Spegillinn - 01.11.1970, Page 24
GUNNAR HJARÐARJARMUR:
FORUSTUERINDI
FLUTT Á ÞINGI
BETLISAMBANDS BÆNDA
Sárþjáðu bændur.
Fyrsta mál á dagskrá þessa þings verður
að krefja Bjargráðasjóð um óaftur-
kvæmt lán fyrir útför bændastéttarinn-
ar. Öllum opinberum plöggum ber
saman um, að hún hafi látizt úr hor
harðærisvorið mikla, eftir að hafa
dregið fram lífið við sult og seyru sam-
fellt í sjö viðreisnarár. Allar fyrri yfir-
lýsingar okkar renna og stoðum undir
dánarvottorðið. Nú er aðeins eftir að
fá Ingólf ráðherra til að staðfesta það.
Jafnframt hlýtur það að vera sann-
girniskrafa, að öll fyrri lán Bjargráða-
sjóðs til bænda verði gerð óafturkvæm.
Stefán Valgeirsson, þingskar okkar,
mun í vetur flytja þetta erindi okkar á
Alþingi og reyna á þann hátt að nú
kontakti við ráðherra, þar sem honum
tókst það ekki í fyrra.
Megum við svo ekki fara að vænta
hinnar langþráðu heymiðlunar? Það
er ógerningur fyrir konur og börn að
puða í þessum heyskap. Við munum
fela stjórn samtakanna að leitast eftir
þvi við ríkisstjórnina, hvort hún geti
ekki útvegað hey frá Danmörku á
niðurgreiddu verði í skiptum fyrir
lambakjötið, sem aflað hefur þjóðinni
stóraukinna gjaldeyristekna.
Mega þeir, sem þurfa að skera niður í
haust, ekki eiga von á uppeldisstyrk ?
í fyrsta lagi uppeldisstyrk handa lamb-
gimbrum og kvígum og í öðru lagi
uppeldisstyrk til handa mæðrum, sem
eiga óspjallaðar meyjar í föðurhúsum.
Hinar eru komnar til Reykjavíkur.
Jafnframt þarf að veita auknum íjár-
hæðum til kynbóta í sveitum.
Heildsalafrúr í Reykjavík kvarta undan
því, að mjólkin sé dýr og smjörið. Við
höfum ævinlega verið á móti verð-
hækkunum. í stað þeirra krefjumst við
þess, að ríkisstjórnin greiði okkur smá-
skammtauppbætur fyrir hvern inn-
veginn lítra af mjólk. Hagkvæmast
yrði auðvitað, að við fengjum óhindr-
aðir að mjólka ríkissjóð og þyrftum
ekki að vera að hreyta úr þessum belj-
um. Þannig væri hægt að draga stór-
lega úr offramleiðslu.
Smjörfjallið okkar hefur lítið hækkað,
þrátt fyrir eldgosin og jarðrótið. Betur
má, ef duga skal, piltar. Við munum
á næsta ári leggja fram 5 milljónir úr
sjóðum okkar til þess að kanna vöxt
fjallsins, og bannað verður með öllu
að éta af því næstu árin. Leggjum við
til, að verðlagsráð landbúnaðarins taki
ráðin í sínar hendur og víggirði fjallið
með enn hærri verðlagsstuðlum.
Við höfum lagt stolt okkar í að halda
lífinu í nágrannaþjóðum okkar með
kjötgjöfum. Okkur finnst sjálfsagt, að
útflutningi á dilkakjöti til fátæklinga
í Danmörku, Færeyjum og Bretlandi
verði haldið áfram. Hins vegar hörm-
um við stórlega þann misgáning af
hálfu hins opinbera, að þjóðhöfðingjar
skuli vera látnir leggja sér þetta til
munns. Leggjum við til, að leitað verði
markaða í fleiri löndum, þar sem meira
er af fátæku fólki.
Þingið leggur til, að rannsóknir á kali
verði stórauknar og fleiri kalráðstefnur
haldnar til þess að finna fieiri hliðar á
kali. Kannað verði rækilega, hvort
ekki sé hægt að koma á kali, þar sem
það er óþekkt til þessa.
Harðærisnefnd skal þakkað fyrir ýmsar
góðar tillögur um harðæri. Samkvæmt
ráðleggingum nefndarinnar munum við
leitast eftir því við stjórn samtakanna,
að hún fari þess á leit við ríkisstjórn-
ina, að hún stórauki harðæri um allt
land.
Þingið telur, að hús stéttarinnar á
Melunum í Reykjavík sé orðið allt of
lítið og svari engan veginn kröfum tím-
ans um aðbúnað bænda í kaupstaða-
ferðum. Munum við því kanna mögu-
leika á að stækka höllina um helming
að minnsta kosti, svo að bændur eigi
mannsæmandi húsaskjól í borginni.
Þar sem afurðir okkar eru hættar að
seljast, mun hús þetta ekki verða reist
fyrir álögur á þær. Munum við því
leggja til við stjórn samtakanna, að hún
leitist eftir því við ríkisstjórnina, að
hún greiði árlega í krónutölu kílóa-
þyngd hvers bónda í landinu í öðru
veldi í byggingarsjóð hússins. Kropp-
þunginn skal mældur á lögmætum
kjötvigtum.
24