Spegillinn - 01.01.1966, Page 11

Spegillinn - 01.01.1966, Page 11
ÓKLEIFA Eitt fjall veit ég gnæfa svo langt yfir lógt, að landsbúar stara ó það hissa. Kratana sundlar að klifra svo hótt og kommarnir tótestu missa. Hið brattgenga íhald komst ei ó þess tind og aftur þó maddaman sneri. Það stendur sem þjóðlífsins stoltasta mynd svo stílhreint úr íslenzku sméri. Öljóst við greinum hin örðugu spor, sem óttu menn fyrr hér á landi, er féð sitt og kýrnar þeir felldu úr hor, en fögnuðu hvalreka og strandi. Skammdegiskvíðinn í sál þeirra sat, — þá sáust oft draugar á rólum — þeir klæðlitlir voru og knappt var um mat og kertin sín átu á jólum. Um jólin nú kveikjum við kertunum á og knífum ei smérið né draflann, og menningarsjúkdóma flestir menn fá og fiturni safna vio naflann. Svo ört er nú skekið þar's nekt var og neyð, að naumast menn rrúað því geta. Menn hesthúsa smérið sem hákarl og skreið en hafa ei undan að éta. En smjörfjallið góða það vex og það vex og viðgang þess ekkert fær staðizt. Þótt spekingar fjasi og fari með pex það furðuskjótt upp hefur hlaðizt. Og ýmsir ei lengur fá sólina séð en sézt hefur nóttin á glugga. Snemma á kvöldum þeir byggja sinn beð, er búa í smjörfjallsins skugga. Já, vandinn er ærinn og vönd eru ráð og valdsmenn sem staddir á skeri. Ei fjallkonu vorri því fyrir var spáð að fjall mundi hún eignazt úr sméri. Því andvarp til himinsins upphæða, frá ættlandi sagna og Ijóða: Ö, Guð! send oss hallæri, eldgos og ís, svo upp étist smérfjallið góða. pós. S p e g i II i n n 11

x

Spegillinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.