Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.09.2009, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 02.09.2009, Qupperneq 18
18 2. september 2009 MIÐVIKUDAGUR UMRÆÐAN Guðrún Eygló Guð- mundsdóttir skrifar um meðferð dýra Það er lítið fjallað um dýravernd á Íslandi. Dýraverndunarsamtökin hafa frá árinu 1959 verið í virku samstarfi við Norður löndin. Það var ekki fyrr en 1994 sem komið var á lögum um rétt dýra á Íslandi. Ég las pistil í Mogganum á síð- asta ári. Hann segir frá myndbandi um vondan aðbúnað á kjúklinga- búum á vegum KFC og þá óþarf- legu grimmd sem dýrin þurfa að þola. Þar er vitnað í dýraverndunar sinnann Temple Grandin og sam- tök hennar. Hún er virt- ur fræðimaður og hefur gert rannsóknir til að þróa mannúðlegri vinnu- brögð við eldi og slátrun dýra. Nánari upplýsingar á www.grandin.com. Er fylgst nægjanlega með framkvæmd slátr- unar dýra á Íslandi? Dýralæknar eiga að hafa eftirlit með slátur- húsum og aðbúnaði dýra á bænda- býlum. Er það nógu virkt? Er það rétt að í sumum lönd- um séu það íslamskir slátrar- ar sem aflífa dýrin á þann hátt sem trúarbrögðin segja til um? Eru það dýralæknar sem fylgjast með að það sé gert á sem kvala- minnstan hátt? Í fyrirspurn til dýraverndunar- félagsins var svarið að það hefði ekki hugmynd um það. Ef ein- hverjir vita um þessi mál vinsam- legast látið í ykkur heyra. Rúmenía hefur fengið sérstakt leyfi hjá Evrópusambandinu til að halda í aldagamlan sið í sveitum landsins sem felur í sér að svín- um og lömbum er slátrað án þess að þau séu svipt meðvitund áður. Lög ESB kveða á um að dýr séu aflífuð með mannúðlegum hætti í sláturhúsum og séu deyfð fyrst. Rúmenar sögðu þessar reglur ógna þjóðar arfi sínum! Fyrir einhverjum árum vildu arabaþjóðir kaupa af okkur lif- andi lömb vegna þess að sam- kvæmt þeirra trú skulu lömbin skorin eftir þeirra reglum. En okkur fannst þetta ómannúð- leg aðferð við slátrun svo ekk- ert varð úr þeim viðskiptum. Ef sá sem framkvæmir slátrunina gerir það rétt þá er það eitt hnífs- bragð. Því miður er það sjaldnast svo einfalt. Dýr hafa verið aflífuð á þennan hátt gegnum aldirnar og eru það ennþá. Oft er það gert af kunnáttuleysi á kvalafullan hátt. Samkvæmt dýraverndunarlögum á að aflífa dýr með skjótum og sársaukalausum hætti. Sársaukafullar dýratilraunir viðgangast enn þótt dregið hafi úr þeim. Á síðasta ári birtist viðtal við heimspeking þar sem rætt var um tilraunir á dýrum og hvort þær séu réttlætanlegar enda skiptar skoðanir meðal dýra- siðfræðinga. Hann segir að allt fram á 20. öldina leyfðist mönn- um að gera nánast allt við dýr og ekki fyrr en á seinnihluta aldar- innar hafi verið farið að gagnrýna það að einhverju marki. 1944 var Draize-prófið samþykkt af banda- ríska matvæla- og lyfjaeftirlitinu. Það gekk út á það að setja efni, oft óþynnt, í augu og feld dýranna til að athuga hvort ígerð mynd- aðist. Til eru myndir af kanínum sem voru festar á gapastokk og augu þeirra spennt upp þannig að þær gátu ekki lokað þeim. Síðan voru efni sett í augun á þeim. Oft án verkjalyfja. Það var ekki fyrr en á níunda áratugnum að menn fóru að berjast gegn þessum til- raunum. Í verksmiðjubúum er fjöldi dýra í litlu plássi og geta lítið hreyft sig. Er svona búskapur byrjaður hér á landi? Við verðum að vera vel á verði og gæta þess að það séu gerðar strangar kröf- ur til þeirra sem ætla að fara í þannig rekstrarform. Talsmenn amerísku hamborgara- búllunnar Burger King hafa sent bandarísku PETA-samtökunum (samtökum dýravina) tilkynn- ingu þess efnis að þeir kaupi egg og svínakjöt frá framleiðend- um sem ali dýrin ekki í búrum. Einnig hefur fyrirtækið sett sig í samband við hænsnabú og hvatt eigendur til að taka upp mannúð- legri slátrunarhætti en almennt hefur tíðkast. Kannski hefur þessi ákvörðun Burger King áhrif á aðra í skyndibitaiðnaðinum? Nautaat er með því ljótasta sem maður sér en erfitt að upp- ræta það því aldagömul hefð liggur þar að baki. Spjótum er stungið í hrygginn á nautunum á mjög viðkvæma staði þannig að þau finna mikinn sársauka við hverja hreyfingu. Og þannig er þeim sleppt út á völlinn þar sem þau eru dauðadæmd en kvalin og pínd rækilega áður. Svo er sagt að nautið og nautabaninn standi jafnt að vígi! Ef við vitum um illa meðferð á dýrum eða sjáum ofbeldi gagn- vart þeim þá eigum við að hafa samband strax við lögregluna eða dýraverndunarsamtökin. Við eigum að bera virðingu