Spegillinn - 01.11.1970, Page 22

Spegillinn - 01.11.1970, Page 22
mánuðum. Hvað segiði, drengir, ha? Þeir eru nú lítið hérna í viðskiptum, helvítin á þeim. Gætu svo sem vel lagt hérna inn kaupið, finnst ykkur ekki, ha? Þetta er náttúrlega Koppavogs- fyrirtæki, svo að við ættum kannski að líta á það samkvæmt nýju formúlunni okkar, ha? Á ég kannski að athuga, hvort þeir geta skaffað innlegg, og láta þá svo borga, helvízka, ef þeir hafa engin ráð? Vajangaonkar: Nei, við skulum vera klókir og kaupa fjandans víxilinn, ef hann er nægilega tryggður, Svo getum við tekið þá, þegar þeir geta ekki staðið við framlengingarnar. Bókaðu það. Grover: Helvíti ertu nú alltaf sniðugur, valdsmaður. Heppnir vorum við að fá þig inn í stjórnina. Hvað segir annars Seðlabankaófétið núna? Erum við sloppnir ? Dilip: Þegiðu, Grover. Skál. Auðvitað erum við sloppnir. Ég stjórnaði því eins og öðru. Er þetta drasl ekki að verða búið, Shenoy, svo að við getum farið niður í Naustahús að éta? Ég er orðinn glorsoltinn. Við erum ekki eins Sannleikurinn er sá, aS við erum töluvert öðruvísi en aðrir. KYNNIÐ YDUR MUNINN í verzlun okkar strax I dag. Gunnar Ásgeirsson hf. Suðurlandsbraut 16 sími 35 2 00 Shenoy: Það er að vísu talsvert eftir, en við getum bara haldið fund aftur á morgun, ekki tapið þið á því, fáið greitt fyrir hvern bókaðan fund. Annars verðum við að finna einhverja fjandans innheimtu handa Grover, svo að hann fari ekki í fýlu. Hvað segirðu um ekkju Gunnars járnamanns, Grover minn? Hún getur ekki greitt upp 22 þúsund króna víxil. Þú getur stefnt og samið síðan um greiðslu í tvennu lagi. Þarna er þér óhætt að taka full innheimtu- laun og kostnað. Grover: Það má bara enginn blettur á mig falla, því að mér er annt um mann- orð mitt. Þið megið ekki hlunnfara mig. Ég verð að fá minn hlut. Mér finnst alltaf Dilip fá miklu meira en ég. Jæja, ég tek þá ekkjuna, en ég verð þá að fá meira á morgun. Vajangaonkar: Skál, drengir, við hætt- um þá leik, þá hæst hann stendur, eins og kerlingin sagði, og höldum til áts. Ég hef alltaf gleymt að segja ykkur frá látunum, sem karlandskotinn í barnaskólanum gerði, þegar við af- sögðum á hann um daginn. Talaði hann ekkert við þig, Shenoy? Shenoy : Hvort hann gerði. Þar lágum við laglega í því. Karlfjandinn átti stór- fé á bók, sem hann tók út og flutti út í Útgerðarbanka. Það var ljóta útreiðin fyrir eina afsögn á sex þúsund króna víxli. Þú mátt ekki vera of gírugur, valdsmaður sæll. Vajangaonkar: Þú ert nú meiri ratinn, Shenoy, að vita ekki, hverjir eiga fé inni hjá okkur. Þú verður að gæta þess, að svona lagað komi ekki fyrir. Skál. Shenoy: Þá slít ég þessum fundi, dreng- ir, og vona, að við verðum heilir og hressir að vanda á fundinum á morgun. Er allt bókað, Dilip? Dilip: Þegiðu Grover. Ha, bókað, hvað? Tjaldið r^/9 FZETTtfZlT/lKA MOæOl/A/ /Si.rt£>S/A'S / /*ie>SE££lSSVE.IT / yÚL/ S/£>T}ST/. 22

x

Spegillinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.