Fréttablaðið - 02.09.2009, Síða 24

Fréttablaðið - 02.09.2009, Síða 24
 2. SEPTEMBER 2009 MIÐVIKUDAGUR4 ● fréttablaðið ● ljósanótt Sýningin Reykjanes 2009 verður haldin í Íþróttaakademíunni í Reykjanesbæ dagana 4. til 6. sept- ember í tengslum við tíu ára af- mæli Ljósanætur. Sýningin er haldin undir yfirskriftinni „þekk- ing, orka, tækifæri“ og þar verð- ur kynnt margt það helsta sem Reykjanes hefur upp á að bjóða í atvinnulífi, menningu og þjón- ustu. Mörg af stærstu fyrirtækjum á svæðinu munu kynna starfsemi sína og þjónustu. Til dæmis Bláa lónið, Geysi Green Energy, Há- skólavelli, HS Orku, KADECO – Þróunarfélag Keflavíkurflug- vallar, Keili, Norðurál og Spari- sjóðinn í Keflavík. Sýningin verður opnuð föstu- daginn 4. september og megin- áhersla lögð á dagskrá fyrir fag- aðila þann daginn. Almenningur verður boðinn velkominn alla sýningardagana og er aðgangur ókeypis. Auk kynninga á því sem helstu fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Reykjanesi hafa upp á að bjóða verða skemmti- atriði í tengslum við Ljósanótt. Sent verður beint út frá sýning- unni á útvarpsstöðinni Bylgjunni föstudag og laugardag. Nánar má fræðast um sýninguna á www. reykjanes2009.is. Þekking, orka og tæki- færi á Reykjanes 2009 Íþróttaakademían í Reykjanesbæ. ● ROKKHEIMUR RÚNARS JÚLÍUSSONAR Nú á föstudaginn verður opnað í tengslum við Ljósa nótt Rokksafn Rúnars Júlíussonar á heimili rokkarans heitins, Skúlavegi 12 í Keflavík. Á safninu gætir ýmissa grasa og eru þar tugir hljóð- færa sem voru í hans eigu, fatnaður frá fyrri tíð sem og alls kyns munir en Rúnar var mikill safnari og þekktur fyrir að henda engu. Safnið hefur verið fjóra mánuði í bígerð og mikil tilhlökkun fyrir opnun þess en einnig verður opið inn í hljóðverið sem Rúnar not- aði og þar er heill heimur út af fyrir sig. Kaninn er kominn í loftið – með íslensku tali. Sendur út frá Off- iseraklúbbnum á 619 West Avenue sem heitir reyndar Grænás- braut í dag. Áherslan verður á hvatningu og jákvæðni að sögn út- varpsstjórans Einars Bárðarsonar. Tveir heiðursgestir opnuðu útvarpsstöðina Kanann í gær- morgun eftir staðgóðan amerískan morgunverð í boði hússins. Þetta voru Sigurður Jónsson og Bob Murray sem störfuðu í ára- tugi hjá AFRTS, sjónvarps- og útvarpsstöð bandaríska hers- ins. Rödd Gulla Helga fór fyrst í loftið, eða Gunnlaugs Helga- sonar eins og hann heitir fullu nafni. „Hann er aðalmaðurinn,“ segir Einar Bárðar, sem er samt sjálfur útvarpsstjórinn, eða Páll Magnússon Kanans. „Það er ekki leiðum að líkjast, nema ég á ekki jafn flott safn af bindum. Það hlýtur að koma með árunum,“ segir hann hress. Kaninn mun senda út allan sólarhringinn á bylgjulengdunum 91,9 á höfuðborgarsvæðinu, 92,9 á Suðurlandi og 93,9 á Eyja- fjarðarsvæðinu. „80-85 prósent af landsmönnum eiga að geta náð okkur gegnum loftnet og öll heimsbyggðin á www.kaninn.is,“ segir Einar og tekur fram að gott skap verði aðalsmerki starfsfólksins. „Markmiðið er að létta undir með landsmönnum,“ segir hann. „Við ætlum ekki að garfa mikið í þjóðfélagsumræðunni en þegar við rýnum í samfélagið þá verður það gert með báðum höndum.