Fréttablaðið - 18.09.2009, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 18.09.2009, Blaðsíða 19
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 VEITINGASTAÐURINN RÁIN í Keflavík verður tuttugu ára á morgun. Af því tilefni verður haldin glæsi- leg afmælisveisla og boðið verður upp á forrétt, steikar- hlaðborð, kaffi og líkjör á aðeins 4.500 kr. „Ég er ekki þekkt fyrir nein stór- afrek í eldhúsinu og finnst alltaf skemmtilegast að baka eða gera eitthvað óhollt,“ segir Guðrún Lov- ísa Ólafsdóttir, eigandi og þjálfari hjá Fullfrísk. „Við í fjölskyldunni erum miklir sælkerar og til að geta leyft mér alla þessa óhollustu hreyfi ég mig þeim mun meira. Þannig er ég til dæmis búin að kenna tvo tíma í dag og er að fara í rope-jóga eftir smástund. Ég má því vel borða sætindi.“ Uppskriftina fékk Guðrún Lovísa hjá vinkonu sinni og hefur oftsinnis útbúið hana. Ekki þarf að nota ofn, hellur eða annað og því er rétturinn tilvalinn til að útbúa með krökkum. „Sonur minn sá um að skera niður ávextina og ég leyfi mér að kaupa marengsbotnana í stað þess að baka þá sjálf,“ segir Guðrún og segist þá njóta þess enn frekar að útbúa góð- gætið með börnunum. juliam@frettabladid.is Skemmtilegast að gera einfalda og óholla rétti Guðrún Lovísa Ólafsdóttir segist vera heldur ósjálfbjarga í eldhúsinu og því kjósi hún helst einfaldar uppskriftir. Skyrmarengsinn þarfnast lítils undirbúnings og tekur aðeins hálftíma að útbúa. Guðrún Lovísa Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur og líkamsræktarfrömuður, er mikill sælkeri og segist njóta þess að borð óholla fæðu og hreyfa sig þeim mun meira. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN 2 hvítir marengsbotnar (gott að hafa líka með kókosbragði) 5-6 stk. Mars-súkkulaði 2 plötur suðusúkkulaði ávextir að eigin vali, svo sem kíví, jarðarber, rauð vínber og bláber ½ l rjómi ½ l vanilluskyr ½ poki af hrískúlum Setjið marengsbotnana í fat og brjótið þá niður. Skerið gróft niður Mars- og suðusúkku laði. Skerið einnig ávextina. Þeytið rjómann og hrærið að því loknu vanilluskyrinu saman við rjómann. Blandið súkku laðinu og rjómaskyrblöndunni saman og hellið yfir marengsinn. Dreifið ávöxtunum og hrískúl- unum yfir. SKYRMARENGS Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207 Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is H rin g b ro t 6.990 kr. 4ra rétta tilboð og nýr A la Carte Gjafabréf PerlunnarGóð tækifærisgjöf! Hægt er að panta 4ra rétta seðilinn með sérvöldu víni með hverjum rétti: 10.990 kr. Barolo „Ornato“ 2004 | Ítalía. Chablis Grand Cru ,,Les Clos” 2005 | Frakkland Glas af eðalvíni Nú hefur veitingahúsið Perlan bætt við möguleikanum að velja sér glas af 16 eðalvínum með mat. Verð frá 1.050-3.700 kr. Sjá nánar á perlan.is. · Reykt önd með fíkjum, valhnetum og rauðvínsgljáa · · Humarsúpa rjómalöguð með grilluðum humarhölum · · Lambahryggur með lambaskanka og rósmarínsósu · * E Ð A * · Fiskur dagsins útfærður af matreiðslumönnum Perlunnar · · Skyr “Tonka crème brûlée” með karamelluís ·

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.