Spegillinn - 01.01.1950, Blaðsíða 9

Spegillinn - 01.01.1950, Blaðsíða 9
SPEGILLINN 5 slaufu, það hlýtur að vera einkennileg rödd. Slaufu sér mað- ur að vísu, en ekki rödd. Því verður að skoða hana sem eins konar hnykk í endann, fyrst uppgang og svo niðurgang. Henni finnst hún ekki geta án hnykksins á halanum verið, ef hún á að geta endað setningu rétt, og verðum vér að segja, að hlykkurinn fer henni oft ekki illa eins og sumum dýra- tegundum. Aftur á móti virðist hlykkurinn hafa breiðzt út á hina yngri og óreyndari þuli, sem ekki geta borið halann uppi af þeim sökum. Það er ekki sama, hvernig hlykkur á einum hala er borinn. Þá víkjum vér næst að röddinni hans Axels Thorsteins- sonar. Sú rödd hoppar ekki inn úr tækinu, heldur dregst hún inn á gólfið og leggst þar, og er þá oft steinsofnuð fyrr en mann varir. En þó að hún sofni kannske ekki, þá er hún allt- af syfjuð og geispandi og yfirleitt ákaflega þreytuleg. Vér höfum oft hugsað um að nefna það við hana að leita sér'lækn- ingar við þessum kvilla, en ekki haft brjóst í oss til þess. Það er eins og hún komi úr skemmdum góm eða öðru mjög lélegu húsnæði, kannske bragga, hvað oss ekki undrar undir stjórn „íhaldsmeirihlutans í Reykjavík". Til dæmis eru essin oft ekki annað en blístur og bendir það allt til húsnæðisvand- ræðanna í munninum. Maður er nefndur Andrés Björnsson, einhvers konar hægri hönd í útvarpinu — kannske bara sú vinstri, en þá er hann lika örvhentur, því að rödd hans er oft á ferðinni. Hún þyk- ist hafa flutt Passíusálma í sinni tíð og hafa látið það svo vel, að hún vill ekki leggja niður Passiusálmasvipinn. Þegar hún er með skáldleg kvæði, en að þeim þykir henni mikið gaman, þá höldum vér alltaf að hún sé með „tJt geng ég ætíð síðan“, þangað til vér erum farinn að fylgjast með efninu. Röddin er þýðgeng mjög, en alltaf heldur hún sér niðri á skeiði, þótt hún viti að hún eigi að tölta, brokka eða stökkva. Þá vinnst ekki tími til, eins og maðurinn sagði, að taka fyrir öllu fleiri raddir, en þó má geta örfárra, sem koma til vor inn úr tækinu í nokkurs konar fastri lausamennsku. Þá er það rödd Karls ísfelds, ritstjóra nokkurra blaða og þýðara skiljanlegra og óskiljanlegra tungumála. Þetta er all- fyrirferðarmikil rödd, þó að hún komi alltaf umvafin skýi eins og Móses niður af Sínaífjalli, ef vér kunnum rétt að nefna það. Þessi þokuslæðingur um hana gerir það að verk- um, að vér vitum aldrei, hvað hún er að vilja, hvort hún vilji vera blíð eða reið, hrygg eða glöð. Hún birtist bara sem þoka (sko, í líkingu talað) og oft kemur úr henni hraglandi eða súld. Þá má ekki minna vera en minnzt sé á eina meyjarrödd, og viljum vér sízt súta heimsóknir hennar. Hún tjáir oss, að hún komi frá blaðfreyjunni Margréti Indriðadóttur. „Sú rödd var svo fögur“, eins og karlinn sagði. Hún stekkur stundum inn á skrifborðið og þá er sem vér sjáum hana í allri sinni dýrð. Hún stígur dansspor eins og tízkusýning með aðra höndina á mjöðminni, en hina upp með eyranu og lætur pilsfaldinn flaka frá beru hnénu. Þetta er allt-svo röddin. Svo er sem hún snúi sér fyrir framan spegil, „eins og við stelpurnar fáum orð fyrir að gera, áður en við förum út, en gleymum þó sjaldnast að dyfta á okkur néfbroddinn". Svona minnir oss að röddin orði enhvern veginn setningar sínar. Og þegar þetta er svo sagt í hæfilega tilgerðarlegum tón með tunguna oftast langt aftur í munni (því að einhvern veginn er tungunni illa við að vera miðsvæðis, enda þótt henni bæri að skreppa þangað einstöku sinnum), þá álítum vér, að því sé hinni fögru rödd sæmileg skil gerð. Þá vinnst ekki tími til ---o. s. frv. FORNLEIFAFÉLAGIÐ varð sjötug-t á síðastliðnu ári — stofnað 1879. C um farið að rannsaka sjálft sig.

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.