“ Léttir undir með landsmönnum Einar, Bob Murray, Sigurður og Gulli Helga. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Hefð er komin á að setja niður skjöld í gangstétt Hafnargöt- unnar í Keflavík á ljósanótt. Hann er minnisvarði um per- sónu, fyrirtæki eða félagsskap sem markað hefur söguspor í samfélagið. Nú er það Völlur- inn sem hlýtur þann heiður. „Hljómaskjöldurinn var fyrsta sögusporið sem sett var niður. Einu sinni vorum með gestaspor til heið- urs Clint Eastwood sem hafði dval- ið hér við tökur á myndinni sinni Flags of Our Fathers. Við settum það fyrir framan bíóið,“ útskýrir Sigrún Ásta Jónsdóttir, forstöðu- maður Byggðasafns Reykjanes- bæjar. Skjöldurinn í ár er tileink- aður vinnuframlagi Íslendinga á Keflavíkurflugvelli og honum hefur verið valinn staður utan við Duushús. „Við hugsuðum mikið um hvort við ættum að fara með sögu- sporið út á vallarsvæðið en þá væri það komið úr tengslum við öll hin sporin sem eru við Hafnargötuna,“ segir Sigrún. Sigrún hefur sett upp sýninguna Völlurinn í Duushúsum sem fjallar um veru varnarliðsins á Keflavík- urflugvelli frá sjónarhóli heima- manna. Um þúsund Íslendingar unnu hjá Varnarliðinu og annar eins fjöldi hjá Íslenskum aðalverktökum og Sigrún Ásta segir sýninguna varpa ljósi á sögu vinnustaðarins, frek- ar en hernaðarbröltssöguna. „Við erum með viðtöl við hátt í þrjátíu manns sem unnu hjá Varnarliðinu við ansi sérstakar aðstæður. Sumt af því fólki var með langan starfs- aldur þó að mikil hreyfing væri í yfirmannahringnum því Amer- íkanarnir stoppuðu yfirleitt stutt við. Svo söfnuðum við munum í þeim byggingum á Vellinum sem við máttum fara inn í. Fundum hell- ing, bæði húsgögn og smádót. Við vorum líka svo heppin að akkúr- at þegar við byrjuðum að huga að sýningunni var verið að taka niður girðinguna hjá aðalhliðinu svo við erum með bút af henni. Náðum þar sögulegum minjum áður en þær fóru í endurvinnslu.“ - gun Söguspor í samfélagið Gömlu húsgögnin á skrifstofunum voru úr stáli og sköpuðu sérstakan andblæ. Minningarbrot úr Messanum þar sem bandarískar vörur voru í fyrirrúmi. Sigrún Ásta og Steinþór Jónsson eru prímusmótorar í söguspori og sýningunni Vell- inum sem verður í Duushúsum næstu tvö árin. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Fyrir einstaka hönnun á be hefur ReSound hlotið tvenn nýsköpunarverðlaun. be eru fyrstu tækin sem byggja á innfelldri, opinni tækni. Þau eru hulin í eyrunum og gefa eðlilega heyrn án þess að loka hlustunum. Fyrsta sinnar tegundar Hljóðneminn er í skjóli í ytra eyranu sem fangar hljóðið fyrir hann og kemur í veg fyrir vindgnauð. 2. Hljóðnemi 1.Einstök hönnun 3. Sérstaklega þægileg lögun be by ReSound falla vel og eðlilega í hlustirnar svo þau eru sérstaklega þægileg. 4. Rafhlöðulok Auðvelt er að skipta um rafhlöðu.5. Hljóðnemasnúra Snúran er mjúk og fylgir formi eyrans hún gerir það að verkum að be leggst tryggilega í eyrað og er algjörlega hulið. Hlíðasmári 11, 201 Kópavogur - heyrn.isHeyrnarþjónustan Tímapantanir 534 9600 be by ReSound er í raun ósýnileg í eyrunum.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.