Fréttablaðið - 18.09.2009, Blaðsíða 8
8 18. september 2009 FÖSTUDAGUR
OFBELDI Fyllilega kemur til greina
að endurskoða kynferðisbrota-
kafla almennra hegningarlaga,
segir Ragna Árnadóttir dómsmála-
ráðherra, spurð um það sem fram
kemur í nýútkominni bók Þórdísar
Elvu Þorvaldsdóttur, Á mannamáli,
um ofbeldi á Íslandi, og umræðu
sem spunnist hefur um efni henn-
ar.
Í bókinni fjallar Þórdís Elva
meðal annars um misræmi í viður-
lögum við kynferðisbrotum.
Hún tekur dæmi af ímynduðum
manni sem eigi þrjár dætur, 14, 15
og 17 ára. Samkvæmt lögum eigi
hann mest yfir höfði sér sextán ára
fangelsi fyrir að misnota þá yngstu,
tólf ára fangelsi fyrir að misnota þá í
miðið og átta ára
fangelsi fyrir að
misnota sautján
ára dótturina.
Maðurinn á
síðan yfir höfði
sér mest sex-
tán ára fangelsi
fyrir að nauðga
ókunnugri konu,
tvöfalt þyngri
refsingu en fyrir
að misnota elstu dóttur sína.
Nefnt hefur verið að fella öll brot
þar sem samræði er haft við börn
undir hugtakið nauðgun. „Það er
vissulega hægt að velta fyrir sér af
hverju svo svívirðilegir verknaðir
skuli ekki allir sæta sama refsihá-
markinu,“ segir Ragna.
Hún bendir þó á að sérstök ákvæði
um börn í kynferðisbrotakaflanum
séu börnunum til verndar, vegna
þess að ekki þurfi nauðgun, í skiln-
ingi hegningarlaga, til að samræði
við barn sé refsivert. Þannig hafi
hegningarlög að geyma ýmiss konar
brotalýsingar sem væntanlega leiða
til þess að unnt sé sakfella fleiri en
færri.
Enn fremur bendir Ragna á að
ákvæðin um samræði við börn úti-
loki ekki að sá sem gerist brotlegur
við það ákvæði gerist einnig sekur
um nauðgun, sé ofbeldi beitt eins og
lögin gera ráð fyrir í nauðgun.
Þá hefur einnig vakið athygli
hversu langt frá hámarki refsi-
rammans dómar í kynferðisbrota-
málum eru jafnan. Ragna segir að
í greinargerð með nýjustu laga-
breytingunum á kynferðisbrota-
kafla hegningarlaga, frá 2007,
komi fram að refsimörkin séu höfð
rúm, sem þýðir að þau séu í raun
mun hærri en dæmdar refsingar
eru almennt. „Um það má deila, og
spyrja af hverju dómarar nota ekki
allan refsirammann þegar hann er
til staðar,“ segir Ragna.
Hún nefnir þó að dómar í
kynferðis brotamálum hafi að und-
anförnu verið að þyngjast, hvort
sem það er vegna þess að brotin
verði æ alvarlegri eða að dómstólar
séu hægt og bítandi að þyngja refs-
ingarnar samfara aukinni þekkingu
á afleiðingum brotanna.
Ragna segist telja að sú umræða
sem átt hefur sér stað um kynferð-
isbrot, ekki síst gegn börnum, und-
anfarin ár, muni breyta því hvern-
ig litið sé á brotin. Fyllilega komi
til greina að taka kynferðisbrota-
kafla laganna enn á ný til skoðun-
ar, enda hafi Atli Gíslason, þingmað-
ur Vinstri grænna og varaformaður
allsherjarnefndar, vakið máls á því.
stigur@frettabladid.is
Kemur vel til greina
að endurskoða lögin
Dómsmálaráðherra telur fyllilega koma til greina að endurskoða enn á ný lög
um kynferðisbrot. Sérstök ákvæði um brot gegn börnum ætluð þeim til verndar.
RAGNA
ÁRNADÓTTIR
PERSÓNUVERND Jón Jósef Bjarna-
son, sem bjó til gagnagrunn um
tengsl manna í viðskiptalífinu,
segir að Ríkisskattstjóri hafi vegið
að mannorði sínu með fréttatil-
kynningu sem embættið sendi út í
fyrrakvöld. Þar segir að til athug-
unar sé hvort Jón hafi tekið upplýs-
ingar til að nota í gagnagrunninn
í heimildarleysi en Jón er fyrrver-
andi starfsmaður Ríkisskattstjóra.
