Fréttablaðið - 02.09.2009, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 02.09.2009, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Jóns Sigurðar Eyjólfssonar Í dag er miðvikudagurinn 2. sept- ember 2009, 245. dagur ársins. 6.13 13.27 20.39 5.52 13.12 20.30 Aðeins hef ég einu sinni á ævinni rekist á íslenska ferða- menn á förnum vegi við Miðjarðar- hafið þótt ég hafi lengi alið þar manninn. Eins undarlegt og það kann að hljóma var það sársauka- full reynsla. ÉG VERÐ nefnilega sífellt vitni að því í margmenningarsamfélaginu að það er einmitt þjóðernið sem dregur menn í dilka. Til dæmis hér á Suður-Spáni. Fjölmargir vel efn- aðir Englendingar hafa komið sér vel fyrir í mörgum bæjum hér þar sem þeir búa hlið við hlið, liggja hlið við hlið á ströndinni eða sund- laugarbakkanum og drekka á sama öldurhúsinu sem oftast er í eigu landa þeirra sem veit hvar Davíð keypti ölið. Þannig tekst þeim að komast í gegnum daginn nánast án þess að hafa nokkur samskipti við heimamenn. HVER þjóð virðist hafa sinn hátt- inn á til að geta verið innan um landa sína þótt þeir séu fjarri heimahögum. Þeir vinna saman, búa saman og drekka ölið saman. Og ef upp koma deilur virðist ekki spurt um málstað eða tildrög held- ur þjóðerni. Fyrir rúmri viku kom til dæmis til hópslagsmála í litlum bæ þar sem sígaunar og Nígeríu- menn öttu kappi. Tildrögin voru þau að sígaunamey ein missti sól- gleraugu sín þegar hún var á rúnt- inum með mannsefni sínu. Lagði hann bílnum hið snarasta og fór á eftir sólgleraugunum, sem þá voru komin í hendurnar á Nígeríumanni einum. Voru hnefar látnir útkljá málið. Nígeríumenn á nálægri sím- stöð komu sínum manni til hjálp- ar og sígaunar sem voru á hverfis- barnum létu ekki sitt eftir liggja. Enginn þeirra þarf nú á sólgler- augum að halda þegar horft er fram á veginn. EN SÍÐAN er til undantekning frá þessari tilhneigingu því að það síð- asta sem íslenskur ferðamaður vill finna á vegi sínum í sólarlöndum er annar Íslendingur. Ég minnist þeirrar skelfilegu reynslu þegar ég heyrði þrjá spjátrunga í Barce- lona mæla á okkar ylhýru tungu. Ég var með mikla heimþrá svo ég stökk af stað og gaf mig á tal við þá. Það var engu líkara en þeir hefðu fengið norðangarra í fang- ið þegar ég ávarpaði þá og áður en ég gat spurt hvort heyskapur væri hafinn í sveitum sunnanlands sá ég í iljarnar á þeim niður eftir Römblunni. ÉG HVET alla Íslendinga sem kunna að missa sólgleraugun sín að hafa réttlætið með sér þegar náð er í þau; annað liðsfengi er ekki að finna. Passaðu sólgler- augun þín Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18 – 49 ára. Könnun Capacent í maí 2009 – júlí 2009. Hvar er þín auglýsing? 35% 72% H E I L S U R Ú MRekkjan ehf ≤≥ Suðurlandsbraut 48 (Bláu húsin í Faxafeni) ≥≥ 108 Reykjavík ≥≥ 588 1955 ≥≥ www.rekkjan.is KING KOIL Amerískt heilsu rúm (Queen size 153 x203) FRÁ kr. 99.850 25-70% AFSLÁTTUR! HEILSUKODDAR30% AFSLÁTTUR! SVEFNSÓFA R 25-30% AFSLÁTTU R! SÆNGUR FATNAÐU R 30% AFS LÁTTUR!

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.