Fréttablaðið - 18.09.2009, Blaðsíða 6
6 18. september 2009 FÖSTUDAGUR
Hverfi sgata 123 • Sími: 588 2121
YUMMI YUMMI Menu
noodles, spaghetti, rice and more
All same prices 699.-
1. Deep fried Fish & French fries.
2. Fried yellow Noodles with tofu and veg.
3. Spicy Noodles salad **
4. Spaghetti with green curry ***
5. Stir-fried Brown Rice with egg,sausage,tofu and veg.
6. Noodles, Tofu with massaman curry sauce *
Special Menu for 999.-
S1. Green curry fried rice with chicken ***
S2. YummiYummi thin Rice Noodles with coconut milk,
ground peanuts, egg, fresh chili and Tofu **
All recommend by BanThai Restaurant
FISKRÉTTIR Í SÓSU
1190 KG.KG
T.D. ÝSA PARMASANSÓSU, ÞORSKUR TOSCANASÓSA
ÝSA KARRÍSÓSA, ÞORSKUR MEXICOSÓSA
HUMAR
2.000 KR.KG
ÞÝSKALAND Nítján ára gamall
nemandi slasaði tíu manns eftir
að hann henti bensínsprengju að
framhaldsskóla í Þýskalandi í
gærmorgun. Lögreglumenn hand-
tóku manninn og fluttu hann slas-
aðan á sjúkrahús.
Árásin átti sér stað í Carolinum-
framhaldsskólanum, skammt frá
Nürnberg. Þýska lögreglan segir
að bæði nemendur og kennarar
hafi slasast og að árásarmaðurinn
hafi verið nemandi við skólann.
Þýska lögreglan er á varðbergi
gagnvart atburðum sem þessum
enda er einungis hálft ár síðan 17
ára piltur, Tim Kretschmer, myrti
fimmtán manns í skotárás.
Voðaverk þýsks skólapilts:
Tíu slösuðust í
sprengjuárás
DÓMSMÁL Tveir piltar sem tóku ófrjálsri hendi golf-
bíla á golfvellinum við Strönd í Rangárþingi í júlí á
síðasta ári og spændu á vellinum hafa verið dæmd-
ir bótaskyldir vegna skemmda sem þeir ollu. Tveir
piltar til viðbótar sem einnig óku golfbílum um völl-
inn, voru sýknaðir.
Piltarnir sem um ræðir voru á aldrinum fjórtán
til sextán ára. Einn þeirra hafði fundið lykil að golf-
bíl á vellinum. Það varð til þess að hann og félagar
hans ákváðu að fara, eftir lokun vallarins, og leika
sér á golfbílum.
Ökuæfingar piltanna voru mjög miskræfar.
Nokkrir óku til dæmis upp á hól og stukku þar út úr
bílnum til að láta hann fljúga fram af hólnum. Þá
læstu þeir afturdekkjunum til að láta bílinn skauta í
hringi. Með því brutu þeir flagg á flötinni. Leikur-
inn barst að skálanum þar sem þeir létu bílinn svo
reykspóla. Einn piltanna kvaðst hafa klesst á ljósa-
staur, flaggstöng og bremsað á flötunum. Annar
kvaðst hafa ekið niður tvær flaggstangir, skrensað í
brekku og ekið niður stikur sem voru á brautinni.
Golfvöllurinn og bílarnir skemmdust allnokkuð
við ökuæfingarnar. - jss
Fjórir piltar tóku golfbíla traustataki og urðu valdir að skemmdum:
Spændu og spóluðu á golfvelli
GOLFBÍLL Tveir piltar voru dæmdir bótaskyldir vegna skemmda
sem þeir unnu á golfvelli og golfbílum.
SJÁVARÚTVEGUR Ráðgjafi í sjávarút-
vegsmálum hjá Einingarsamtök-
um Afríku ásakar Evrópusam-
bandið um hroka í samskiptum
við Afríkuþjóðir og rányrkju á
fiskimiðum þeirra. Þetta kemur
fram í viðtali við Nancy Git-
onga frá Keníu við danska blaðið
Arbejderen og sagt er frá á vef
LÍÚ.
Í viðtalinu dregur Gitonga
upp dökka mynd af framferði
Evrópusambandsríkja, einkum
Spánverja, Portúgala og Frakka.
Hún segir ESB árlega semja um
aðgang að fiskimiðum Afríku-
ríkja, einkum við vesturströnd-
ina, gegn greiðslu. Í flestum til-
vikum séu engin ákvæði um
hámarksafla í samningunum.
Afleiðingin sé rányrkja.
Gitonga segir að veiðar Evrópu-
sambandsríkjanna skapi hvorki
atvinnu né tekjur fyrir íbúa
þeirra Afríkuríkja sem um ræðir.
Á hinn bóginn skapi veiðarnar
stórfellt vandamál fyrir hundr-
uð þúsunda íbúa sem ekki geta
lengur framfleytt sér með fisk-
veiðum eða afleiddum störfum af
sjávarútvegi.
