Fréttablaðið - 18.09.2009, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 18.09.2009, Blaðsíða 40
28 18. september 2009 FÖSTUDAGUR Búist er við því að nýjasta bók Dans Brown, The Lost Symbol, seljist upp hér á landi um helgina. Í gær voru rúmlega eitt hundrað bækur eftir á lager af þeim fimm hundruð sem pantaðar voru. Næsta upplag er ekki væntanlegt í búðir fyrr en í þarnæstu viku. „Bókin hefur rokselst síðan hún kom,“ segir Jónfinn Joensen, vöru- stjóri erlendra bóka hjá Eymunds- son. „Hún er uppseld í mörgum búðum en er til í stærstu búðun- um enn þá. Við erum að reikna með því að bækurnar klárist um helgina. Þetta er mjög svipað og við bjuggumst við.“ Bókin seldist í einni milljón eintaka á fyrsta útgáfudeginum í Bretlandi og Bandaríkjunum sam- anlagt, sem mun vera nýtt met. Því kemur árangurinn hér á landi ekki á óvart. Bókin er væntanleg í íslenskri þýðingu í byrjun nóvember og verður fyrsta upplagið prentað í 5.000 eintökum. Metsölu- bók Dans Brown, Da Vinci-lykillinn, hefur selst í 25 þúsund ein- tökum hér á landi og því líklegt að fyrsta upplagið af The Lost Symbol, eða Týnda tákninu, seljist fljótt upp. Nú s t y t t i s t einnig í að þriðja bókin í Millenni- um-þríleik Stiegs Larsson, Loftkastalinn sem hrundi, komi út á ensku hér á landi, eða 1. október. Önnur bókin í seríunni kemur einmitt út í dag á íslensku. „Hún var að koma úr prentsmiðj- unni,“ segir Jónfinn um þriðju bókina. „Það er búin að vera gríðarlega mikil eft- irspurn eftir þessari bók.“ - fb Leikarinn Burt Reynolds, sem er meðal annars þekktur fyrir hlut- verk sitt í kvikmyndinni Smokey and the Bandit og Boggie Nights, er farinn í meðferð. Frá þessu er greint í The National Enquirer. Umboðsmaður leikarans sendi frá sér tilkynningu þar sem Reyn- olds er sagður háður verkjalyfj- um. „Eftir erfiða bakaðgerð varð Reynolds háður sterkum verkja- lyfjum. Hann hefur nú ákveðið að takast á við vandann og dvelur nú á meðferðarheimili í von um að ná bata. Reynolds vonar að reynsla hans verði öðrum í sömu aðstöðu til fyrirmyndar.“ Listmálarinn Kilford er væntanlegur til Íslands og kemur fram á Réttum í næstu viku. „Kilford verður með okkur á tónleikunum og er víst skvett- andi málningu um allt sviðið og á striga sem hann er með uppi á sviði. Þetta verður spennandi, en við vitum í rauninni ekki hvað er í vændum,“ segir Guðfinnur Sveins- son, meðlimur hljómsveitarinnar For a Minor Reflection. Listmálarinn Kilford kemur til landsins í næstu viku og ætlar meðal annars að stíga á svið með hljómsveitinni For a Minor Reflection á tónlistarhátíðinni Réttir. Þar ætlar hann að mála tónlist sveitarinnar eins og hann heyrir hana. Kilford er 33 ára og hefur verið kallaður rokkstjarna listheimsins. Hann hefur málað tónlist stjarna á borð við Black Eyed Peas, Brian Eno, Damon Albarn, Robert Plant og Kasabian. „Þegar ég finn tón- listina sé ég liti. Það er mjög ein- falt,“ segir hann. Guðfinnur segir að gjörning- urinn verði væntanlega svolítið fyndinn, en Kilford hyggst mála hljóðheim hljómsveitarinnar á miðvikudagskvöld. Hann segist ekki ætla að setja sig í sérstak- ar stellingar fyrir málarann, sem fékk tóndæmi með hljómsveitum sem koma fram í Réttum og valdi í kjölfarið For a Minor Reflection. „Við erum virkilega spenntir og bara mjög spenntir fyrir gigg- inu. Við vorum að klára að taka upp nýju plötuna og spilum bara ný lög á tónleikunum,“ segir Guð- finnur og útilokar ekki að nota útkomuna í umslagshönnun nýju plötunnar. atlifannar@frettabladid.is NÝTT Í BÍÓ! SÍMI 564 0000 14 16 16 16 L L THE UGLY TRUTH kl. 5.45 - 8 - 10.15 THE UGLY TRUTH LÚXUS kl. 5.45 - 8 - 10.15 INGLOURIOUS BASTERDS kl. 5 - 8 - 10 KARLAR SEM HATA KONUR kl. 5 - 6.30 - 8 ÍSÖLD 3 3D ÍSLENSKT TAL kl. 3.45 ÍSÖLD 3 ÍSLENSKT TAL kl. 3.45 SÍMI 462 3500 THE UGLY TRUTH kl. 6 - 8 - 10 FINAL DESTINATION kl. 6 - 8 - 10 14 16 SÍMI 530 1919 14 16 16 16 16 THE UGLY TRUTH kl. 5.45 - 8 - 10.15 BEYOND REASONABLE DOUBT kl. 5.40 - 8 INGLORIOUS BASTERDS kl. 6 - 9 HALLOWEEN 2 kl. 10.20 KARLAR SEM HATA KONUR kl. 6 - 9 SÍMI 551 9000 H.G.G, Poppland/Rás 2 45.000 MANNS! 