Eins er upplýst í fréttatilkynning-
unni að einkahlutafélag Jóns Jósefs
hafi ekki skilað frá sér ársreikningi
undanfarin þrjú ár.
„Ég skil ekki af hverju hann er
að setja þetta í blöðin,“ segir Jón
Jósef. Hann segist hafa samið um
aðgang að gögnunum og tekið fram
til hvers hann væri að nota þau og
að það tengdist ekki störfum hans
hjá Ríkisskattstjóra.
Jón Jósef ætlar að ráðfæra sig við
lögfræðinga um stöðu sína vegna
tilkynningar Ríkisskattstjóra og
annars sem málið varðar.
„Við erum ekkert að vega að
Jóni,“ sagði Skúli Eggert Þórðar-
son ríkisskattstjóri. „Hann hefur
ekki farið að persónuverndarlög-
um og það er til athugunar hvort
hann hafi tekið gögnin án heimild-
ar.“ Um það hvers vegna upplýsing-
ar séu gefnar í tilkynningunni um
ársreikninga einkahlutafélags Jóns
Jósefs segir Skúli Eggert að Jón
Jósef hafi talað fyrir auknu gagn-
sæi með því að kortleggja eigendur
félaga og rekstur þeirra. Persónu-
vernd hefur nú mál Jóns Jósefs til
meðferðar. - pg
Eigandi gagnagrunns sakar Ríkisskattstjóra um að vega að mannorði sínu:
Ráðfærir sig við lögfræðinga
TENGSL Gagnagrunnur Jóns Jósefs sýndi
að Baugsfeðgar voru tengdir á 809 vegu
í íslensku viðskiptalífi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur mild-
að fangelsisdóm yfir Hauki Helga-
syni ökukennara sem héraðs-
dómur hafði áður dæmt í þriggja
ára fangelsi fyrir að brjóta kyn-
ferðislega gegn fjórum nemend-
um sínum. Hæstiréttur hefur nú
dæmt Hauk í tveggja ára fangelsi.
Í dómi Hæstaréttar segir að líta
verði til þess við ákvörðun refs-
ingar að Haukur hafi misnotað
aðstöðu sína sem kennari piltanna
freklega. Brotin hafi verið alvar-
leg og þau staðið lengi. Á hinn bóg-
inn þurfi einnig að horfa til þess
að brotin voru nánast fyrnd sam-
kvæmt þágildandi lögum þegar
lögregla hóf rannsókn málsins. - sh
Ökukennari í fangelsi í tvö ár:
Dómur yfir níð-
ingi mildaður
með ánægju
Rödd skynseminnar
Verð frá:
Hvort sem þú ert í London
eða annars staðar skaltu nota
almenningssamgöngur. Þær
eru ódýrar og áreiðanlegar.
Það hlýtur að vera einhver
ástæða fyrir því að heima-
menn nota strætó og lestir,
er það ekki?
Hlustaðu á rödd skynseminnar,
bókaðu flug til Evrópu og fáðu
góð sparnaðarráð á
www.icelandexpress.is
Mind
the gap!
Aðra leið með sköttum
og öðrum greiðslum.
14.900 kr.
London
Frá og með 2. nóv.fljúgum við bæði um Stansted og Gatwick
í London!
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
3
0
5
6
0
P
IP
A
S
ÍA
9
1
2
6
5
Nýr matseðill
á Ruby Tuesday
Höfðabakka 9 & Skipholti 19 Sími 577-1300
17 nýir réttir
til að gæða sér á
Komdu í heimsókn
MISRÆMI Í LÖGUNUM Helmingi lægri hámarksrefsing liggur við því að misnota
sautján ára dóttur sína en að nauðga ókunnugri konu. NORDICPHOTOS / GETTY
1. Hvað heitir nýr forsætisráð-
herra Japans?
2. Hvaða sjónvarpsstöð hefur
boðið Jóhönnu Guðrúnu að
syngja í jólaþætti?
3. Hvað heita aðalpersónurnar
í glæpasögum Stiegs Larsson?
SVÖR Á SÍÐU 34
VEISTU SVARIÐ?