Spegillinn - 01.11.1970, Síða 18

Spegillinn - 01.11.1970, Síða 18
fyrstunni, svo að skatturinn kæmist ekki í það. Ég mundi kaupa togara eða eitthvað svo- leiðis. Alltaf verið dálítið fyrir sjóinn. Djöfull mundum við sigla, Siggi! Er ekki hægt að kaupa hús þarna á Mallorku, svona obboð- litla villu við ströndina. Ég ætti að hafa samband við hann Guðna á morgun. Helvíti ættum við vel saman við Onassis. Ég með tog- arana og hann í olíunni. Kelling, komdu með bland. Hel- vítis vitleysa, nóg til af peningum. Stattu bara við bréfalúguna, kona! Víxillinn fellur á morgun. Mamma ætlar að lána mér fyrir afborguninni. Það er aldrei hægt að gera bisniss, sem vit er í hér á þessu útskeri. Hvað ætli sé svo sem hægt að græða á þessum örfáu hræðum. Nei, ég hefði átt að fara til Astralíu um árið. Svo ef maður fær einhverja snjalla ídeu, þá eru allir undireins hlaupnir upp til handa og fóta fyrr en varir og búnir að stela henni. Það er ekki einu sinni leyfilegt að stunda heiðarleg bréfavið- skipti fyrir helvítis pólitíinu. Þetta er snuðrandi í einkamálum manns sí og æ. Maður býr við eilíft ofbeldi. Þeir komu með lögtaksmenn og hirtu þvotta- vélina og tóku víst sjónvarpið í leiðinni. Ég hefði ekki lifað þetta af, ef blessunin hann Siggi hefði ekki hresst upp á mig í fyrradag og komið mér í nýtt samband. Það er aldrei tryggt með peninga, en viskí, sko, viskí, það svíkur ekki, hikk. 18

x

Spegillinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.