45.000 MANNS! SÍÐ AST A S ÝNI NG ARH ELG I Uppgötvaðu ískaldan sannleikann um karla & konur. Fyndnasta rómantíska gamanmynd ársins! 17. - 27. september Miðasala hafin í Eymundsson, Austurstræti. Nánari upplýsingar á riff.is L L 16 16 16 16 16 16 16 16 V I P V I P 10 L L L L L L L L L L DISTRICT 9 kl. 5:50 - 8 - 10:30 DISTRICT 9 kl. 3:30 - 8 - 10:30 BANDSLAM kl. 3:30 - 5:45 - 8 - 10:20 WHALE WATCHING MASSACRE kl. 8:30 - 10:30 UP M/ Ensk. Tali kl. 8 - 10:20 UPP M/ ísl. Tali kl. 3:40(3D) - 5:50(3D) UPP M/ ísl. Tali kl. 3:40 - 5:50 DRAG ME TO HELL kl. 10:30 G-FORCE M/ ísl. Tali kl. 4 THE PROPOSAL kl. 8 THE PROPOSAL kl. 5:50 HARRY POTTER 6 kl. 5 DISTRICT 9 kl. 8:20 - 10:40 FINAL DESTINATION 4 (3D) kl. 8:30 - 10:30 BANDSLAM kl. 4 WHALE WATCHING MASSACR kl. 6:15 - 8:30 - 10:30 UPP M/ ísl. Tali kl. 4(3D) - 6:15(3D) UPP M/ ísl. Tali kl. 4 UP M/ Ensk. Tali kl. 6:15(3D) DISTRICT 9 kl 8 - 10:20 UP M/ ísl. Tali kl. 5:40 BANDSLAM kl. 5:40 - 8 WHALE WATCHING MASSACRE kl. 10:20 T.V. - KVIKMYNDIR.IS ROGER EBERT HTTP://FACEBOOK.COM/BIOMYNDIR - bara lúxus Sími: 553 2075 THE UGLY TRUTH kl. 4, 6, 8 og 10 12 THE FINAL DESTINATION 3D kl. 10 16 INGLORIOUS BASTERDS kl. 6 og 9 16 ÍSÖLD 3 - ÍSLENSKT TAL kl. 4 L MY SYSTERS KEEPER kl. 3.50 og 6 12 SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI - Þ.Þ., DV Brown uppseldur um helgina DAN BROWN Nýjasta bók Dans Brown, The Lost Symbol, hefur selst í hundruðum eintaka hér á landi á skömmum tíma. ROKKSTJÖRNUMÁLARI Kilford hefur málað tónlist kappa á borð við Brian Eno og Damon Albarn. Rokkstjarna listheimsins Leikkonan Megan Fox sagði í nýlegu viðtali við tímaritið Roll- ing Stone að hún væri sérstak- lega skapstór. Hún sagði einn- ig að hún ætti það til að verða ofbeldisfull þegar hún rífst við unnusta sinn, leikarann Brian Austin Green. „ Ég hef þurft að segja við Brian: „Þú verð- ur að hætta að tala núna og fara héðan, annars á ég eftir að drepa þig.“ Þess vegna mundi ég aldrei geyma skotvopn á heimilinu, ég mundi örugglega enda á því að skjóta hann í fót- inn.“ Megan Fox ofbeldisfull BURT REYNOLDS Leikarinn góðkunni er kominn í meðferð. Hann er háður verkjalyfjum. Reynolds í meðferð Föstudagur, 18. september Friday, September 18th 13:00 Óður til kvikmyndanna: Saga amerískrar kvikmyndagagnrýni Hellubíó 14:00 Frá torfkofa á forsíðu Time Hafnarhúsið 16:00 Skjannabirta: Þegar andi og efni mætast Norræna húsið Á vegum tvíkynhneigðra Hafnarhúsið Fæddur handalaus Háskólabíó 3 16:40 Týndur hundur / Stormur Háskólabíó 2 17:00 Amadeus Háskólabíó 1 18:00 Orð í sandinn Hellubíó Ríki bróðirinn Norræna húsið Gleymd Hafnarhúsið Mamma er hjá hárgreiðslumanninum Háskólabíó 3 Hamingjusamasta stúlka í heimi Háskólabíó 4 18:40 Antoine Háskólabíó 2 19:40 Saman Háskólabíó 1 20:00 Hrátt Norræna húsið Börn í eldinum Hafnarhúsið Tvö á reki Háskólabíó 3 Uppklapp Háskólabíó 4 Sundpartý Sundhöll RVK 20:40 Íslenskar stuttmyndir 1 Háskólabíó 2 21:30 Patrik 1,5 Háskólabíó 1 22:00 Móðir Jörð Norræna húsið Kelin Háskólabíó 3 Miðnæturbíó 2 Háskólabíó 4 22:20 Vafningar Hellubíó 22:40 Stolið: Manifestó rímixarans Háskólabíó 2 23:20 Slóvenska stúlkan Háskólabíó 1 Tveir stuttmyndaskammtar verða sýndir á hátíðinni sem báðir innihalda glænýjar myndir eftir íslenska leikstjóra. Leikstjórar stuttmynda kvöldsins sitja fyrir svörum eftir sýninguna. Á undan hvorum skammtinum um sig verða fluttar hljóðmyndir eftir íslenska dagskrárgerðarmenn. Íslenskar stuttmyndir Icelandic Shorts

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.