fyrir öllu lífi, líka dýranna. Þau eiga skilið að lifa hamingjusömu og óttalausu lífi. Höfundur er hjúkrunarfræðingur og áhugamaður um dýravernd. Dýravernd UMRÆÐAN Karl V. Matthíasson skrifar um umferðar- öryggi Nú eru skólar byrj-aðir og nokkur þús- und börn eru að stíga sín fyrstu skref í grunnskóla. Þegar við sjáum þessi börn og auðvitað mörg önnur á leiðinni í skólann hugsum við hlýlega til þeirra og vonum að hvert og eitt þeirra eigi ánægjulegan skóla- dag og góðan skólavetur. Það hvíl- ir mikil ábyrgð á okkur fullorðna fólkinu að búa börnum okkar góða skóla og umhverfi sem býður upp á sem öruggastar leiðir. Allir for- eldrar barna ættu að vita hvaða leið barnið gengur í skólann og að sú leið sé sú öruggasta. Þegar ég var barn var það almenn regla að börn færu ein í skólann og gengju jafnvel lang- an veg. Bílaeign og umferð var þá miklu mun minni en nú er. Nú hefur þetta breyst og margir keyra börn sín í skólann en engu að síður eru þau í umferðinni. Það er mikilvægt að öryggisbeltin séu spennt og að bílstjórar barnanna sjái svo um að þau búi við sem mest öryggi á allan hátt með góðum akstri og með því að hafa einbeitinguna í lagi. Þessi tími haustsins getur verið mjög varasamur því börn eiga það til að gleyma sér í morgundimmunni og skammdeginu eftir sumar mikillar birtu. Því er okkur nauðsynlegt að vera árvökul og viðbúin. Slysin verða oftast þegar eitthvað óvænt hendir og fólk hefur alls ekki búist við þeim aðstæðum er komu upp. Eitt andartak getur orðið til þess að allt breytist í lífi okkar og dagur sem átti að verða ósköp venjulegur verður örlagadag- ur sem varpar skugga og sorg á til- veru okkar í langan tíma á eftir. Ég vil hvetja til þess að við ökum var- lega, af virðingu og þökk við lífið og af virðingu og tillitssemi við öll börn þessa lands. Í dimmunni er oft erfitt að greina dökkklædda, en endurskins- merki eru mjög mikilvæg og hafa þau sannað gildi sitt og örugglega orðið til þess að koma í veg fyrir mörg slys. Öll börn sem eru á leið- inni í skólann og reyndar hvar sem er ættu að bera endurskinsmerki. Þetta á auðvitað við um alla gang- andi vegfarendur. Gerum allt sem í okkar valdi stendur til þess að öll skólabörn séu örugg í umferðinni og komist heilu og höldnu í skólann sinn í vetur. Höfundur er vímuvarnaprestur og formaður umferðarráðs. Tökum tillit til barna í umferðinni í vetur GUÐRÚN EYGLÓ GUÐMUNDSDÓTTIR KARL V. MATTHÍASSON Meðan ríkið sefur UMRÆÐAN Jón Þór Ólafsson skrifar um eftirköst fjármálahrunsins Flest ríki í heiminum í dag hafa tekið sér einkaleyfi á beitingu ofbeldis innan sinna landamæra. Mistakist ríkjum það eins og raunin er með Írak og Afganistan eru þau köll- uð „misheppnuð ríki“ (failed states). Ríkið réttlætir sína einokun á ofbeldi sem nauðsynlega til að vernda frelsi ríkisins og til að tryggja réttlæti innan þess. Stofnendur Bandaríkjanna voru ekki á sama máli. Um vantraust þeirra á ríkisvaldinu verð- ur ekki villst í orðum fyrsta forseta Bandaríkj- anna, George Washington: „Eins og eldur er rík- isstjórn hættulegur þjónn og hræðilegur herra.“ Fyrir þeim var nauðsynlegt fyrir öryggi frjáls ríkis að borgarar þess stofnuðu sjálfstæðar sveitir vopnaðra manna (militias) og þann rétt borgar- anna bundu þeir í stjórnarskránna. Þar að auki hefur rétturinn til borgaralegrar handtöku lengi verið bundinn í lögum á Vesturlöndum og á Íslandi frá 1991. Svo réttlætingin fyrir því að borgararnir vakni og taki völdin í sínar hendur er vel greypt í réttlætisvitund og lög Vesturlanda. Fyrri ríkisstjórnir sváfu á verðinum meðan bankamenn með aðstoð Seðlabankans spiluðu stærstu svikamyllu Íslandssögunnar. Núverandi ríkisstjórn sefur á meðan svikahrapparnir skjóta undan þjóðarauðinum. Sagan hefur kennt okkur að þegar ríki sem áskilur sér einkaleyfi á ofbeldi sefur á meðan réttlætisvitund borgaranna er ítrek- að misboðið þá vakna þeir og taka til sinna ráða. Ráðin sem borgararnir grípa til hafa alltaf reynst misvel til að ná fram réttlæti, en Íslend- ingar myndu ekki skvetta rauðri málningu í dag ef ríkið svæfi ekki á meðan svikahrappar skjóta undan þjóðarauðinum. Höfundur er stjórnmálafræðinemi. JÓN ÞÓR ÓLAFSSON www.schballett.is Kennsla hefst 14. september Innritun og upplýsingar í síma 561 5620 frá kl. 11-17. mbósamlok 33 cl psí dós alltaf í leiðinni! ú og Pe J299kr. ÓDÝRT ALLA DAGA!

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.