„Það á að heita svo að pen-
ingarnir sem ESB greiðir fyrir
aðganginn að fiskimiðunum renni
til sjómanna og annarra sem hafa
orðið illa úti vegna þessara veiða.
En raunveruleikinn er annar.
Féð fer allt til landbúnaðarmála
og er aðeins dropi í hafið,“ segir
Gitonga í viðtalinu. - shá
Einingarsamtök Afríku gagnrýna veiðar Evrópusambandsríkja harðlega:
Segja ESB stunda rányrkju
Á VEIÐUM Framferði Spánverja, Portú-
gala og Frakka við Afríkustrendur er
sérstaklega átalið.
VIRKJANIR Umhverfisráðherra
mun taka greiðslur Landsvirkjun-
ar til Skeiða- og Gnúpverjahrepps
til skoðunar. Samgönguráðuneyt-
ið úrskurðaði nýverið að svipaðar
greiðslur fyrirtækisins til Flóa-
hrepps hefðu stangast á við lög.
Ekki sé heimild í lögum fyrir því
að aðrir en sveitarfélag beri kostn-
að vegna aðalskipulags.
Í tilviki Flóahrepps var um að
ræða greiðslur fyrir skipulagsvinnu,
sem fyrirtækið innti af hendi. Fram
hefur komið
að fyrirtækið
muni einnig sjá
um uppsetningu
gsm-kerfis í
Skeiða- og Gnúp-
verjahreppi.
Svandís
Svavarsdóttir
umhverfisráð-
her r a s e g i r
að ljóst sé að
u m hverfið í
kringum þessa
samninga hafi
ekki verið í lagi.
Ábyrg stjórnvöld
hljóti að skoða
þau mál.
„Það þarf að
skoða alla samn-
inga, ekki bara
þessa heldur öll
samskipti orku-
fyrirtækja og sveitarfélaga. Fyrst
og fremst verður þetta skoðað út
frá úrskurði samgönguráðuneytis-
ins. En mér finnst líklegt að þetta
setji allar slíkar ákvarðanir í nýtt
samhengi.“
Náttúruverndarsamtök Íslands
hafa sent umhverfisráðherra bréf
og hvatt hana til að skoða aðkomu
Landsvirkjunar að ákvörðunum
sveitarfélaga síðastliðin tíu til
fimmtán
ár. Þá leggja samtökin til að
skipulagsbreytingar vegna virkj-
ana í neðri hluta Þjórsá verði gerð-
ar ómerkar vegna vanhæfis sveit-
arstjórnarmanna. Svandís segist
fara yfir ábendingar samtakanna
með jákvæðum huga.
Greiðslur af þessum toga hafa
þekkst um nokkra hríð. Skemmst
er að minnast samnings Orkuveitu
Reykjavíkur og Sveitarfélagsins
Ölfuss sem tengdust virkjunum
á Hellisheiði þar sem fyrirtækið
greiddi fyrir nýja fjárrétt og hest-
hús og fyrir að annast viðhald
mannvirkja. Þá skuldbatt fyrirtæk-
ið sig til að sjá um lýsingu vegarins
um Þrengsli, frá Suðurlandsvegi í
Þorlákshöfn fyrir 14 milljónir króna
og leggja ljósleiðara í Þorlákshöfn.
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráð-
herra segir að setja þurfi reglur
um slíka samninga þannig að allt sé
uppi á borðinu fyrirfram. „Kostnað-
arskipting verður að vera skýr áður
en gengið er til samninga.“ Katrín
minnir þó á að lítil sveitarfélög geti
lent í vandræðum með hinn mikla
kostnað sem fylgir slíkum fram-
kvæmdum. Því geti þátttaka ann-
arra í þeim kostnaði verið eðlileg.
kolbeinn@frettabladid.is
Skoða hliðargreiðslur
frá orkufyrirtækjum
Umhverfisráðherra og iðnaðarráðherra segja tilefni til að skoða reglur um
samninga orkufyrirtækja og sveitarfélaga. Oft eru háar upphæðir greiddar
fyrir mál óskyld virkjununum. Náttúruverndarsamtök vilja ómerkja skipulag.
URRIÐAFOSS Virkjanir í neðri hluta Þjórsár hefðu áhrif á vatnsstreymi í fossinum.
Umhverfisráðherra er með greiðslur til sveitarfélagsins frá Landsvirkjun í skoðun.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SVANDÍS
SVAVARSDÓTTIR
KATRÍN
JÚLÍUSDÓTTIR
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
Það þarf að skoða alla
samninga, ekki bara þessa
heldur öll samskipti orkufyrir-
tækja og sveitarfélaga.
SVANDÍS SVAVARSDÓTTIR
UMHVERFISRÁÐHERRA
Er eðlilegt að opið sé fyrir það í
lögum að seðlabankastjóri geti
haft hærri laun en forsætisráð-
herra?
Já 26%
Nei 74%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Mundir þú vilja að aðrir leiddu
ríkisstjórn Íslands en Jóhanna
Sigurðardóttir og Steingrímur J.
Sigfússon?
Segðu skoðun þína á visir.is.
KJÖRKASSINN