera sjóðsins og dóttur hennar 500 þúsund króna ávísun við undirritun samningsins. Nú er 21 milljón töpuð. Þegar upp er staðið og hrunið verður kemur í ljós að ekki ein einasta króna var í slíkum ávöxtunarleið- um. GUÐRÚN PÉTURSDÓTTIR STJÓRNARFORMAÐUR NEISTANS STÖKKPALLUR Í KABÚL Menn á stökk- palli við ókláraða sundlaug frá þeim tímum þegar Sovétmenn voru með herlið sitt í Kabúl í Afganistan. FRÉTTABLAÐIÐ/AP

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.