Fréttablaðið - 18.09.2009, Blaðsíða 20
18. september 2009 FÖSTU-
DAGUR
2
LANGASANDSKEPPNIN 2009 í mótokrossi verður hald-
in á Akranesi laugardaginn 19. september. Keppni hefst klukkan
10.30 en keppt verður í nokkrum flokkum. Þá verður einnig hald-
in sívinsæl prjónkeppni. www.msisport.is
Á Grand Hóteli Reykjavík er ekta
indversk stemning og verður fram
á fimmtudag í næstu viku. Fyrst
ber að nefna framandi mat sem
mun gleðja gesti og fylla sali af
höfugum ilmi. Í kvöld sýnir dans-
hópur þjóðlega indverska dansa
meðan á borðhaldinu stendur og
myndir frá Indlandi verða sýndar
á skjá í matsalnum alla dagana sem
veislan stendur. Einnig verða tvær
Bollywood-myndir á dagskrá næstu
daga sem öllum býðst að sjá endur-
gjaldslaust.
Ingólfur Einarsson er aðstoðar-
hótelstjóri á Grand. Hann segir ind-
verska sendiráðið hið þriðja í röð-
inni sem hótelið vinnur með. „Það
var valið vegna áhuga á Indlandi
sem við höfum fundið fyrir hjá
okkar gestum og ekki síst Íslend-
ingum,“ segir hann.
Matreiðslumeistarana tvo, Jit-
ender Himral og Mohd Ismail, segir
hann koma af Ashoka, fimm stjörnu
hóteli í Delí. Einnig hafi þeir mat-
reitt á mörgum flottustu veitinga-
stöðum landsins og annast opinber-
ar móttökur og veislur. „Þeir koma
með alls kyns krydd og fínerí með
sér og verða hér yfir pottunum í
eina viku. Hér verður hádegishlað-
borð alla daga og matseðill á kvöld-
in sem samanstendur af um þrjátíu
réttum. Þetta er flókin matargerð
en á að vera brot af því besta frá
þeirra heimalandi.“
Kvikmyndirnar tvær sem Íslend-
ingum býðst að sjá frítt eru Devdas
frá 2002 og Lagaan 2001. Sú síðar-
nefnda er ein frægasta mynd Ind-
verja og hefur hlotið tvenn verðlaun
á alþjóðlegum kvikmyndahátíðum.
„Þær verða sýndar klukkan sex og
níu á hverju kvöldi fram á fimmtu-
dag. Þannig geta matargestir notið
þess að sjá myndirnar öðru hvoru
megin við máltíðina ef þeir vilja
en menn geta líka komið í bíóið
án þess að borða,“ lýsir Ingólfur.
Hann segir komandi daga leggj-
ast vel í sig. „Maður finnur svo vel
hvað áhuginn er mikill hjá Íslend-
ingum fyrir þessu indverska og það
er ofboðslega gaman að fá kokka
frá Indlandi. Þannig verður þetta
eins indverskt og hægt er að hafa
það. Okkar kokkar verða þeim til
aðstoðar og læra auðvitað í leið-
inni.“ gun@frettabladid.is
Færa indverskt krydd
inn í íslenska tilveru
Indversk matarvika með menningarívafi stendur yfir á Grand Hóteli í samvinnu við indverska sendiráðið.
Tveir gestakokkar frá fínustu veitingastöðum Indlands laða fram kryddaðar og ljúffengar kræsingar.
Þeir efna til veislu, Vignir Hlöðversson, yfirmatreiðslumaður á Grand Hóteli Reykjavík,
Jitender Himral og Mohd Ismail, ásamt Ingólfi Einarssyni aðstoðarhótelstjóra.
Fatasöfnun
Rauða kross Íslands
Er fatapokinn kominn til þín?
Rauði kross Íslands í samvinnu við Eimskip, Pósthúsið og SORPU dreifa nú
sérmerktum fatapokum um allt land til að auðvelda landsmönnum að taka
til hjá sér og koma gömlum fatnaði í endurvinnslu. Með því að gefa fatnað
leggur fólk Rauða krossinum lið og styrkir neyðaraðstoð bæði hér á landi
og erlendis.
Við tökum líka við ónýtum fatnaði sem við seljum í endurvinnslu
Handklæði, dúkar, gardínur og slíkt eru einnig verðmæti fyrir okkur
Tökum ennfremur við skóm, töskum, leikföngum og annarri smávöru
Alls ekki henda ónýtum fatnaði eða öðrum efnisbútum!
Stuðlum að aukinni endurvinnslu
og endurnýtingu!
styrkir birtingu þessarar auglýsingar