Fréttablaðið - 18.09.2009, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 18.09.2009, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans Í dag er föstudagurinn 18. sept- ember 2009, 261. dagur ársins. 6.59 13.21 19.42 6.43 13.07 19.29 BAKÞANKAR Bergsteins Sigurðssonar Sæl Jóhanna. Þakka þér fyrir að veita mér þetta viðtal. Ég veit að slíkt gerist ekki á hverj- um degi, að minnsta kosti þegar erlendir blaðamenn eins og ég eiga í hlut. En ég verð að viður- kenna að þú lítur aðeins öðruvísi út en ég hélt.“ „Nei, þú ert að mis- skilja, ég er ekki Jóhanna, ég heiti Hrannar B. Arnarsson, aðstoðar- maður hennar. Láttu titilinn samt ekki blekkja þig; ég er eiginlega alveg jafn mikilvægur og hún.“ „Öh, já er Jóhanna þá á leiðinni?“ „Ja, sjáðu til, Jóhanna er sko ekki með neina fjölmiðlasýki og hleyp- ur ekki til og brosir í hvert sinn sem hún sér myndavél. Ég sé um það.“ „ÉG skil. Er Jóhanna svona fjöl- miðlafælin?“ „Nei, ég skal sko segja þér það að hún Jóhanna gefur forverum sínum ekkert eftir í þessum efnum.“ „Áttu við eins og þann sem var alltaf að hlaupa undan blaðamönnum í gegn- um bílakjallara og stöðvaði sjón- varpsviðtöl ef hann var spurður út í evruna?“ „Ha, ha, þú ert ágæt- ur. Sko, ég veit ekki hvernig þetta er hjá ykkur í Frakklandi en hér á Íslandi fá stjórnmálamenn aldrei frí. Aldrei! Og þegar maður vinn- ur allan sólarhringinn við að slá skjaldborg og byggja velferðar- brú, hefur maður ekki tíma til að elta ólar við alla sem vilja hitta mann.“ „ÞANNIG að Jóhanna er ekki að forðast fjölmiðla?“ „Alls ekki, enda þegar sá orðrómur komst á kreik blés hún á hann í eitt skipti fyrir öll.“ „Hvernig?“ „Ég skrifaði grein í Morgunblaðið.“ „Þú?“ „En ekki hver?“ „Nú, kannski Jóhanna.“ „Eins og ég var að skýra fyrir þér er Jóhanna mjög upptekin og ekki hægt að ætlast til að hún sé sjálf að standa í því að hrekja sögusagn- ir um tregðu hennar til að tala við fjölmiðla.“ „EN hvað varð til þess að Jóhanna féllst loksins á að veita mér viðtal?“ „Ja, eins og Egill Helgason benti á starfarðu á stærsta dagblaði Frakklands, talar hrafl í íslensku frá því að þú varst skiptinemi á Þingeyri eða eitthvað og viðtal við þig yrði kærkomin landkynning.“ „Landkynning? Ég er blaðamað- ur og ætla að spyrja gagnrýnna spurninga um efnahagshrunið og hvers vegna endurreisnarstarfið hefur gengið svona hægt.“ „JÆJA góði. Það er augljóst að þú hefur ekki hugmynd um hvernig hlutirnir ganga fyrir sig hér á Íslandi.“ „Ég fæ sem sagt ekki að hitta Jóhönnu?“ „Au contraire, minn kæri vin. Ríkið, það er Jóhanna. Og Jóhanna, það er ég.“ Jóhrannar Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18 – 49 ára. Könnun Capacent í maí 2009 – júlí 2009. Hvar er þín auglýsing? 35% 72% MEXÍKÓSKUR SKYNDIBITI – 6 STAÐIR HÖFÐATORG // STJÖRNUTORG, KRINGLAN // N1 HRINGBRAUT N1 BÍLDSHÖFÐA // SMÁRALIND // DALSHRAUN 11 , HAFNARFIRÐI OPNUM GLÆSILEGAN VEITINGASTAÐ VIÐ HÖFÐATORG Í DAG KL. 11.00 200 FYRSTU GESTIRNIR FÁ ÓKEYPIS BURRITO SERRANO. IS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.