Spegillinn - 01.01.1966, Side 14

Spegillinn - 01.01.1966, Side 14
HÖRMUNGA - OG ÞRÓTTLEYSISSÍÐA Þa8 var svo sem auðvitað, að ósigur vorra manna í handknattleik á erlend- um vettvangi væri annarlegum og utan- aðkomandi ástæðum að kenna. Það er nú komið á daginn, að til keppninnar í Póllandi gengu vorir menn bæði glor- soltnir og þó enn verr haldnir af þorsta. Þegar vér lásum gagnorða og skilmerki- lega lýsingu á móttökunum þar eystra, tókum vér út bæði líkams- og sálar- kvalir við tilhugsunina um vanlíðan landa vorra eina saman. Strax í and- dyri hótelsins, sem þeir fengu inni á, L þeim við köfnun, vegna þess að „remma ein mikil“ gaus á móti þeim, og má rétt geta sér þess til hvernig farið hefði ef remmurnar hefðu nú verið tvær, eða fleiri. Segir sig sjálft, hver áhrif þetta hefur haft á súrefnisforða tungnanna og þar með úthaldið í strangari keppni. Þá var nú maturinn, sem þeir kríuðu út, auðvitað eftir þras og pex, ekki sætabrauðið eitt, og auð- vitað hvergi nærri nógu mikill og vitan- lega engin Ieið að fá neitt til að skola S p e g i 11 i n n 14 þessari hungurlús niður með. Nokkur hjálp varð þó að því, að sumir landa vorra gátu selt islenzku krónurnar sín- ar á fimmföldu verði og keypt appelsín fyrir peningina. Er gleðilegt til þess að vita, að veslings krónan okkar skuli þó einhvcrs staðar vera í hærra gengi en í ættlandi sínu, þótt á hinn bóginn sé ömurlegt að fulltrúar líkamsmenningar vorrar skuli jrurfa að eyða öllum vasa- peningnum sínum í gosdrykki og eigi svo ekkert eftir, þegar leiknum er lokið og þeir mega fara að smakka á bjórn- um. Af þessari, því miður hvergi nærri tæmandi lýsingu, á óhrjálegum móttök- um í sæluríkinu (he, he) geta menn séð, hvernig landar vorir hafa verið á sig komnir, er þeir gengu til leiksins í Gdansk. Lungun súrefnislaus eftir að hafa andað að sér austrænni remmu (að vísu bara einni, en þeim mun megn- ari), kviðurinn strengdur af sulti, og kverkarnar og hálsinn þurr og sár af þorsta. Þarf engan að undra, þótt þeim gengi erfiðlega að halda uppi hand- knattleiksheiðri vorum og berjast fyrir málstað íslands við slíkar aðstæður. Ég vona, að það hafi ekki farið fram hjá neinum, að landar vorir voru auðvitað betra liðið, og það miklu betra, frá handknattleikslegu sjónarmiði, þótt þeir töpuðu leiknum af fyrrnefndum ástæð- um. Það er alltaf sorglegt þegar betra liðið tapar, einkum þar sem það kemur svo oft í hlut landa vorra að vera betra liðið í slíkum tilfellum. Vér leggjum eindregið til, að framvegis verði lands- lið vort í handknattleik látið hafa með sér nóg nesti, bæði þurrt og fljótandi þegar það fer utan, og sömuleiðis súr- efniskúta, ef það skyldi lenda í mjög megnri remmu á hótelum, austantjalds. Ekki tók betra við þegar landar vor- ii komu til Nýborgar í Danaveldi og háðu landskeppni við Dani. Raunar munu þeir hafa fengið þar nóg af smörrcbrauði til að seðja hungur sitt E.TH. MATHIESEN h.f. Vonarstræti 4 . Sími 36570

x

Spegillinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.