Spegillinn - 01.11.1970, Blaðsíða 3

Spegillinn - 01.11.1970, Blaðsíða 3
Leíéarí Þessa dagana eiga menn von á ýmsu inn um bréfa- lúguna - öðru en þessum klassisku víxladlkynningum og lögtakshótunum. Keðjutœknin hefur gripið um sig í flestum þáttum þjóðlífsins. Það fer aurakliður um gjörv- alla þjóðarsálina. Allt lausafé almennings er hlekkjað í eina allsherjarkeðju, sem nœr frá Grímsey til Eyja, teygir anga sína um allt land og langt út fyrir það. Öll sprúttviðskipti fara nú fram eftir keðjulögmálinu. Sexlífið mun nú líka dansa í keðjum. Menn stíga varla svo niður fœti eða veifa hendi, að þeir séu ekki hlekkj- aðir. Og nú hafa menn ýmsa tilburði uppi til þess að koma kunningjum sínum í framboð. Auðvitað hlaut að koma að því, að keðjutœkninni yrði beitt í atkvœðaveiðum. Þessari tœkni var raunar beitt í platkjöri Ihaldsins í Reykjavík. Allflestir uppréttir karlmenn í bœnum og obbinn af mannbœrum dœtrum borgarinnar fengu slík keðjubréf frá velunnurum nokkurra prófkjörskandi- data, svo sem til dœmis þessa júristastráks, sem nú skandalísérar mest í miðstjórnarmafiu Ihaldsins, Hörð- ur eða hvað hann heitir. Svona keðjubréf komu einnig frá fáeinum góðkunningjum Gunnars í Iðnrekanda, en sú keðja mun víst hafa slitnað tiltölulega fljótt. Hins vegar var ekkert keðjusístem í kringum framboð Gunnars á Leiðarenda. Ekki er laust við, að ýmsum háttsettum í herbúðum íhaldsins standi ógn af aftur-. komu þessa pólitíska jöfurs, sem nú hefur loks ratað út úr gjörningaþoku og útlegð. Hann leitar nú upp- hafs síns. Sezt að í lagadeild Háskólans, þar sem hann haslaði sér völl á unga aldri, og hyggst aftur komast á þing, eins og þegar hann var strákur rúmlega tvítugur. - Nú velta spámenn því fyrir sér, hvort hann reki allan feril sinn upp á nýtt og setjist í borgarstjóraembœttið og síðan í ráðherrastólinn, sem Magnús frá Mel hefur nú setið um nokkra hríð við takmarkaðan orðstír. Engum dettur í hug, að Gunnar geri þetta ótilkvaddur, fremur en aðrir þeir kandidatar, sem nú eru sendir fram á vígvöllinn í hinni pólitísku orustu. Þvert á móti er flestum þröngvað í framboð. Svo sem til dœmis honum Benna okkar Gröndal sem lét tilleiðast að fara fram á Vesturlandi - eftir mikið dekstur og eftirtölur. Nú er hins vegar eftir að sjá, hvort atkvœðakeðjurnar slitna. - Og hvort þœr eru löglegar, nóta bene. Spegillinri 4 Samvizka þjóðarinnar Spegillinn kemur út 10 sinnum á árinu 1970. Áskriftargjald féll í gjalddaga í júlí sl. í lausasölu kostar blaðið 50 krónur með söluskatti. Ritstjóri: Jón Hjartarson Aðalteiknari: Ragnar Lár. Filmusetning og prentun: Lithoprent Afgreiðsla, áskrift: Sími 20865, kl. 13-15 Pósthólf 594, sími 83065 5 Sjö kortéra styrjöld Mývetninga 9—10 Smáauglýsingar 11 Brezkur miðill læknar fótmeiðsli Hermanns 12 Ekkert og afrekið (Ijóð) 13 Meinhornið: Ólafur Jóhannesson 15 Keðjubréfin: Við vorum búnir að akkera okkur í öllum keðjum 20 Vessar: Vér lútum þér Mammon 23 Haustharmar (Ijóð) 24 Forustuerindi flutt á þingi betlisambands bænda 25 Úr gömlum spegli: Veit ég það Sveinki 29 Áhugavert og listrænt í kvikmyndum 30 Stjörnuspá

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.