Spegillinn - 01.01.1950, Blaðsíða 13

Spegillinn - 01.01.1950, Blaðsíða 13
SPEGILLINN 9 Ávarp: „FáSir vor. Þú sem ert í Moskvu“. I. Skyggnumsk austr of ál þú mín arma sál, hvar traustr og tignarstór trónir faðir vór, og sjötigr sýpur hregg, en ber sex metra skegg. Kætask komintröll í Kremlarhöll. Hvert skáld og skriffinnur hyllir skósmiðsbur, þann es aldrei veik úr hildarleik, en í bylting bar stórheildsalar (ekki neitt í stíl við þá í Columbía og Gísla Halldórsson), sem ráða hvaða músík er skellt á markaðinn. Og sú músík, sem þeir skella á markaðinn, selst, en engin önnur. Nú hef ég varið löngum tíma til að ná hinum nauð- synlegu samböndum við þessa stórkalla, svo að ekki stendur á mér, ef nauðsynlegur skilningur yfirvaldanna væri fyrir hendi. 5) Þykir mönnum vér leggja nokkuð þunga tolla á þá tón- list, sem vér flytjum inn. En hljómlistarkaupendur vorir ættu að gæta þess, hve feiknarlega dýrt skrifstofuhald vort er, til að halda þessu öllu gangandi. Ekki er hægt að ætlast til þess, að vér og starfsfólk vort svelti við alla þá vinnu, sem fer í að skipuleggja og útdeila hljómlistinni í landinu. Vér höfum mismunandi deildir fyrir söng og spil og eins fyrir flokka eins og kvartett, tríó, dúett og sóló, að ekki sé talað um hinar ýmsu tegundir eins og symfóníur, óratóríur, fúgur og m. fl. Og þá höfum vér margar tegundir af útgáfum og hlutafélög- um, sem of langt mál yrði upp að telja. 6) Halda menn, að vér gerum ekkert nema að semja gjald- skrár, sem er þó ekki lítið verk, þegar þarf að umsemja þær á mánaðarfresti. En sú fullyrðing er fljótlega afsönnuð. Ég get bent á, að nú er flest innflutt tónlist seld góðu verði fyrir ötula starfsemi vora og í gegnum oss til allra tónflytjend- anna (smásalanna) í landinu. En áður gátu menn óáreittir flutt alla tónlist fyrir ekki neitt. Gefið að Landsyfirútgáfunni að Reykjavík þann 9. dag janúarmánaðar árið 1950 e. Kr. Jón Stefs sjálfur. (Stimpill.) fram til blessunar fyrir fólk snautt merki fagurrautt. II. Árdegis austantóra inn smaug í mína sál, æsti þar elda stóra item hið rauða bál. Ástin, sem ég fékk á þér var alblind og dæmalaus. Þar liggur ein línan frá þér inn í lítinn, íslenzkan haus. Á sólrauðum sovétfáki sveima um byggðir lands Brynjólfur, Einar og Áki, iðkandi línudans. Og fleiri af því fénaðarhúsi líta fagnandi í austurveg, svo sem fröken Katríin og Fúsi, Finnbogi Rútur og ég. Svo fjölgar þeim einnig óðum, sem austrænan feta stig. Bjarna og Truman við bjóðum byrginn og treystum á þig. Faðir! Hér stend ég og stari með stjórnlausri lotning til þín. — Tító og Furubotn fari til fjandans með afglöp sín. III. Far vel um aldur, faðirinn beztur, fátæklegt kvæðið svo enda ég. Viljann til áframhalds ei mig brestur, en andagiftin er lieldur treg. — Úr skýjunum rýkur, er rauður hestur rennir um loftið í austurveg. Félagi Þóroddur þess mig letur að þenkja nokkuð um landsins hag. En öfund og kvíða að mér setur, er ég lít yfir þennan brag. — Þeir minnast þín sjálfsagt miklu betur S Morgunblaðinu og Pravda í dag.

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.