Spegillinn - 01.12.1949, Qupperneq 30

Spegillinn - 01.12.1949, Qupperneq 30
194 SPEGILLINN .•Hjelt him væri Ali Baba“ EITT kröfubrjefið, sem vilst hefur til mín í sambandi við Rannveigarlofoi ðin, er ólíkt hinum. Þar segir m a ,, J Rannt?eig taldi okkur trú um, að hún va?ri einskonar Ali I Baba, sem gæti með einu augna ' tilliti, eða handabendingu veitt; okkur öil lífsins gæði. HvenærJ ætlar hún að byrja að galdra?“:' Mbl-Vh 'Sj Ég ók rétt á eftir borgarstjóranum okkar, blessuðum, og svona til öryggis ók ég strax til baka hina brautina. Það er allt í lagi með Lækjargötuna. Svo sátu þær um stund og hugsuðu. — Ekki veit ég, hvað ég á að láta mér til hugar koma að gefa honum Ásláki mínum í jólagjöf, sagði Mannbjörg eftir stundarhugsun. — Aðalvandinn er þó að finna heppilega krókaleið. Bezt þætti mér, ef þú vildir nú lofa mér að fljóta með á þeirri krókaleið, sem þú ferð til að ná í jólagjöf handa Hálfdáni. — Við skulum ekki hafa miklar áhyggjur af því máli. Það lagast einhvernveginn. En núna er ég talsvert að velta því fyrir mér, hvaða jólagjöf ég muni sjálf geta fengið. Ég er nefnilega að nudda í Hálfdáni með að gefa mér eitthvert menningarverðmæti. — Alltaf dettur þér eitthvað frumlegt í hug, Hallbjörg mín, sagði Mannbjörg undrandi. — Er nú líka hægt að gefa svoleiðis? — Vitanlega er það hægt. Mig langar til að eignast eitt- hvað með flutningsrétti, eins og t. d. leikrit. Þau geta verið góð, ef þau eru eftirsótt, og líklega betri en einhver Hinde- mithsk graðhestamúsík, jafnvel þótt henni væri snarað á ís- lenzku. Ég er alltaf að eggja Hálfdán á að leggja sig eftir menningarverðmætum, en hann segir alltaf að engin eign sé í þeim. Það er flutningsrétturinn, maður, sem er verðmæti, segi ég. Obbinn af ágóðanum í fimm smálöndum er ekki mik- ið á heimsmælikvarða, en getur þó orðið drjúgur, og innan- lands er óhætt að smyrja ríflega, þegar ríkið er að verða aðalflytjandinn. Hálfdán gæti auðveldlega skipulagt þetta sniðuglega; stofnað Þjóðarógæfu, ég meina Þjóðarútgáfu, og stofnun, sem gæti kallast HEF, stytting á orðunum: Hálf- dán Eigandi Flutningsréttar. Ég er ekki í vafa um, hvernig færi, ef í hart færi milli HEFS og STEFS, ef Hálfdán væri búinn að taka það í sig, að hætta ekki fyrr en hann hefði það. Ég hef bent honum á, að verzlunarsambönd — og jafnvel svarti markaðurinn sjálfur — geti brugðist, en menningar- verðmætin lifi af allar kreppur. — Og hvað segir Hálfdán um það? spurði Mannbjörg. — Hann er rækalli vantrúaður á það, svaraði Hallbjörg. Bob á beygjunni. um vaxandi aldur — fœkkandi möguleika. Hugmyndin úr samtali viö vin minn. Með aldri fækkar ýmsum vonum, öllum þessum fögru konum, er ég sá í æskuhilling og áttu að verða lífs míns fylling. En forlögin mig flestar sveik um. Því fækkar aðeins — möguleikum. SVB. MENNTAMÁLARÁÐHERRANN í Egyptó er nýleg'a farinri frá völdum, og- ber fyrir sig' slen og slapp- elsi, en nasvísir fréttamenn seg'ja hinsvegar, að þetta sé bara lyg'i, held- ur sé hann svona hræddur við kvenfólkið í landinu, og hafi undanfarið engan frið ó sér haft af þess völdum. Sýnir það sig, að hann hefur bannað púður og varalit, skyldað konur til að ganga í skósiðum pils- um og bannað að kenna piltum og stúlkum saman. Sé þetta satt, er það samanlagt á við eitt meðal-slappelsi.

x

Spegillinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.