Spegillinn - 01.01.1966, Qupperneq 22
„Galsi hleypur í Hafnfírðinga"
Það er varla tiltökumál þó að hlaupi
galsi í krakkagreyin einu sinni á ári, á
sjálfan þrettándann, þegar þess er gætt,
að galsi hefxir verið í „alvörufólki“
þessa bæjar næstum allt árið, má þar
nefna róstur þær er urðu vegna þess að
kennari (einn af uppalendum krakk-
anna) lenti í hasar við ritara bæjarins
út af launagreiðslum. Vatnsleysismálið
sem stóð meirihluta sumar, vegna þess
að stór hluti bæjarbúa heimtuðu remí-
andi vatn heim í hús sín, jafnvel þó að
það byggi uppi. á þriðju hæð húsa.
Brunamálin, þau voru tvö, en þá munu
alvörumenn jafnvel hafa látið verr en
krakkagreyin hafa nokkurn tíma vogað
sér að láta á þrettándanum, enda mundi
það talin ósæmileg framkoma. Vonandi
(Vísir 7. jan.)
gleymast slíkir atburðir, ef viðkomandi
alvörumenn skyldu vilja í framboð á
næstunni. Bæjarfógetamálið, en á því
hafa menn alls ekki áttað sig enri, hvort
er . stórkostlegur harmleikur (drama)
eða hlægilegur gamanleikur (revía).
Sumir vilja halda því frarn, að þetta sé
ekkert einsdæmi, þetta sé bara venjuleg
maga-pólitík.
Útvegsmenn! — Skipstjórar!
SELJUM VIÐ LÆGSTA VERÐI:
Uppsettar fiskilínur úr úrvals sísal,
japönsk þorskanet (n/lon),
Plastbelgi, baujur og baujulugtir
Polypropylene — Teinaefni,
Polex-bólfæratóg og fleira.
KAUPFÉLAG HAFNFIRÐINGA
Veiðarfæradeild. — Sími: 5 J2 92
S p e g i 11 i n n 22