Spegillinn - 01.11.1970, Qupperneq 21
og fari síðan í stefnu. Nú getur Grover
fengið bita.
Shenoy: Verst er, að Grover fékk inn-
heimtulaun af þessum víxli, síðast
þegar hann var framlengdur. Þá greiddi
Skallagrímur 100 þúsund af honum.
Væri ekki betra, að Dilip tæki þennan?
Svo er ekki gerandi að afsegja hann í
fyrramálið, valdsmaður, því að hann er
á fyrsta degi á morgun. Við verðum þá
frekar að leggja víxilinn til hliðar og
segjast ekki vera búnir að afgreiða
málið.
Dilip: Ég er nú með Skallagrím í hend-
inni út af víxlinum síðan um daginn,
þar sem við ætluðum að láta hann
borga helminginn. Hann borgar mér
innheimtulaunin á morgun. Við skul-
um heldur láta þennan til innheimtu
hjá vitleysingnum niðri í bæ og láta
hann borga okkur helminginn af inn-
heimtulaununum. Það er öruggara að
dreifa þessu dálítið.
Grover: Það má bara enginn blettur á
mig falla, því að mér er annt um mann-
orð mitt. Þið megið ekki hlunnfara mig.
Ég verð að fá minn hlut. Dilip fær
alltaf meira en ég.
Dilip: Þegiðu, Grover. Vertu ekki alltaf
að þessu röfli. Auðvitað færð þú þinn
hluta. Ekki get ég gert að því, þótt það
séu fleiri framsóknarmenn hér í Koppa-
vogi en íhaldsmenn. Þú manst samn-
inginn. Þú innheimtir hjá íhaldsmönn-
um, ég innheimti hjá framsóknar-
mönnum, og Skoruvíkurlýðnum skipt-
um við bróðurlega upp. Shenoy fær
svo sinn hlut af innleggspeningunum.
Hann er líka duglegur við að selja
innleggin, búinn að selja innistæðufé
sparisjóðsins minnsta kosti fimm sinn-
um síðan um áramót. Svo fær Vajanga-
onkar valdsmaður afsagnirnar og þing-
lýsingarnar, enda höfum við afsagt 90%
af öllum víxlum með einhverjum ráð-
um, síðan hann kom í stjórnina, og
heimtum þinglýst veð fyrir öllum víxl-
um niður í 25 þúsund. Það þarf því
enginn að kvarta í þessu kompaníi.
Skál.
Vajangaonkar: Mér finnst nú eins og
Grover, að þú ættir að fara þér hægar,
Dilip karlinn, þú ert nú ekki svo örugg-
ur í sessi í bæjarstjórninni, hvað þá að
þú hafir nokkra möguleika í prófkjör-
inu. Þú lást illa í því með svikunum í
sambandi við bæjarstjórann. Það er
nú geymt en ekki gleymt, karlinn minn.
Shenoy: Þá kemur hérna nýr víxill
fyrir Málun hf., 250 þúsund. Þeir vilja
fá að borga hann í þrennu lagi á níu
21